Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2015, Blaðsíða 7

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2015, Blaðsíða 7
SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ - október 2015 upp frá því. Kona hans hjúkraði honum heima í þrjátíu ár en síðustu árin var hann á sjúkrahúsinu á Siglufirði. „Einar var mjög léttur í lund og hefur það eflaust létt hans löngu sjúkdómslegu,“ sagði í afmælisgrein í Einherja. Bæjarstjórn Siglufjarðar færði Einari veglega blómakörfu á hundrað ára afmælinu. Herdís lést í nóvember 1978, 85 ára, tæpum þremur vikum fyrir aldarafmæli Einars. Þá höfðu þau verið gift í 62 ár. Einar Ásmundsson lést 13. október 1979, 100 ára og 322 daga. Börn þeirra voru Felix Einarsson sjómaður á Siglufirði (f. 1918, d. 1979, 61 árs), Ása Einarsdóttir bankastarfsmaður í Kópavogi (f. 1925, d. 2011, 86 ára), kona Hólmsteins Steingrímssonar, og Kjartan Einarsson tollgæslumaður og skattendurskoðandi á Siglufirði (f. 1933, d. 2011, 77 ára), maður Brynju Stefánsdóttur. Guðmundur: 100 ára Eiríkur Guðmundur Guðmundsson var fæddur á Kálfshamri á Skaga í Austur- Húnavatnssýslu 18. ágúst 1897. Foreldrar hans voru Guðmundur Kristjánsson bóndi og María Eiríksdóttir. Guðmundur átti átta systkini sem náðu fullorðinsaldri. Ein systra hans varð 96 ára og önnur 95 ára. Áður en Guðmundur gifti sig eignaðist hann son með Guðrúnu Eyjólfsdóttur (f. 1892, d. 1957, 65 ára). Það var Benedikt Benediktsson Guðmundsson sjómaður í Keflavík (f. 1922, d. 2011, 89 ára). Fyrri kona Guðmundar var María Magnúsdóttir (f. 1901, d. 1941, 39 ára) en þau skildu. Börn þeirra voru tvö. Ingimagn Hvammberg Eiríksson (f. 1922, d. 1924, 1 árs) og María Guðmundsdóttir á Siglufirði (f. 1923, d. 2007, 83 ára), kona Ragnars Gíslasonar sjómanns. Síðari kona Guðmundar, 1929, var Guð- laug Kristjánsdóttir (f. 1891, d. 1969, 77 ára). Guðmundur fór sautján ára til sjóróðra frá Keflavík og var þar nokkrar vertíðir. Síðan stundaði hann sjóinn frá Skagaströnd og Siglufirði, lengi sem formaður. Sagt er að hann hafi verið mikill aflamaður. Guðmundur og Guðlaug áttu meðal annars heima á Suðurgötu 24a og Lindargötu 26b. Á hundrað ára afmælinu var Guðmundi haldið samsæti á Sjúkrahúsi Siglufjarðar, þar sem hann dvaldi. Guðmundur Guðmundsson lést 9. júní 1998, 100 ára og 295 daga. Vilborg: 100 ára Vilborg Þorleifsdóttir, Suðurgötu 37, var fædd að Stórholti í Fljótum í Skagafirði 9. janúar 1857. Foreldrar hennar voru Þorleifur Þorleifsson bóndi og Þuríður Sveinsdóttir. Af fimm systkinum Vilborgar náði aðeins eitt fullorðinsaldri, Bessi Þorleifsson bóndi í Grundarkoti í Héðinsfirði. Tvítug giftist Vilborg Gísla Gíslasyni. Þau bjuggu að Bakka og Hamri í Stíflu og að Austara-Hóli í Flókadal og eignuðust sjö börn. Þrjú þeirra dóu á barnsaldri en hin voru Kristrún Gísladóttir í Ólafsfirði (f. 1880, d. 1975, 95 ára), kona Gísla Jónssonar, Guðlaug Gísladóttir á Siglufirði (f. 1881, d. 1966, 85 ára), kona Jóns Jóhannessonar fiskimatsmanns og fræðimanns, Jón Gíslason skipstjóri á Siglufirði (f. 1889, d. 1973, 84 ára) maður Helgu Jóhannesdóttur og Bjarni Gíslason sjómaður á Siglufirði (f. 1891, d. 1922, 30 ára), maður Guðfinnu Bjarnadóttur. Eftir að Gísli Gíslason lést, árið 1892, var Vilborg vinnukona og ráðskona, einkum í Skagafirði. Hún flutti til Siglufjarðar árið 1925 og dvaldist þar í skjóli barna sinna, Guðlaugar og Jóns. Vilborg var orðin 96 ára þegar hún fór