Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Side 2

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Side 2
Unnið verður fyrir 11 milljónir króna á lóð Vesturbæjarskóla Áætlun um endurbyggingu skóla- lóða var kynnt fyrir menntaráði og samþykkt í framkvæmdaráði í nóvember. Ástand skólalóða er misgott enda eru margar skólalóð- ir í Reykjavík komnar á efri ár og tekur forgangsröðunin mið af því. Framkvæmt verður við 15 skóla. Margþætt hlutverk skólalóða er haft að leiðarljósi og er áætlunin um endurgerð skólalóðanna unnin í samráði við Menntasvið. Í fyrsta lagi er horft til skólalóða sem félags- legs vettvangs þar sem hlúa þarf að þörfum einstaklinga og hópa; í öðru lagi þess að skólalóðin geti verið vettvangur náms, s.s. fyrir umhverfisfræðslu; í þriðja lagi eru skólalóðir vettvangur íbúa hverf- isins og er þar horft til samstarfs íbúa og ÍTR; í fjórða og síðasta lagi er hugað að öryggismálum á skóla- lóðinni. Unnið verður fyrir um 150 milljónir á árinu 2007 og samhliða voru skoðaðar áherslur í þriggja ára áætlun. Við Vesturbæjarskóla verður unnið fyrir 11 milljónir króna við undirbúning og endurhönnun skólalóðarinnar. Í framhaldi af því verður gengið frá svæði á austur- hluta lóðarinnar. Byggingaframkvæmd- ir að hefjast við Vestur- bæjarlaug Á fundi borgarráðs 5. október sl. var lagt fram bréf sviðsstjóra framkvæmdasviðs og íþrótta- og tómstundasviðs frá 2. nóvember sl. þar sem óskað er eftir heimild borgarráðs til að viðhafa forval vegna fyrirhugaðrar byggingar yfirbyggðar kennslu- og æfingaað- stöðu og aðstöðu til heilsubótar við Vesturbæjarlaug. Borgarráð samþykkti heimildina og því geta Vesturbæingar, sem og aðrir, glaðst yfir því að loks eigi að hefja fram- kvæmdir við Vesturbæjarlaug. Von- andi verða búningsklefar og sturt- ur einnig teknar í gegn, þar er allt orðið fremur þreytt. Minna en helmingur bifreiða á negldum hjólbörðum 40% bifreiða eru nú á negldum hjólbörðum í Reykjavík, samkvæmt mælingu sem Línuhönnun gerði 5. desember sl. Á sama tíma árið 2004 voru hins vegar 53% bifreiða á negldum hjólbörðum. Ábendingar til ökumanna um að taka þátt í því að draga úr svifryki í borginni með því að hætta að nota nagladekk hafa því væntanlega verið teknar til greina. Nagladekk spæna upp mal- bikið og er helsta orsök svifryks í Reykjavík. Reykjavíkurborg hefur m.a. auglýst í útvarpi þar sem öku- menn eru beðnir um að leggja sitt af mörkum til að skapa hreinna loft. Þær auglýsingar hljóma m.a. svona: „Minnkum svifryk, öndum léttar - leggjum nagladekkjunum”, „Það er ekki skylda að nota nagla- dekk, öndum léttar - leggjum nagla- dekkjunum”, „Hugum að heilsunni - leggjum nagladekkjunum. Reykja- víkurborg”. Einnig hefur verið aug- lýst í strætisvagnaskýlum. Segja má að þetta sé gott og blessað, en hins vegar er það staðreynd að í vissum tilfellum eru negld dekk öruggari, t.d. í ísingu. Eiga bifreiða- eigendur sem ekki eru með bifreið- ar á negldum hjólbörðum þá ekki að nota bifreiðarnar í öryggisskini? Varla fer nokkur maður eftir því. Fjölgun gjaldskyldra bílastæða Borgarráð hefur samþykkt stækk- un til bráðabrigða á gjaldskyldu bílastæði milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu, á svæðinu þar sem áður var skiptistöð Strætó. Gert er ráð fyrir að gjaldskyldum stæð- um fjölgi um allt að 70, sem kemur sér vel fyrir þá sem eiga erindi í miðbæinn. Stefnt er að því að bíla- stæðin verði tilbúin í lok þessarar viku. Stækkun þessi kemur til móts við tímabundna fækkun bílastæða vegna framkvæmda við Austur- höfn, en þess ber að geta að und- ir öllu svæðinu sem kennt er við Tónlistar- og ráðstefnuhús verður tveggja hæða bílastæðageymsla sem áætlað er að rúmi um 1600 bíla. Deilt um lóðarkaup Borgarstjóri er orðinn tvísaga um þátt sinn í kaupum á lóð Kjart- ans Gunnarssonar í Norðlingaholti fyrir 208 milljónir króna að mati Dags B. Eggertssonar borgarfull- trúa Samfylkingarinnar. Dagur segir málið snúast um að upplýsa tildrög þess að fallið var frá því að kæra niðurstöðu matsnefndar eignarnámsbóta til dómsstóla. Borgarráð hafði verið sammála um að fara dómstólaleiðina í apríl sl. þar sem niðurstaða