Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Page 21

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Page 21
21VesturbæjarblaðiðDESEMBER 2006 Um nokkurt skeið hefur af og til verið fjallað í fjölmiðlum um svo nef- nda Vinaleið. Umræðan spratt af því að prestur var ráðinn til að vera til staðar í tiltekn- um skóla á höfuðborgarsvæð- inu og sinna þar sálgæslu ef nemendur vildu tala við hann. Þetta hefur verið gagnrýnt af nokkrum einstaklingum sem telja að verkefnið ógni þeim sem ekki eru kristnir eða gangi á rétt þeirra til að fá að vera í friði með lífsskoðun sína. Meirihluti landsmanna Nú er það staðreynd að um níutíu af hundraði allra skóla- barna tilheyra kristinni kirkju, eru skírð, og því ætti það að vera sjálfsagt fyrir þennan fjöl- menna hóp að hafa aðgang að sálgæslu einstaklings sem er fulltrúi þeirra lífsviðhorfa sem flestir Íslendingar aðhyllast. Öllum er væntanlega ljóst að ekki er gerð krafa um það til kennara eða annarra starfs- manna skóla að þeir gefi upp lífsskoðanir sínar við ráðningu. Foreldrar og nemendur treysta því að kennarar og starfsfólk skóla vinni af heilindum inna ramma grunnskólalaga og gangi ekki á rétt fólks til skoð- anafrelsis. Prestur sem star- far innan skóla fer ekki huldu höfði, heldur liggur það fyrir á hvaða grunni hann starfar. Það ætti að gefa þeim sem ekki eru kristnir enn frekar tækifæri til að varast slíkan starfsmann en ella. Fjölhyggja Fjölhyggja er tiltölulega nýtt hugtak og vísar til þess að í sama samfélagi býr fólk með ólíkar lífsskoðanir. En fjöl- hyggja felur það ekki í sér að allir láti sem þeir hafi enga lífs- skoðun af ótta við að styggja aðra. Fjölhyggjusamfélag þrífst best þegar allir fá að njóta skoðanafrelsis, fá að lifa óáreitt- ir með sína lífsskoðun án þess að þurfa að fara leynt með hana. Hins vegar verða allir að una því að rætt sé um ólíkar lífsskoðanir sé það gert innan þess ramma sem stjórnarskrá- in setur. Í 73. gr. hennar segir meðal annarra orða: “Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar. Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi.” Við þurfum að virða aðra og standa saman jafnvel þótt við séum ekki sammála um allt. Öfgar í tillitssemi gætu til dæmis birst í því að banna all- ar jólaskreytingar og allt tal um kristna trú á aðventu og jólum því allt sem minnir á kristna trú kunni að fara fyrir brjóst- ið á þeim sem ekki eru kristn- ir. Auðvitað gengur slíkt ekki í mannlegu samfélagi. Hér ríkir trúfrelsi sem hlýtur að fela í sér gagnkvæma virðingu fyrir lífsskoðunum annarra, krist- inna gagnvart þeim sem ekki eru kristnir og öfugt. Kristnir menn halda jólin hátíðleg á sama tíma og marg- ir aðrir halda upp á það að skammdegið nær hámarki sínu og birtan sigrar dimmuna. Hvernig fólk fagnar þessum tímamótum er ekki bundið í lög. Við höldum jól með þeim hætti sem við kjós- um sjálf, án afskipta kirkju, trúfélaga eða stjórnvalda svo fremi að við fremjum ekki „neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu” eins og seg- ir í 63. grein stjórnarskrárinnar. Tilboð Það sem trúfélög bjóða upp á um jól og árið um kring eru tilboð sem hverjum og einum er frjálst að þiggja eða hafna. Vonandi eigum við öll góða daga framundan, daga gleði og fagnaðar yfir lífinu sem er undursamlegt í allri sinni fjöl- breytni. Vinaleið er heiti á sér- stöku starfi inna skóla en til er almenn vinaleið sem stend- ur okkur öllum til boða, leið sem hvetur okkur til að vera á vinsamlegum nótum við hvert annað. Öll þörfnumst við vin- áttu og elsku annarra. Trúfrelsi, vinátta, virðing Helgihald í Neskirkju yfir jól og áramót 17. desember - þriðji sunnudag- ur í aðventu. Messa og barnastarf kl. 11.00, félagar úr kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan í safnaðarheimilið. 20. desember - miðvikudagur, fyrirbænamessa kl. 12.15, prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. 24. desember - aðfangadag- ur, jólastund barnanna kl. 16.00, umsjón starfsmenn barnastarfs- ins. Barnakór Neskirkju syngur, organisti Steingrímur Þórhallsson, prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Aftansöngur kl. 18.00, Kór Nes- kirkju syngur, einsöngur Hallveig Rúnarsdóttir, organisti Steingrímur Þórhallsson, sr. Örn Bárður Jóns- son prédikar og þjónar fyrir altari. Messa á jólanótt kl. 23.30, tón- listarhópurinn Rinacente sér um tónlistina. Organisti Steingrímur Þórhalls- son, sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. 25. desember - jóladagur, hátíð- armessa kl. 14.00, Háskólakórinn syngur, Kammerhópurinn Aþena flytur tónlist, organisti Steingrím- ur Þórhallsson, sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. 26. desember - annar í jólum, jólaskemmtun barnanna kl. 11.00, umsjón starfsmenn barnastarfsins. Sögð verður saga, söngvar sungnir, gengið verður í kringum jólatré og gestir koma í heimsókn. Hátíðarmessa kl. 14.00, Litli kór- inn, kór eldri borgara Neskirkju syngur. Stjórnandi og einsöngvari Inga J. Backman, organisti Stein- grímur Þórhallsson, sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. 27. desember - miðvikudagur, fyrirbænamessa kl. 12.15, prestur sr. Örn Bárður Jónsson. 31. desember - gamlársdagur, aftansöngur kl. 18.00, Kór Nes- kirkju syngur, organisti Steingrím- ur Þórhallsson, sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. 1. janúar - nýársdagur, hátíðar- messa kl. 14.00, Kór Neskirkju syng- ur, einsöngur Hrólfur Sæmunds- son, organisti Steingrímur Þórhalls- son, sr. Örn Bárður Jónsson prédik- ar og þjónar fyrir altari. 4. janúar - miðvikudagur, fyrir- bænamessa kl. 12.15, prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. 7. janúar - messa og barnastarf kl. 11.00, félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng, organisti Stein- grímur Þórhallsson, sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í messunni en fara síðan í safnaðarheimilið. ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 3 52 52 1 2/ 06 Hlýjar og bjartar hátíðarkveðjur Takið þátt í jólaleiknum á www.or.is www.or.is E N N E M M / S ÍA / N M 18 0 8 7 ER PABBI DÍLERINN ÞINN? Foreldrar og aðrir fullorðnir mega ekki kaupa áfengi handa börnum yngri en 20 ára. Það er lögbrot. Grjónastólar Skemmtileg gjöf fyrir fólk á öllum aldri Ýmsir litir í sterku leðurlíki Þrjár stærðir. - Öll almenn bólstrun - Antikbólstrun - Bílsætaviðgerðir - Skrifstofustólaviðgerðir H.S.bólstrun Auðbrekku 1 kóp www.bolstrun.is/hs Pantanir í S:544-5750 / 892-1284

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.