Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Qupperneq 14
14 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2006
Vesturbæingurinn Njörður P.
Njarðvík hlaut Verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar 2006, en verðlaun-
in voru afhent á degi íslenskrar
tungu, 16. nóvember sl. Það var
menntamálaráðherra, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, sem afhenti
þau við hátíðlega áthöfn í Hjalla-
skóla í Kópavogi. Verðlaunin hlýt-
ur sá Íslendingur sem þykir hafa
með sérstökum hætti hafa unnið
íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti,
með skáldskap, fræðistörfum eða
kennslu, og stuðlað að eflingu henn-
ar, framgangi eða miðlun til nýrrar
kynslóðar.
Verðlaunahafinn, Njörður P.
Njarðvík, segist fyrst hafa orðið
undrandi, en jafnframt stoltur, enda
líta hann á verðlaunin sem mikinn
heiður. Njörður segist hafa áhyggj-
ur af “amerísku eftirhermusótt-
inni”, þ.e. þegar notuð eru amerísk
orð í stað góðra og gildra íslenskra
orða. Hann telur einnig að margt
fjölmiðlafólk sýni íslenskri tungu
mikið skeytingaleysi.
Njörður kenndi íslensku við
Háskóla Íslands frá 1971 til 2004
og hefur varið ævistarfinu til rann-
sókna á íslenskri tungu og bók-
menntum. Eftir hann hafa komið út
fjöldi bóka og pistla. VESTURBÆJ-
ARBLAÐIÐ óskar Nirði til hamingju
með verðlaunin sem hann er mjög
vel að kominn.
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar
til Vesturbæings
Síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum til Evrópu
er fimmtudagurinn
á jólakortum innanlands
er miðvikudagurinn
14.12.
20.12.
www.postur.is
Komdu tímanlega
Finndu pósthúsið næst þér á
með jólakortin
Sjálflíman
di
og sjálflýs
andi
jólafrímer
ki
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
P
34
58
11
1/
06
Háskólakórinn gaf á dögun-
um út geisladisk, Í hendi þinni.
Er þessi diskur sá þriðji sem kór-
inn hefur út á þeim rúmu þrem-
ur áratugum sem kórinn hefur
verið starfræktur. Á disknum er
fjölbreytt úrval íslenskra verka
fyrir blandaða kóra. Á disknum
syngur kórinn bæði þjóðlög og
lög sem hafa skipað sér fastan
sess meðal þjóðarinnar sem nokk-
urs konar þjóðlög, svo sem vísur
Vatnsenda-Rósu, Krummavísa og
Maístjarnan. Einnig eru á diskn-
um ný verk sem ekki er vitað til
að hafi verið hljóðrituð áður svo
sem Sonnetta eftir Jón Ásgeirsson
og Kór þokkadísanna eftir Kjartan
Ólafsson.
Stjórnandi kórsins er Hákon
Leifsson.
Diskinn má nálgast í Tólf tónum
og einnig hjá kórfélögum með því
að senda tölvupóst á netfangið;
kor@hi.is. Verð er 2000 kr.
Í hendi þinni
Í hendi þinni
Háskólakórinn
Háskólakórinn
AUGL†SINGASÍMI
511 1188 & 895 8298