Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2015, Blaðsíða 3
3SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ - október 2015
Siglfirðingafélagið og
Vildarvinir Siglufjarðar
eru að vinna að
kvikmynd sem ætlunin
er að færa Siglufirði
og Siglfirðingum að
gjöf á 100 ára afmæli
bæjarins og 200 ára
verslunarafmæli
hinn 20. maí
2018. Vildarvinir
Siglufjarðar og
Siglfirðingafélagið eru
bakhjarlar verkefnisins
sem er í fullum gangi.
„Við höfum
þegar fengið lista frá
kvikmyndasafninu
um kvikmyndir sem eru til hjá safninu og varða Siglufjörð
og er gífurlegt magn til af slíku efni. Við höfum einnig talað
við Sjónvarpið og fengið þar grófan lista yfir efni frá stofnun
þess 1966 sem tengist Siglufirði og Siglfirðingum. Þá eigum
við eftir að fá upplýsingar frá útvarpinu hvað þar er til í tali
og tónum frá því að það hóf útsendingar 1930. Eins höfum
við verið að viða að okkur efni sem heimamenn hafa tekið
í tímans rás, sett það í stafrænt form og ætlunin er að nota
meðfram, segir Árni Jörgensen sem ritstýrir verkefninu.
„Ætlunin er að byggja þetta líka á viðtölum við Siglfirðinga
á öllum aldri. Þessi viðtöl eða einræður öllu heldur verða síðan
klippt til út frá myndefninu. Eins og áður segir verða þetta
fjölmargir viðmælendur og eru þessar upptökur nú að fara af
stað. Auk þess verða notaðar ljósmyndir frá öllum tímum, sú
elsta sennilega frá því um 1890.“
Nú er saga Siglufjarðar gífurlega merkileg og þá atvinnu-
sagan sérstaklega. Árni er því spurður hvort nokkur von
sé til þess að koma því öllu til skila í klukkustundar langri
kvikmynd.
„Við höfum
auðvitað mikið
velt því fyrir okkur
hvort klukkustundar
kvikmynd muni duga
fyrir allt þetta efni,
og þess vegna höfum
við rætt óformlega
við Egil Helgason
og Ragnheiði
Thorsteinsson um
gerð sjónvarpsþátta.
Allt er þetta í vinnslu.
Efnið er óþrjótandi,
mikið til af skráðum
heimildum eftir
Siglfirðinga, menn
eins og Örlyg
Kristfinnsson, Benedikt Sigurðsson, Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson, Sigurjón Sigtryggsson, Jón Jóhannesson,
Þ. Ragnar Jónasson og Jónas Ragnarsson, þannig mætti
fleiri telja.“
-Við hvaða fólk verður talað?
„Eins og áður segir verður talað við fólk á öllum
aldursskeiðum og úr öllum atvinnugreinum. Þetta verður
fjöldi fólks, gæti orðið 20-40 manns sem þarna munu koma
við sögu með einum eða öðrum hætti. Þegar hefur verið
haft samband við suma þeirra en ekki alveg alla, og farið
yfir það sem hver og einn á að tala um. Þar sem ekki hefur
verið haft samband við alla þá sem meiningin er að fá til að
tjá sig í myndinni vil ég ekki nefna nein nöfn á þessu stigi.
Verkinu miðar vel og við höldum ótrauðir áfram að vinna
að þessu skemmtilega verkefni um þennan merka stað og
merka sögu hans. Hvort sem um heimildamynd verður að
ræða eða sjónvarpsþætti þá munum við gera okkar besta
til að segja þessa sögu. Vonandi fáum við rúm í þessu blaði
áfram til að segja frá framvindunni.“ -bvs.
Merkur staður
með merka sögu
Siglufjörður 1905.
Síldarstúlkur Gunnlaugs Blöndals í bankanum.