nefndarinnar væri órökstudd og allt of há. Við- snúningur varð hins vegar í sumar og Kjartani greiddar milljónirnar án þess að samþykkis borgarráðs væri leitað. Dagur segir að borgar- stjóri hafi viðurkennt að það hafi verið mistök að fara á bak við borg- arráð í málinu en hefur hingað til sagt að lögfræðingar ráðhússins hafi ráðlagt honum að hætta við málsókn. Samþykkt deiliskipu- lags BYKO-reits enn frestað Á fundi borgarráðs nýver- ið var lagt fram bréf sviðsstjóra skipulags- og byggingarsviðs frá 30. nóvember sl. sbr. samþykkt skipulagsráðs 29. nóvember sl. um breytingu á deiliskipulagi svo- kallaðs BYKOreits, sem afmarkast af Hringbraut, Ánanausti, Sólvalla- götu og Framnesvegi. Afgreiðslu var frestað. Á fundi skipulagsráðs í lok nóvember var lögð fram tillaga að deiliskipulagi reitsins en auglýs- ing stóð yfir frá 18. júlí til og með 29. ágúst 2006. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Fjórir íbú- ar að Sólvallagötu 82, og Geir Ragn- arsson f.h. 26 íbúa að Sólvallagötu 80-84. Lögð var fram umsögn skipu- lagsfulltrúa dags. 9. október 2006 ásamt nýrri tillögu Glámu Kím. Auglýst tillaga að deiliskipulagi var samþykkt með þeim breytingum sem fram koma á nýjum uppdrætti dags. nóvember 2006 og með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa. Dómkirkjan fær 4 milljón króna styrk Á fundi borgarráðs 7. desember sl. var lagt fram bréf sóknarnefnd- arformanns og sóknarprests Dóm- kirkjunar frá 17. nóvember sl. þar sem sótt var um styrk að fjárhæð 4 milljónir króna vegna aukins mið- borgarstarfs Dómirkjunnar. Borg- arstjóri lagði fram tillögu þar sem borgarráð samþykkir að veita 4 milljónir króna styrk til starfsemi miðborgarprests Dómkirkjunnar í Reykjavík. Á árinu 2006 verði greiddar ein milljón króna af liðn- um ófyrirséð og 3 milljónir króna á árinu 2007 af styrkjalið borgarráðs. Styrkurinn er veittur til þeirra verk- efna sem snúa að samfélagsmál- um. Í greinargerð með umsókn Dómkirkjunnar kemur fram að mið- borgarprestur mun sinna margvís- legum samfélagsverkefnum, aðal- lega í miðborginni. Dómkirkjan skal skila skýrslu til borgarstjóra um starfsemi miðborgarprests og fram- vindu verkefna í þágu Reykjavíkur- borgar þrisvar á því tímabili sem styrkveitingin nær yfir. Stykveiting- in var samþykkt. Andmæli við stöðvun Lögð voru fram á fundi skipu- lagsráðs andmæli Leiguíbúða ehf. vegna ákvörðunar byggingarfull- trúa um stöðvun framkvæmda á Bergstaðastræti 16. Einnig var lögð fram umsögn lögfræði og stjórn- sýslu dags. 5. nóvember 2006. Umsögn lögfræði og stjórnsýslu var samþykkt. Endurnýjun Lækjartorgs Lagt var fram á fundi skipulags- ráðs bréf borgarstjóra vegna eft- irfarandi bókunar sem samþykkt var að vísa til skipulagsráðs. “Borg- arstjórn samþykkir að leitað verði samstarfs við Landsbankann/ Landsafl um endurskipulagningu og endurnýjun Lækjartorgs í kjölfar uppkaupa Landsbankans/Landafls á Hafnarstræti 20. Þannig má nýta þau einstöku tækifæri sem skapast við niðurrif hússins til að tengja saman gamla miðbæ Reykjavíkur og hið nýja austurhafnarsvæði þar sem nýjar höfuðstöðvar Lands- bankans og hið glæsilega Tónlist- ar- og ráðstefnuhús munu rísa á næstu árum.” Tillögunni var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Kröfu um ógildingu deiliskipulags Skildinganess hafnað Lagður var fram úrskurður úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 14. nóvember 2006 á fundi skipulagsráðs, varð- andi kæru vegna breytts deiliskipu- lag Skildinganess. Úrskurðarorð var það að hafnað var kröfu kærenda um ógildingu á samþykkt skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur frá 18. febrúar 2004 um breytt deiliskipulag Skildinga- ness, sem staðfest var í borgarráði hinn 24. febrúar 2004. 2 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík Sími: 511 1188 • 561 1594 Fax: 561 1594 Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933 Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298 Netfang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson Umbrot: Valur Kristjánsson Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: Íslandspóstur 12. tbl. 9. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í Vesturbæ og Miðbæ. S T U T T A R B O R G A R F R É T T I R F regnir berast nú af því að jólagjöfin í ár sé pels. Það hljómar sérkennilega í ljósi þeirra staðreynda að mikill meirihluti lands-manna hefur ekki efni á slíkum munaði, en það staðfestir að launa- munur í landinu fer hraðvaxandi. Sumir þurfa á aðstoð að halda til að geta haldið jól og haft til hnífs og skeiðar og þar er Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að vinna þakklátt starf í samstarfi við Hjálparstarf kirkj- unnar. Jóhannes Jónsson í Bónus afhenti í vikunni mæðrastyrksnefnd og Hjálparstarfi kirkjunnar gjafabréf upp á 21 milljón króna. Þeir mat- arpakkar eru til styrktar þeim sem oft mega sín minnst í þjóðfélaginu. Sannarlega má segja um þessar gjafir að sælla er að gefa en þiggja. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og Hjálparstarf kirkjunnar munu veita sameiginlega jólaaðstoð í desember um allt land. 1.400 heimili leituðu til hjálparstarfsins fyrir síðustu jól, en starfsmenn þess verða í Sætúni 8 í Reykjavík fyrir þessi jól. Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstarfi kirkj- unnar segir starfið fari fram um allt land. Matarkassar séu sendir fólki úti á landi og þá sérstaklega um jólin. Umburðarlyndi í umferðinni Þær fregnir berast nú þegar mesta skammdegið er að hellast yfir landsmenn um að fólk sé að látast í umferðarslysum. Þetta eru alltaf skelfilegar fregnir. Of oft er orsök þessara slysa glannaakst- ur, ekið yfir óbrotna línu á miðju vegar eða stöðvunarvarskyldu ekki sinnt, og slíkt er auðvitað ekki hægt að líða. Íslendingum skortir oft umburðarlyndi í umferðinni og gætu margt lært af öðrum Norðurlanda- búum í þeim efnum, ekki síst Dönum. Það væri verðugt áramótaheit að strengja þess heit að sýna öðrum ökumönnum umburðarlyndi á nýju ári. Jólahátíðin J ól hefjast aðfarakvöld 25. desember. Þau eiga sér á norðurslóðum ævaforna sögu tengda vetrarsólhvörfum. Nafnið er norrænt, og er einnig til í fornensku. Frummerking þess er óljós. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær jól voru haldin í heiðnum sið, sennilega með fullu tungli í skammdeginu. Ekki vita menn heldur hvernig þau voru haldin, nema að þau voru “drukkin” með matar- og ölveislum. Buðu íslenskir höfðingjar oft fjölmenni til jóladrykkju. Norræn jól féllu síð- ar saman við kristna hátíð. Svipuð kristnun heiðinna hátíða um þetta leyti hafði áður átt sér stað suður við Miðjarðarhaf, og var þá ýmist minnst fæðingar Krists eða skírnar. Á 4. og 5. öld komst sú venja víðast á að minnast fæðingarinnar 25. desember en skírnarinnar og tilbeiðslu vitringanna 6. janúar, og má þangað rekja jóladagana 13 á Íslandi. Helgi aðfangadagskvölds á rót sína í vöku sem almenn var kvöldið fyrir katólskar stórhátíðir enda var oft talið að sólarhringurinn byrjaði á miðjum aftni klukkan sex. Fasta fyrir jól var einnig lögboðin, stundum miðuð við Andrésmessu 30. nóvember, en oftast fjórða sunnudag fyrir jól. Þaðan eru sprottnir aðventusiðir síðari tíma. Mikil þjóðtrú tengist jólum og jólaföstu í miðju íslensku skammdegi. Grýla er þekkt sem flagð frá 13. öld og er á 17. - 18. öld barnaæta tengd jólunum. Fyrst fréttist af jólasveinum á 17. öld sem afkvæmi Grýlu og miklu illþýði. Þeir taka nokkuð að mildast á 19. öld, koma þá ýmist af fjöllum eða af hafi, eru oftast 9 eða 13. Spurnir eru af rúmlega sjötíu jólasveinanöfn- um. Seint á 19. öld tekur eðli jólasveina og útlit að blandast dönskum jólanissum annarsvegar en evrópskum og amerískum jólakarli hinsveg- ar. Hvað svo sem segja má um forna jólasiði eru nú tæpar tvær vikur til fæðingahátíðar frelsarans, hátíðar sem miklu fleiri en kristnir menn hafa gert að sinni hátíð. VESTURBÆJARBLAÐIÐ vonar einlæglega að þá ríki friður og eindrægni í hugum fólks og sendir öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur. Gleðileg jól! Geir A. Guðsteinsson Þakklátt starf mæðrastyrksnefnda Vesturbæingar Vesturbæingar ættu að sýna gott fordæmi með auknu umburðarlyndi í umferðinni. Þá eigi fleiri gleðileg jól! DESEMBER 2006

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.