á Sjúkrahús Siglufjarðar. Í Skagfirskum æviskrám var Vilborgu svo lýst að hún hefði verið „lág kona vexti og fremur snotur, snarleg í fasi“. Á tíræðisafmælinu var Vilborgu haldin veisla á Sjúkrahúsinu og „var gamla konan glöð og ánægð með lífið,“ sagði í Siglfirðingi, og lék á als oddi. Hún var þá sögð hress í anda, minnisgóð og ræðin. Mikill fjöldi gesta heimsótti Vilborgu á afmælisdaginn, „þeirra á meðal bæjarstjórinn á Siglufirði og forseti bæjarstjórnar, sem færðu henni fagra blómakörfu,“ sagði í fréttum Útvarpsins. Afkomendurnir voru þá orðnir um eitt hundrað. Vilborg Þorleifsdóttir, sem var fyrsti íbúi Siglufjarðar sem náði hundrað ára aldri, lést 9. júlí 1957 og hafði þá lifað í 100 ár og 181 dag. Þrjú barnabarna Vilborgar urðu háöldruð, Sigríður Gísladóttir í Ólafsfirði varð 101 árs, Dóróthea Jónsdóttir á Siglufirði 96 ára og Bryndís Jónsdóttir á Siglufirði 93 ára. Elst núna Hallfríður Nanna Franklínsdóttir er nú elst íbúa Siglufjarðar, varð 99 ára í maí 2015. Nanna er ættuð úr Strandasýslu. Þrjú af tólf systkinum hennar fluttu einnig til Siglufjarðar, Guðbjörg M. Franklínsdóttir (f. 1912, d. 2005, 93 ára), kona Guðmundar Einarssonar, Margrét Franklínsdóttir (f. 1922), kona Halldórs Bjarnasonar og Guðborg Franklínsdóttir (f. 1924), kona Alberts Sigurðssonar. Móðir þeirra systra, Andrea Jónsdóttir, bjó einnig lengi á Siglufirði en hún varð 97 ára. Maður Nönnu var Baldvin Guðjónsson sjómaður og verkamaður (f. 1897, d. 1975, 77 ára). Nálægt því Nokkrir Siglfirðingar voru komnir hátt á tíræðisaldur þegar þeir létust. Þorlákur Guðmundsson (d. 1994) og Sigríður Kon- ráðsdóttir (d. 2000) urðu 99 ára. Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 1963). Júlíus Þórðarson (d. 1965), Sigfús Ólafsson (d. 1980) og Jörgen S. Hólm (d. 1997) urðu 98 ára. Alþýðublaðið sagði frá því sumarið 1940 að Sigurður Sigurðsson á Siglufirði hefði orðið 99 ára 17. júní. Þá hafði hann dvalið þar í fimmtán ár hjá Valgerði dóttur sinni og tengdasyni, Guðmundi Bílddal, verið rúmfastur um skeið og misst sjónina nokkrum árum áður. Sigurður var þó „enn ern í anda og fylgist vel með öllu sem gerist“. Sumarið 1941, 18. júní, var haldið upp á 100 ára afmæli Sigurðar. Í tilefni af því færði bæjarstjórnin honum heiðursgjöf, nokkur hundruð krónur, sem hann þakkaði fyrir í blaðaauglýsingu. Sigurður dó 1. apríl 1942, sagður 100 ára. Í blaðafréttum var fullyrt að hann hefði verið „mesti heiðursmaður, greindur og stálminnugur“. Við athugun hefur komið í ljós að Sigurður varð aldrei 100 ára heldur aðeins 95 ára. Hann var fæddur á Grenivík í Suður-Þingeyjarsýslu 26. júní (ekki 17. eða 18. júní) árið 1846 og var lengi bóndi á Þórustöðum í Eyjafirði. Konu sína, Guðrúnu Jóhannesdóttur, missti Sigurður árið 1906. Börn þeirra voru sex. Sumir fluttu burt Það fólk sem hér hefur verið sagt frá átti allt heima á Siglufirði síðustu æviár sín og flestir í marga áratugi. Sumir sem þar bjuggu á síldarárunum fluttu úr bænum. Nokkrir þeirra náðu háum aldri svo sem Hólmfríður Guðjónsdóttir sem varð 103 ára (kona Georgs Pálssonar og systir síldarsaltendanna Friðriks, Gunnlaugs og Ingvars Guðjónssona) og Hólm Dýrfjörð vörubifreiðastjóri sem varð 101 árs (maður Sigurrósar Sigmundsdóttur). Er þetta ekki staðfesting á því að það sé og hafi verið gott að búa á Siglufirði? Vilborg Þorleifsdóttir bjó lengi við Suðurgötu. 7

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.