Fréttablaðið - 14.10.2015, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 4 0 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r M i ð v i k u d a g u r 1 4 . o k t ó b e r 2 0 1 5
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
HRÆÐILEGT
úrval af
HRYLLILEGUM
vörum fyrir
HREKKJAVÖKU
Búningar, fylgihlutir,
borðbúnaður, skraut
Finndu okkur á
Fréttablaðið í dag
skoðun Róbert H. Haraldsson
fjallar um áfengisfrumvarpið. 13
sport Strákarnir misstu af efsta
sætinu. 14
lÍfið Gekk með handritið í mag-
anum í nokkra mánuði. 24
plús 2 sérblöð l fólk
l heilsurækt
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Segja dóminn kalla á
breytingar á lögum
Þyngsti dómur sem fallið hefur í fíkniefnamáli kallar á endurskoðun refsiramm-
ans, að mati formanns allsherjar- og menntamálanefndar. Þingmaður Pírata
segir Alþingi bera ábyrgð á þunga refsinga í fíkniefnamálum og vill breytingar.
Löggjafinn hefur
tekið þá ákvörðun
að refsa mjög þungt fyrir það
að smygla ólöglegum vímu-
efnum til landsins og það er
meðvituð ákvörðun og ætti
ekki að koma
neinum á
óvart.
Helgi Hrafn
Gunnarsson,
alþingismaður
viðskipti Gífurlega söluaukning
hefur orðið á herrafötum undan-
farin misseri. Frá árinu 1998 hefur
sala á herrafötum úti um allan heim
aukist um 70%. Ráðgjafarfyrirtækið
Bain & Co áætlar að karlar kaupi
40% af lúxusvörum heimsins.
Skjöldur Sigurjónsson, annar eig-
andi Kormáks og Skjaldar, segir að
sala fylgihluta hafi aukist að undan-
förnu. „Það er alltaf eitthvað. Það
var þverslaufuæði um tíma og svo
komu sokkar. Menn eru núna meira
með töskur en áður. Þeir kaupa sér
því vandaðar töskur undir fartölvur
og svoleiðis,“ segir Skjöldur.
– sg / sjá Markaðinn
Meiri sala á
herrafötum
dægurMál Skemmtistaðir birgja sig
nú upp af áfengi vegna yfirvofandi
verkfalls starfsmanna Vínbúðanna
Einhverjir þeirra hyggjast bjóða upp
á lengri „happy hour“, til að mæta
þörfum viðskiptavina.
„Við ætlum að hafa lengra „happy
hour" í ljósi verkfallsins og munum
panta talsvert meira af áfengi,“
segir Geoffrey Þór Karl Hunting-
don-Williams sér um reksturinn á
Prikinu. kak , glp / sjá síðu 26
Búa sig undir
verkfall ÁTVR
Starfsmaður Reykjavíkurborgar hreinsar burt regnbogann sem prýddi Skólavörðustíginn í sumar. „Þetta var hreint listaverk,“ segir Jóhann Jónsson
eigandi Ostabúðarinnar við Skólavörðustíg. Hann vill gjarnan fá regnbogann aftur á næsta ári en þá megi passa upp á að hann verði ekki háll líkt og
þetta árið. Fréttablaðið/steFán
dóMsMál „Ef það eru uppi einhver
álitamál um hvort lagaramminn sé
réttur þá verðum við að endurskoða
það,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins og
formaður allsherjar- og mennta-
málanefndar Alþingis, um refsi-
stefnu stjórnvalda í fíkniefnamálum.
Nýfallinn dómur yfir Mirjam
Foekje van Twuijver hefur vakið
umtalsverða athygli, sér í lagi sökum
þess að hann er þyngsti dómur sem
dæmdur hefur verið í fíkniefnamáli
hér á landi.
„Þegar það er verið að fullnýta
rammann í þessi brot og fram koma
einstaklingar með alvarlegri brot,
hvaða refsingu munu þeir þá hljóta?
Við eigum auðvitað að hafa skoðun
á þessu og við gerum það með því að
ákveða hvernig lagaramminn lítur út
og hann á þá að rúma allt.“ Hún segir
að fylgst sé með aðgerðum innan-
ríkisráðuneytisins fyrst um sinn.
Mirjam og sautján ára dóttir
hennar fluttu inn tuttugu kíló af
fíkniefnum frá Hollandi. Í tösku Mir-
jam fundust rúm níu kíló af amfeta-
míni en í tösku dóttur hennar voru
tíu kíló af MDMA. Mirjam var ekki
meðvituð um fíkniefnin í tösku
dóttur sinnar en um leið og lög-
regla greindi henni frá þeim sýndi
Mirjam samstarfsvilja en meðal
annars nefndi hún það fólk sem
flækti hana inn í málið fyrir lögreglu
og dómi.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, tekur undir með
Unni Brá um að endurskoða þurfi
refsiramm ann og segir mikinn
hljómgrunn fyrir því. Ramminn refsi
frekar fórnarlömbum fíkniefnabrota
og einkennist af dómhörku og óða-
goti.
„Mér þykir það alveg einsýnt,“
segir hann. „Löggjafinn hefur tekið
þá ákvörðun að refsa mjög þungt
fyrir það að smygla ólöglegum vímu-
efnum til landsins og það er með-
vituð ákvörðun og ætti ekki að koma
neinum á óvart. Þetta er það sem
Alþingi og að veigamiklum hluta
samfélagið líka, því miður, ákvað
að gera til að sporna við vímuefna-
neyslu.“ – srs, snæ / sjá síðu 10
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
B
F
-7
4
1
0
1
6
B
F
-7
2
D
4
1
6
B
F
-7
1
9
8
1
6
B
F
-7
0
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
3
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K