Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Page 12
12 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2006
Gert er ráð fyrir nærri 14 mil-
ljarða króna afgangi af rekstri
borgarsjóðs 2007. Frumvarp
að fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar var nýlega kynnt af
borgarstjóra, Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni, en gert er þar ráð
fyrir rúmlega 13,7 milljarða
króna rekstarafgangi á næsta
ári samanborið við rúmlega 1
milljarðs króna halla á þessu ári.
Áætlað er að skatttekjur hækki
en rekstargjöld lækki miðað við
yfirstandandi ár.
Heildartekjur A-hluta eru
áæt laðar 52 .174 mi l l jónir
króna samanborið við 49.110
milljónir á þessu ári, sem er 6,2%
hækkun milli ára. Rekstrargjöld
fyrir fjármagnsliði eru áætluð
50.593 milljónir samanborið við
52.799 milljónir á þessu ári sem
er 4,2% lækkun milli ára. Breyting
á lífeyrisskuldbindingu vegna sölu
á eignarhlut borgarinnar í Lands-
virkjun vegur þyngst í þessu sam-
bandi.
Borgarstjóri segir að fjárhags-
áætlunina endurspegla nýjar
áherslur í rekstri Reykjavíkur-
borgar og þann skýra vilja til
breytinga sem fram hafi komið
í niðurstöðum síðustu kosnin-
ga og hún endurspegli að nýr
meirihluti hafi tekið við völdum
í Reykjavík. Þessi fjárhagsáætlun
einkennist þannig af kröfunni um
aukna ábyrgð í fjármálum og
aukinn árangur við rekstur bor-
garinnar þannig að Reykjavíkur-
borg verði enn betri borg.
Ný íbúða- og
atvinnusvæði
“Fjárhagsáætlunin endur-
speglar stóraukna áherslu á
uppbyggingu í borginni og þann
eindregna vilja nýs meirihluta
að tryggja að allir sem það vilja
eigi þess kost að byggja, búa og
starfa í Reykjavík. Ný íbúðah-
verfi, ný atvinnu-svæði, samhliða
uppbyggingu á eldri svæðum
er merki þessara nýju áherslna,
auk þess sem fjárhagsáætlunin
endurspeglar nýjar lausnir í sam-
göngumálum, stóraukna áherslu
á gæði og fegrun þess umh-
verfis sem við búum í. Fjárhag-
sáætlunin endurspeglar einnig
nýja tíma í mál-efnum barna og
fjölskyldna í borginni. Þannig hafa
leikskólamálin og málefni yngstu
íbúanna nú fengið aukna athygli,
auk þess sem leikskólagjöldin
hafa lækkað verulega. Þjónusta
við grunnskólabörn er efld og
sérstök áhersla verður lögð á
betri aðstöðu barna og unglinga
í borginni til útivistar og tómstun-
da,” segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son borgarstjóri.
Í fjárhagsáætluninni er kynnt
frístundakort sem tryggja mun
öllum börnum, óháð efnahag
foreldra, aðgang að uppbyggilegu
tómstundastarfi. Þessi fjárhags-
áætlun endurspeglar einnig þann
mikla metnað sem nýr meirihluti
hefur í málefnum eldri borgara.
Fjárhagsþróun í rétta
átt - jákvæð peningaleg
staða
Fjárhagsáætlunin sýnir að skul-
dir umfram peningalegar eignir
(hreinar skuldir) sjóða í A-hluta
Reykjavíkurborgar lækka um 28,2
milljarða króna og peningaleg
staða að undanskilinni lífeyris-
skuldbindingu verður 4,6 millj-
arðar króna en þar er í fyrsta sinn
í mörg ár sem sú stærð er jákvæð.
Sjóðir í A-hluta sýna hagnað að
fjárhæð 13,7 milljarða króna. Þar
munar mestu um hagnað af sölu
á eignarhlut Reykjavíkurborgar
í Landsvirkjun en ákvörðun nú-
verandi borgarstjórnarmeirihluta
um söluna hefur afgerandi áhrif
á rekstur og stöðu borgarinnar í
náinni og fjarlægri framtíð.
