Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Síða 18

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Síða 18
18 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2006 AUGL†SINGASÍMI 511 1188 895 8298 Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatón- leika á síðustu dögunum fyrir jól. Mozart-tónleikar Camerarctica hafa verið fastur liður í aðventu- hátíðinni í yfir áratug og þykir mörgum ómissandi að fá að setj- ast inn í kyrrðina og kertaljósin á síðustu dögum hennar og heyra Camerarctica leika ljúfa tónlist í Dómkirkjunni í Reykjavík. Á þessu ári hefur verið hald- ið upp á að 250 ár eru liðin frá fæðingu Wolfgangs Amadeusar Mozart. Af því tilefni leikur Camer- arctica á upprunahljóðfæri eins og þau sem tíðkuðust á klassíska tímanum, hljóðfæri sem bera með sér andblæ liðinna alda, þegar líf- ið var rólegra og hljóðlátara. Á efnisskránni er eitt frægasta kammerverk Mozarts, Kvartett fyrir flautu og strengi í D-dúr, Ada- gio fyrir klarinett og strengi og Tríó fyrir strengi, einnig eftir Moz- art. Einnig verður leikinn Kvartett fyrir klarinett og strengi eftir sam- tímamann Mozarts Carl Stamitz. Tónleikarnir eru um klukkustund- arlangir og verða í Dómkirkjunni í Reykjavík föstudagskvöldið 22. desember klukkan 21.00. Kammerhópurinn Camer- arctica í Dómkirkjunni að kvöldi 22. desember Það er ekki rétt að segja að uppeldi gangi út á það að taka eftir, refsa, skammast eða rífast yfir neikvæðri hegðun barna okkar. Uppeldi gengur frekar út á að kenna börnum okkar jákvæða hegðun sem hjálpar þeim að blómstra og komast á sem bestan hátt til manns. Við sem foreldrar höfum áhrif á börn okkar, hvort sem við vit- um af því eða ekki, hvort sem við ætlum okkur það eða ekki og á sviðum sem við erum ekki einu sinni meðvituð um. Börn vita ekki endilega sjálf- krafa hvaða hegðun telst æski- leg. Því þarf að kenna þeim hvaða hegðun það er sem for- eldrar og umhverfið telja því fyrir bestu. Ein stærstu mistök- in sem við gerum í uppeldi er að veita ekki athygli og viður- kenningu fyrir æskilega hegðun barnsins okkar. Við foreldrar þurfum að líta í eigin barm og athuga hvaða fordæmi við gefum börnum okk- ar. Þegar við erum að leiðbeina og kenna börnum okkar þarf fyrst að vita hvaða hegðun við viljum sjá hjá þeim. Þá er ekki bara um að ræða hvernig við viljum að barnið hagi sér hér og nú heldur hvers konar hegð- un, framkomu og færnisþætti við viljum reyna að láta festast í sessi til frambúðar. Til að átta sig á þessu þarf því að horfa fram í tímann, ekki bara hugsa um daginn í dag. Þetta er kallað 10 ára áætlunin. Líkt og með flest annað í lífi okkar, er nauðsynlegt að hugsa lengra en aðeins fyrir einn dag í einu. Vel rekin fyrirtæki hafa stefnu og markmið til fleiri ára. Það er ekkert rangt við það að hugsa á sama hátt um uppeldi barna okkar. Þá spyr maður sig: „Hvernig einstaklingur vil ég gjarnan að barnið mitt verði eftir 10 ár? Vil ég t.d. að barnið verði kurteist, geti fylgt reglum í leik og starfi, sé sjálfstæður, hafi heilbrigð- an lífsstíl? Hvaða styrkleikar finnast mér skipta máli?” Þetta gagnast til að ákveða hvaða þætti á að leggja áherslu á að kenna í daglegu uppeldi barns- ins. Næstu skref eru að velta fyrir sér og ákveða hvaða leiðir séu heppilegastar til að kenna hvern þátt. Ekki er ólíklegt að eitt af því sem gera þurfi sé að breyta ein- hverju hjá sjálfum sér, svo sem forgangsröðun, dagskipulagi og síðast en ekki síst, eigin hegðun og framkomu. Að sjálfsögðu getur enginn, hvorki foreldrar né aðrir, ákveð- ið hvernig einstaklingar börnin okkar verða. Og auðvitað þarf að taka tillit til óska, langana og þarfa barnsins, ekki bara for- eldranna. Þó er mjög gagnlegt fyrir foreldra að skipuleggja uppeldið út frá „10 ára áætlun”. Það að hafa sett sér markmið í uppeldinu ætti að auðvelda for- eldrum að taka ákvarðanir um hvaða hegðun þeir vilja ýta und- ir hjá barninu og hvaða hegðun þeir vilja reyna að koma í veg fyrir. Áætlunin hjálpar einnig for- eldrum að sjá mikilvægi þess sem er að gerast í nútíðinni og að skoða sjálfa sig sem uppalendur. “Hvernig fyrir- mynd er ég barninu mínu? Er ég á réttri braut, eða gef ég slæmt fordæmi? Hvar stend ég mig best og hvar verst? Hvað vil ég að barnið læri af mér? Hvað á barnið ekki að læra af mér?” Öll viljum við búa börnum okk- ar það besta, en gleymum ekki að líta í eigin barm. Ánægð börn eiga ánægða foreldra. Það er heldur ekki nóg, sem foreldri, að vera meðvitaður um jákvæða þætti í fari barna okk- ar, heldur líka jákvæða þætti í okkar eigin fari og gleymum ekki að hrósa okkur þegar við sjáum árangur af þeirri vinnu sem við höfum lagt í uppeldi barna okkar. Hvað er uppeldi? Camerarctica skipa þau Hallfríður Ólafsdóttir, flautuleikari, Ármann Helgason, klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðluleikari, Svava Bernharðsdóttir, lágfiðluleikari og Sigurður Halldórsson, selló- leikari. Aðventuhátíð barnanna í Dómkirkjunni Sl. sunnudag var aðventuhátíð barnanna í Dómkirkjunni. Sr. Þorvald- ur Víðisson leiddi stundina ásamt æskulýðsleiðtogum. Unglingakór úr Vesturbæjarskóla söng en börnin tóku svo sannarlega virkan þátt í stundinni. Frá Helgu Arnfríði, sálfræðingi Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Vesturgarði

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.