Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Side 10

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Side 10
Nú standa Seltirningar og Vestur- bæingar andspænis miklum breyt- ingum á lífsgæðum ef verslun Bón- us fer af Seltjarnarnesi. Þetta er mat Arnþórs Helgasonar og Bjarna Dags Jónssonar. Eins og skipulagið hefur þróast er nú aðeins gert ráð fyrir íbúðabyggð á Hrófsskálameln- um. Samkeppnin sem haldin var um skipulag á Melnum fyrir nok- krum árum gerði ráð fyrir bland- aðri byggð, íbúðum og þjónustu- fyrirtækjum. Það skipulag hefur verið lagt til hliðar. Lóðin er nú í eigu Íslenskra aðalverktaka og þeir hafa einungis leyfi til að reisa þar íbúðarhúsnæði. Má segja að verslunarrekstur hafi verið skipu- lagður út af Melnum og út úr bæj- arfélaginu. Þess vegna hefur Þyrping sótt um að fá að gera 2,2 hektara land- fyllingu út frá Norðurströnd, m.a fyrir Bónus verslun, Hagkaup og fleiri þjónustufyrirtæki. Um leið verður bílaumferð létt af Nesvegi sem er fyrst og fremst íbúðagata og stórlega dregur úr umferð um Eiðistorgið, íbúum til hagsbóta. Þeir sem hafna landfyllingunni og nýrri verslunar- og þjónustu- miðstöð hafa margir ekki áttað sig á þessu: að Bónus er að öllu óbreyttu eftir niðurstöðu skipu- lags- og mannvirkjanefndar að hætta starfsemi á Seltjarnarnesi. Engar lóðir eru til í bænum fyrir sambærilega verslun, ekki heldur í vesturhluta Reykjavíkur. Þess vegna hefur verslunarfyr- irtæki, sem er ár eftir ár kosið vinsælasta fyrirtæki á Íslandi og hlaut neytendaverðlaun Neytenda- samtakanna 2006, verið hafnað af forráðamönnum Seltjarnarnesbæj- ar og einhverjum hópi íbúanna. Er þetta skynsamleg niðurstaða, spyrja þeir Arnþór og Bjarni Dag- ur, sem jafnframt velta vöngum yfir því hvort framfarasinnaðir íbú- ar á Nesinu eigi að ráða ferðinni eða þessi fræga Framkvæmda- Varnar-Nefnd Seltjarnarness! Ef verslun Bónus fer af Nesinu verður um langan veg að fara í næstu Bónusverslun, s.s. upp á Laugaveg 59, inn í Holtagarða, Skútuvog eða í Kringluna. 10 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2006 Af hverju Framnesvegur? Nöfn gatna í Reykjavík, og þar með Vesturbæ, eiga sér oft skýringar eða forsendur, en ekki alltaf. Stundum eru götur á ákveðnu svæði kenndar við ein- hver samheiti, t.d. trjátegundir, eins og Víðimelur, Reynimelur, Birkimelur eða Furumelur, eða við öldur hafsins eins og Öldu- gata, Bárugata, Ránargata, Drafn- arstígur eða Unnarstígur. Framnesvegur er í Vesturbæ Reykjavíkur. Þegar farið var vest- ur á Seltjarnarnes forðum var það kallað að fara fram á Nes. Aðalleið- in var því nefnd Framnesvegur og var í framhaldi af Vesturgötunni. Gatan tengdi saman Vesturgötu og Bráðræðisholtið en síðan lá leiðin um Eiðsgranda og fram eftir. Við Framnesveg 3 reisti Þor- steinn Sveinsson, járnsmiður, smiðju 1875 og fljótlega reis þar íbúðarhús. Við Framnesveg 4 reisti Oddgeir Björnsson steinbæ 1864. Var hann jafnan við hann kenndur og nefndur Oddgeirsbær, en hann var rifinn 1977. Einn kunnasti sjó- sóknari í Vesturbænum á sinni tíð, Þórður Pétursson stjúpsonur Odd- geirs, bjó lengi í Oddgeirsbæ. 1891 reisti Snæbjörn Jakobsson, stein- smiður, steinbæ við Framnesveg 9 og var hann nefndur Framnes. Við Framnesveg. AUGL†SINGASÍMI 511 1188 895 8298 Tillaga Þyrpingar af landfyllingunni og Eiðistorginu. Þverrandi lífskjör í Vesturbæn- um við brotthvarf Bónuss! Óskum öllum gleðilegra blóma-jóla og glitrandi nýs árs Starfsfólk Blómagallerís Hagamel 67

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.