Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Side 5

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Side 5
5VesturbæjarblaðiðDESEMBER 2006 Margt er um að vera í Þjóð- minjasafni Íslands á Melunum og desember er einn viðburðaríkasti mánuður ársins. Jóladagskráin hófst 10. desember sl. með opn- un yndislegrar lítillar jólasýning á Torginu sem nefnist “Sérkenni sveinanna.” Gegnum sýninguna geta börnin áttað sig á því sjálf hvað hin skrýtnu þjóðlegu jóla- sveinanöfn þýða. Á Veggnum stendur yfir ljósmyndasýningin “Hátíð í bæ” með myndum Ingi- mundar og Kristjáns Magnússona af jólahaldi sjöunda áratugar- ins. Þar er ýmislegt sem kemur börnum í jólaskap og fullorðna fólkið ætti að þekkja hina sönnu jólastemmingu bernsku sinnar. Jóladagskrá Þjóðminjasafnsins er alveg sérlega fjölskylduvæn og ekki spurning hvert er best að fara með börnin. Jólasveinarnir byrjuðu að koma sl. þriðjudag þegar Stekkjarstaur lagði af stað af fjöllum. Síðan koma jólasvein- arnir til byggða hver af öðrum og allir líta þeir við í Þjóðminjasafn- inu stundvíslega klukkan 11.00 á hverjum einasta morgni fram að jólum. Það verður meira að segja opið sérstaklega á aðfanga- dag milli kl. 11.00 og 12.00 að taka á móti Kertasníki sem kemur síð- astur! 18 ár eru síðan Þjóðminjasafn Íslands tók sig í fyrsta sinn til og bauð hinum “alvöru” íslensku jólasveinum formlega í heimsókn fyrir jólin. Síðan þá eru þeir orðn- ir fastagestir hjá Þjóðminjasafn- inu en þeir koma alltaf á réttum tíma. Fyrir nokkrum árum rann Grýlu til rifja hvað strákarnir voru tötralega til fara. Þegar Þjóðminja- safnið innti þá eftir þessu sögðust þeir reyndar eiga rauð spariföt sem þeir skiptust á að nota en væru samt í harðri samkeppni við hinn ameríska “gervijólasvein” eins og þeir kölluðu hann. Því fékk Þjóðminjasafnið íslenska hönnuði og handverksfólk til liðs við sig um að gera ný föt handa sveinun- um svo þeir gætu litið sómasam- lega út fyrir jólin. Í framhaldi af því fengu bæði þeir og foreldrar þeirra nýjan alklæðnað frá hvirfli til ilja, úr vaðmáli, gærum, flóka og íslenskri ull. Hinir sönnu jóla- sveinar koma því í Þjóðminjasafn- ið, þeir eru vel klæddir og fötin þeirra íslensk yst sem innst. Jólasveinar í íslenskum fötum í Þjóðminjasafninu alla daga til jóla! Hátíðargleði á Skrúði P IP A R • S ÍA • 6 0 7 3 8 Jólabrunch í hádeginu alla sunnudaga. Verð 2.200 kr. Njóttu aðventunnar í notalegu umhverfi á Skrúði. Jól á öllum borðum í hádeginu og á kvöldin. Verð 5.200 kr. á kvöldin og 3.200 kr. í hádeginu. Hefst 24. nóvember. Borðapantanir í síma 525 9970. Það er margt að sjá í Þjóðminjasafninu þó það tengist ekki jólum, s.s. baðstofu eins og þær tíðkuðust fyrr á öldum. Jólatónleikar tónskólans Do Re Mi, sem er með höfuðstöðvar í Frostaskjóli, voru haldnir sl. laugardag. Það voru mjög fjöl- breyttir og metnaðarfullir tón- leikar þar sem margt efnilegt tónlistafólk kom fram. Tónskólinn Do Re Mi hóf starf- semi árið 1994. Hann hefur síð- an stöðugt verið að auka umsvif sín, og nemendafjöldi fer stöðugt vaxandi. Vilberg Viggósson, skóla- stjóri, segir að verið sé að auka tónlistakennsluna í grunnskólun- um á morgnanna en alls stunda um 210 nemendur nám í Do Re Mi og kennarar eru 18 talsins. Nýlega var samið um það að Do Re Mi tæki við allri tónlistarkennslu í Landakotsskóla, og þar með er skólinn í samstarfi við alla grunn- skólana í Vesturbænum. Vilberg Viggósson skólastjóri segir að það sé langtímamarkmið að leikskólarnir fái ákveðið tón- listaruppeldi, þar er framtíðin og áhrifaríkast að byrja sem fyrst. En fyrst þurfi að endurskipuleggja tónlistarnám í forskólanum og samræma það því tónlistarnámi sem við taki þegar börnin komi í grunnskóla. Do Re Mi í Neskirkju Nemendur forskóla tónskólans Do Re Mi leika lagið “Jólaljós” við upphaf jólatónleika skólans í Neskirkju. Gleðileg jól og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Þar sem besta krydd í heimi fæst! Leiðrétting. Þau leiðu mistök áttu sér stað í síðasta Vesturbæjar- blaði að nafn eiganda Salon Reykjavík á Grandagarði mis- ritaðist í myndatexta, átti það að vera Arnar Tómasson. Beðist er velvirðingar á þeim mistökum.

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.