Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2015, Qupperneq 9
9SIGLFIRÐINGABLAÐIÐ - október 2015
Það var mikið um að vera s.l. sumar
(2015) hjá eðalfólkinu sem fætt var á því
herrans ári 1965 en helgina 24. til 25.
júlí hittist árgangurinn á bernskuslóðum
í Siglufirði. Heimavarnarliðið svokallaða
sá um allan undirbúning og stóð sig með
„bravör“ enda var helgin frábær í alla
staði.
Árgangsmótið hófst á föstudagssíðdegi
með móttöku brottfluttra og maka
þeirra og átti að fara fram á hinu nýja
glæsilega Hótel Sigló með fordrykk og
huggulegheitum. Ekki vildi betur til en
svo að upp kom eldur í hótelinu sem
gerði að verkum að ekki var hægt að
hleypa fólki inn á hótelið og þeir sem
þar gistu voru fluttir annað. Við færðum
okkur því yfir á Rauðku og sátum þar um
stund í góðu yfirlæti.
Frá Rauðku lá leið okkar út á Ráðhústorg þar sem fólki
var skipt í lið eftir litum og upphófst síðan æsispennandi
ratleikur. Stjórnendur ratleiksins sáu greinilega ekki fyrir
sér að keppnisskapið væri enn svona gífurlega ríkjandi hjá
fólki á besta aldri og það sem átti að taka dágóða stund og
vera afslappað dúll og tölt breyttist í æðislegt kapphlaup
um bæinn þar sem allt var lagt í sprettina. Ekki komu
allir heilir út úr þessum æfingum en engin nöfn verða
nefnd. Eftir að búið var að útnefna sigurvegara ratleiksins
og þeir búnir að grobba sig hæfilega, var haldið í hús
björgunarsveitarinnar. Hópurinn dvaldi þar sem eftir lifði
kvölds, borðaði frábærar veitingar frá Aðalbakaríi, gripið
var í gítar og sungið og auðvitað var heilmikið skrafað og
spjallað enda margir á staðnum sem ekki höfðu sést árum
saman.
Á laugardegi, stundvíslega kl 11 var farið niður í
barnaskóla, skólahúsið skoðað og skólanum afhent gjöf
frá árgangi 65. Örlygur Kristfinnsson sem kenndi okkur
myndmennt sælla minninga tók á móti okkur, hringdi
bjöllunni og öll fórum við í röð eins og fyrirmyndar
nemendum sæmir. Það er gaman að segja frá því að fólk
man nokkuð vel hvar þeirra staður var í röðinni og hverjir
gengu inn saman. Inni í skólahúsi var farið í stofurnar og
fólk rifjaði upp hverjir sátu hvar og /eða saman. Einnig var
farið í leikfimisalinn og kaðlar og slár mátaðar og þykir
nokkuð ljóst að sumir eru í fantaformi og geta enn rokið
upp kaðal og sýnt leikni sína á slá án þess að blása (mikið)
úr nös.
Eftir heimsóknina í gamla skólann okkur héldum við
sem leið lá upp í kirkjugarð en frá því að árgangurinn fór
að hittast reglulega, höfum við haft fyrir sið að heimsækja
leiði vinar og skólabróður okkar, Kolbeins Kolbeinssonar,
sem lést ungur af slysförum. Síðan var haldið niður að
Siglufjarðarkirkju en þar áttum við stefnumót við Ómar
Hauksson. Hann fylgdi okkur síðan um bæinn og sagði
sögur af húsum, fólki og staðháttum. Leiðsögn Ómars er
bæði glettin og upplýsandi og hann er fróður um bæinn
okkar, þetta varð því hin besta skemmtun.
Heimavarnarliðið hafði greinilega gert ráð fyrir að
fólk þyrfti að gera sig klárt fyrir kvöldið og eftir gönguna
um bæinn fór hver til síns heima. Við hittumst síðan í
Bláa húsinu um kvöldið þar sem við nutum glæsilegra
veitinga en einnig voru frumflutt skemmtiatriði í boði
heimavarnarliðs og brottfluttra úr árgangi 65. Skemmtunin
og fjörið stóð fram á nóttina og fólk dansaði við tónlist
frá áttunda áratugnum og byrjun þess níunda. Ýmsir
taktar rifjuðust upp fyrir fólki og menn og konur snerust
um í slögurum Meatloaf eða svifu um gólfið í ljúfum
Abbatónum, tilþrifin voru upp og ofan en stórslysalaus.
Allir höfðu þó gaman af og vertinn á staðnum mætti til að
hrósa gestunum fyrir almenn skemmtilegheit og lífsgleði,
ekki ónýtt það!
En allt tekur enda, á sunnudagsmorgni hittust svo
hressir skólafélagar úr árgangi 65 í Aðalbakaríi og snæddu
brunch, ræddu skemmtun helgarinnar og kvöddust með
virktum. Áætlað árgangsmót 55 ára er þegar komið í nefnd
og munu brottfluttir sjá um þá framkvæmd. Helgin og
árgangsmót fimmtugra, árgangs 1965 frá Siglufirði tókst
með eindæmum vel og allir fóru ánægðir og glaðir til síns
heima. Þökkum skal hér með skilað til heimavarnarliðsins
og þeirra sem stóðu fyrir þessu frábæra árgangsmóti, þið
stóðuð ykkur eins og hetjur! Hittumst heil árið 2020!
Anna Friðrika Guðjónsdóttir.
Árgangsmót á Siglufirði
1965