Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 2015, Blaðsíða 6
6 SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ - október 2015
Á Siglufirði búa hlutfallslega fleiri aldraðir
en í flestum öðrum stærstu þéttbýlisstöðum
landsins. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni í
ársbyrjun 2015 voru 15,7% íbúanna 70 ára og
eldri, en landsmeðaltalið var 9,1%.
Eins og að líkum lætur hafa nokkrir
Siglfirðingar náð mjög háum aldri og vitað
er um fimm sem hafa orðið hundrað ára, sá
fyrsti upp úr miðri tuttugustu öld.
Elín: 104 ára
Elín Jónasdóttir fæddist í Efri-Kvíhólma
í Ásólfsskálasókn í Vestur-Eyjafjallahreppi
í Rangárvallasýslu 16. maí 1908, dóttir
Jónasar Sveinssonar bónda þar og Guðfinnu
Árnadóttur, sem varð 98 ára. Elín var fjórða
í röð níu systkina, ein systir varð 99 ára og
önnur 96 ára.
„Ég kom á Siglufjörð 1939 og hef verið
hér síðan, gerðist húsmóðir en starfaði líka
við síldarsöltun á sumrin þegar það var
í boði,“ sagði Elín í viðtali sem birt var á
aldarafmælinu. Elín var mjög trúuð kona „Ég
ákalla Drottin á hverjum degi og stundum
oft á dag,“ sagði hún. „Og hann hefur aldrei
brugðist mér, þó maður skilji ekki allt sem
hefur komið í manns veg.“ Elín var mikil
handavinnukona. Á efri árum tók hún sig til
og prjónaði og saumaði mikið af flíkum sem
hún sendi til fátækra barna víða um heim,
m.a. í Austur-Evrópu, Asíu og Afríku. Einnig
sendi hún mikið til ABC-hjálparstarfsins á
Íslandi.
Síðla árs 1941 giftist Elín Óskari Sveinssyni
sjómanni og verkamanni og áttu þau heima á
Suðurgötu 68, en það hús byggðu þau. Þar var
Elín þangað til hún var 98 eða 99 ára, en þá
fór hún á sjúkrahúsið á Siglufirði.
Þau Elín og Óskar eignuðust saman þrjú
börn, Hauk Óskarsson húsgagnabólstrara í
Reykjavík og á Siglufirði (f. 1941), Guðlaugu
Óskarsdóttur leikskólakennara (f. 1942)og
Guðfinnu Óskarsdóttur sjúkraliða í Vest-
mannaeyjum (f. 1946, d. 2009, 62 ára). Með
fyrri konu sinni átti Óskar fjóra syni og tvö
börn með annarri konu.
Óskar fæddist í Reykjavík árið 1903 og ólst
þar upp. Faðir hans var ættaður af Snæfellsnesi
en móðir hans úr Vestur-Skaftafellssýslu.
Á efri árum fékkst Óskar við hænsnarækt
í sérstöku húsi sem var nótabátur á hvolfi.
Óskar lést í desember 1983, 80 ára. Ein systra
hans, Margrét Sveinsdóttir í Kanada, varð
100 ára.
Elín Jónasdóttir dó 14. febrúar 2013,
104 ára og 288 daga og var þá fimmti elsti
Íslendingurinn. Enginn íbúi Siglufjarðar
hefur náð jafn háum aldri og hún.
Halldóra: 101 árs
Halldóra Björnsdóttir í Bakka (Hvann-
eyrarbraut 72) var, samkvæmt kirkjubók,
fædd á Skeri á Látraströnd í Suður-
Þingeyjarsýslu 15. nóvember 1863, en
fæðingardagur hennar var stundum talinn
5. október eða 5. nóvember og fæðingarárið
annað hvort 1863 eða 1864. Foreldrar hennar
voru Björn Þórarinsson bóndi og Þórunn
Pétursdóttir. Halldóra var fimmta í röð átta
systkina.
Halldóra kom til Siglufjarðar 1889,
árið sem hún giftist Guðmundi Bjarnasyni
hákarlasjómanni og síðar lifrarbræðslumanni.
Séra Bjarni Þorsteinsson gaf þau saman
en Guðmundur var síðar daglegur gestur
á prestssetrinu og fylgdarmaður Bjarna á
sýslunefndarfundi á Akureyri. Þau Halldóra
og Guðmundur höfðu verið í hjónabandi í 60
ár þegar hann lést, árið 1949, 85 ára.
Synir Halldóru og Guðmundar voru
Bjarni Guðmundsson sjómaður á Siglufirði
(f. 1890, d. 1919, 29 ára), maður Ólafar
Þorláksdóttur, og Gestur Guðmundsson
verkamaður á Siglufirði (f. 1892, d. 1938, 45
ára), maður Láru Thomsen.
Halldóra Björnsdóttir lést 28. febrúar
1965, 101 árs og 105 daga. Í minningargrein
í Siglfirðingi sagði að hún hefði verið
„myndarleg og höfðingleg ásýndum, svipur
og yfirbragð milt og góðmannlegt. Það var
eins og hún stráði út frá sér björtum geislum
mildi og góðleik.“
Einar: 100 ára
Einar Ásmundsson var fæddur í
Svarfaðardal 25. nóvember 1878 en flutti
ungur með foreldrum sínum, Ásmundi
Einarssyni og Hólmfríði Jónsdóttur, til
Skagafjarðar og stundaði þar sjómennsku,
búskap, m.a. á Spáná í Unadal, og ýmis önnur
störf.
Fyrri kona Einars var Birgitta Guðmunds-
dóttir (f. 1881, d. 1966, 85 ára) en þau skildu.
Börn þeirra voru Ásmundur Einarsson (f.
1901, d. 1922, 20 ára) og Ingibjörg Einars-
dóttir ljósmóðir á Árskógsströnd (f. 1905,
d. 1999, 93 ára), kona Marinós Steins Þor-
steinssonar.
Síðari kona Einars var Herdís Kjart-
ansdóttir, ættuð úr Skagafirði. Þau fluttu til
Siglufjarðar árið 1927 frá Hofsósi og bjuggu
lengi á Hlíðarvegi 9. Herdís hlaut sérstaka
viðurkenningu bæjarstjórnar fyrir garð sinn
og leiðbeindi mörgum samborgurum sínum
um blómarækt.
Einar var við síldarsöltun hjá Skafta á Nöf
og gerðist síðar fisksali. Hann veiktist þegar
hann var á sjötugsaldri og var rúmliggjandi
Langlífir Siglfirðingar
Fimm bæjarbúar hafa náð hundrað ára aldri
Jónas Ragnarsson tók saman
Elín Jónasdóttir rúmlega hundrað ára.
Ljósm.: Sigurður Ægisson.
Halldóra Björnsdóttir í Bakka á níræðisaldri.
Ljósm.: Kristfinnur Guðjónsson (Ljósmyndasafn Siglufjarðar).