Með sölunni á eignarhlutanum
í Landsvirkjun næst að lækka
lífeyrisskuldbindingu borgarinnar
sem leiðir til þess að rekstrargjöld
Aðalsjóðs og ráðstöfun skatttekna
til lífeyrisgreiðslna munu lækka
verulega í framtíðinni. Með þes-
sari ákvörðun hefur fjárhagsstaða
borgarinnar verið treyst og við
það skapast aukið svigrúm til
athafna. Launakostnaður er
stærsti einstaki kostnaðarliðurinn
í rekstri borgarinnar og er sá kost-
naður sem hefur vaxið hve mest
á undanförnum árum. Að með-
talinni breytingu á lífeyrisskuld-
bindingu á milli ára nemur launa-
kostnaður í áætlun ársins 2007
um 67,8% af skatttekjum.
“Kjarasamningar sem gerðir
voru í kr ingum áramótin
2005 og 2006 leiddu til mikilla
launahækkana og hækkunar á
lífeyrisskuldbindingu sem veldur
því að launakostnaður að meðta-
linni breytingu á lífeyrisskuldbind-
ingu er um 81% af skatttekjum
ársins 2006. Þrjú árin þar á undan
var launakostnaður að jafnaði
um 73% af skatttekjum. Salan á
eignarhlutnum í Landsvirkjun
hefur því af-gerandi áhrif bæði á
fjárhagsstöðu og kostnaðarþróun
í rekstri borgarinnar,” segir borg-
arstjóri.
Markmið fjárhagsáætlunar
Reykjavíkurborgar er að gera enn betri borg
Borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, kynnir fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2007.
Thorvaldsensfélagið var stofn-
að 19. nóvember 1875 og er því
elsta kvenfélag landsins. Það
hefur alla tíð haft mörg járn í
eldinum við fjáröflun, svo sem
rekstur Thorvaldsensbazars í
Austurstræti 4, útgáfu og sölu
jólamerkja, jólakorta, gjafakorta
og minningarkorta. Einnig hefur
félagið útgáfu- og dreifingarrétt
á bókinni Karíus og Baktus, eftir
Torbjörn Egner, á Íslandi. Thor-
valdsensfélagið hefur alla tíð
borið hag barna fyrir brjósti, lét
meðal annars byggja vöggustofu
árið 1963 og dagheimili 1968
sem félagið gaf til borgarinnar.
Í áraraðir hefur Thorvaldsens-
félagið styrkt barnadeildina sem
var á Landakoti og síðar á Land-
spítalnum til tækjakaupa og ann-
arra hluta er þörf hefur verið á,
en eftir að þær voru lagðar niður
stofnaði félagið sérstakan sjóð við
Barnaspítala Hringsins til styrktar
sykursjúkum börnum og ungling-
um með 10 milljón króna framlagi.
Félagið styrkir einnig fjölskyldur
veikra barna, unglingastarf, vímu-
varnir á vegum félagsins Vímu-
laus æska og margs konar lands-
safnanir.
Guðrún Jónsdóttir, ritari félags-
ins og meðlimur í kortanefnd, seg-
ir að basarinn í Austurstræti sé
opinn alla daga en þessa dagana
leggi félagskonur sérstaka áherslu
á sölu jólakorta en kortið er prýtt
mynd eftir listakonuna Kristínu G.
Gunnlaugsdóttur. Ennfremur sé
verið að selja jólamerki, en það
prýðir sama mynd og jólakortið.
Full ástæða er til að hvetja fólk til
að styðja starfsemi Thorvaldsenfé-
lagsins með kaupum á jólakortum
og jólamerkjum.
Á innsíðu kortsins má m.a. lesa
ljóð eftir sr. Hjálmar Jónsson.
Fyrsta erindið er svohljóðandi:
Svalt er á heimsins hjarni
og hverfandi skjól
en lífið brosir við barni
sem birtist um jól.
Jólakortasala Thorvaldsensfélags-
ins til styrktar veikum börnum
Guðrún Jónsdóttir, ritari Thorvaldsensfélagsins, með jólakort sem
félagið hefur nú til sölu.