Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 17

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 17
inn. Það voru ekki margir krakk- ar að spila tennis, en þetta var á kreppuárunum og mig langaði að vinna í fiski eins og margar vinkon- ur mínar gerðu en pabbi sagði nei við því, ég mætti ekki taka vinnu frá þeim sem þyrftu og væru í meiri þörf fyrir launin. Ég sigraði í einmenningskeppninni en með Frissa í Ási í tvímenningskeppninni en með Önnu Claessen í tvimenn- ingi kvenna. Um haustið fór ég til náms í Danmörku svo ekkert varð meira af tennisiðkun.” Hvaðan ertu, ertu að vestan? oft er spurt um það sunnan, vestan eða austan ættbogann skal hafa traustan. Nánast alltaf fullt hús - Faðir þinn, Pétur Halldórsson, var mjög áberandi í þjóðlífinu á uppvaxtarárum þínum og reyndar lengur. Var mikið um gestagang á heimilinu? “Það var eiginlega alltaf fullt hús. Pabbi áttu systur sem bjó í Grund- arfirði og alltaf þegar hún kom í bæinn bjó hún hjá okkur og auk þess voru þrjú börn hennar oft hjá okkur, ekki síst þegar þau voru hér í Reykjavík í skóla. Heimið okkar var eins og miðstöð, ekki síst fyrir erlenda vini þegar þeir komu til Reykjavíkur. Pabbi var bæjarstjóri síðustu fimm ár ævinnar, en hann var þá kominn með lungnaberkla en reykti samt eins og strompur, enda var hann mikill nautnamað- ur. Þá minntist enginn á það hvað reykingar gætu verið hættulegar. Í minningunni man ég eftir honum í reykskýi ekki síst þegar einhverjar karlar voru í heimsókn hjá honum, og þeir reyktu kannski allir. Í bernsku skildi ég ekki að sumt fólk ætti varla til hnífs og skeiðar, enda liðum við engan skort. Ég fylltist djúpri samúð með fólki sem ekkert átti. Ég átti tvær vinkonur, önnur var í kjallaranum á Túngötu 40 en hin á Unnarstíg 8. Hún lifði eins og prinsessa enda var hún ein- birni, ég var svo á milli þeirra eins og venjuleg stelpa, en sú í kjallaran- um, Munda, bjó við skort. Kjallara- tröppurnar voru djúpar og brattar, þá kom hurð, og síðan fór maður aftur niður og þar kom örlítil for- stofa. Síðan kom eldhús í örlitlu skoti með eldavél og fleiru nauð- synlegu og þar fyrir innan komið í herbergi sem var bæði stofa og svenherbergi þar sem sex manna fjölskylda bjó. Við Munda vorum lengi vinkonur og lékum okkur á túninu þarna í kring. Þetta var eins og í sveit á vor- in. Þá fórum við vinkonurnar út á túnin að leita að blómum sem voru að koma. Þannig vissum við af hverri einustu plöntu sem var að koma, en við skiptum þeim á milli okkar, ég átti ákveðnar plönt- ur en vinkonurnar enn aðrar. Þegar þær blómstruðu tíndi ég þær og fór með heim til mömmu. Þetta var yndisleg barnæska,” segir Ágústa Pétursdóttir Snæland. Fyrsti íslenski auglýsinga- teiknarinn Félag íslenskra teiknara var stofnað 23. nóvember 1953 á vinnu- stofu Halldórs Péturssonar, bróð- ur Ágústu, að Túngötu 38 í Reykja- vík. Frumkvöðlarnir vou sjö, þeir Ásgeir Júlíusson, Atli Már Árnason, Halldór Pétursson, Jörundur Páls- son, Stefán Jónsson, Tryggva Magn- ússon og Ágústa Pétursdóttur. Ágústa hélt til Danmerkur þegar hún var 18 ára, og nam við Kun- sthåndværkerskolen í Bredgade í Kaupmannahöfn á árunum 1933 til 1936. Hún tók þaðan próf í aug- lýsingateikningu 1936 og vann við auglýsingateiknun á eigin vegum meira og minna frá 1936. Hún er fyrsti lærði auglýsingateiknarinn hérlendis. Ágústa sótti kvöldnám- skeið í tauþrykki við Handíða- og myndlistaskólann og vann að gerð muna úr þorskhausabeinum og fjörugrjóti og ýmiss konar textil- vinnu svo sem batik og tauþrykk á dúka og refla. Hún hefur tekið þátt í sýningum og unnið til verðlauna, meðal annars fyrstu verðlaun í samkeppni um merki Landsvirkjun- ar og fyrir merki Listahátíðar 1969. Einnig teiknaði hún merki barna- spítala Hringsins. Hún hélt sýningu í Hlaðvarpanum 1993, þá 78 ára, ásamt Dóru Halldórsdóttir og Mar- gréti Valgerðardóttir. Það leika það ekki margir eftir. 17VesturbæjarblaðiðDESEMBER 2006 Í útilegu með vinkonununum við Mógilsá 1933. “Varð Tennisdrottning Íslands, en keppt var á svæði á Melavellinum, sunnan við knattspyrnu- völlinn. Það voru ekki margir krakkar að spila tennis, en þetta var á kreppuárunum og mig langaði að vinna í fiski eins og margar vinkonur mínar gerðu en pabbi sagði nei við því, ég mætti ekki taka vinnu frá þeim sem þyrftu og væru í meiri þörf fyrir launin.”

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.