Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Síða 22

Vesturbæjarblaðið - 01.12.2006, Síða 22
Árið 1966 unnu KR-ingar sigur í bikarkeppni KSÍ með því að vinna Val í úrslitaleiknum 1-0. Markið gerði Ársæll Kjartansson á 21. mínútu. Með sigrinum varð KR bikarmeistari í sjötta sinn á sjö árum. Fyrsta mark Ársæls fyr- ir meistaraflokk KR færði félag- inu bikarmeistaratitilinn. Annað mark hans fyrir meistaraflokkn- um færði félaginu Íslandsmeist- aratitilinn árið 1968 en þriðja mark Ársæls, í bikarleik gegn b-liði FH, vó ekki jafn þungt og hin tvö. Þjálfarar KR og Vals voru bræð- urnir Guðbjörn og Óli B. Jónsson - Guðbjörn var þjálfari KR en Óli þjálfaði Val. Það á sér ekki hlið- stæðu að bræður hafi þjálfað liðin sem léku til úrslita í Bikarkeppni KSÍ. Markatala KR-inga var 14- 0 í þremur leikjum og var það í fyrsta sinn sem félag sigraði í bik- arkeppni KSÍ án þess að fá á sig mark. Keflvíkingar léku þetta eftir KR-ingum á þessum áratug með markatöluna 9-0 í fimm leikjum. Úrslitaleikurinn fór fram á Mela- velli eins og aðrir bikarúrslitaleik- ir frá 1960 til 1972. Allir leikmenn KR þetta árið voru uppaldir í Vest- urbænum og KR að einum undan- skildum sem kom frá Akranesi, en settist að í Vesturbænum. KR-ingum gekk ekki eins vel í Íslandsmótinu árið 1966, urðu í 4. sæti af 6 liðum með 10 stig og markatöluna 13-6. Valsmenn urðu Íslandsmeistarar með 14 stig, fengu jafnmörg stig og Keflvíking- ar en þar sem markamismunur gilti ekki urðu liðin að leika auka- leik um Íslandsmeistaratitilinn. Þeir urðu reyndar tveir, því fyrri leikurinn 25. september fór 2-2 en seinni leikur 2-1 fyrir Val, en hann var leikinn 2. október. ÍBA varð í 3. sæti, Skagamenn í 5. sæti en Þróttur Reykjavík í botnsætinu. Langt síðan Heil 40 ár eru liðin síðan og gam- an að rifja upp hvað þá var að gerast í íslensku þjóðlífi. Danskur maður gaf íslensku þjóðinni hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmanna- höfn; frumvarp ríkisstjórnarinnar um ábræðslu í Straumsvík sam- þykkt á Alþingi; Ríkissjónvarpið hefur útsendingar og loðna veidd til bræðslu í fyrsta sinn. Englendingar urðu heimsmeist- arar í fótbolta en þá mátti m.a. sjá í bresku pressunni að góðir útherjar hafi verið taldir gulls ígildi á Englandi, allt frá 1900 og fram á miðjan sjöunda áratug- inn, en þá breyttist leikskipulag flestra liðanna þar í landi á þann veg, að hinir eiginlegu kantmenn hurfu næstum úr sögunni, enda var fleiri mönnum „hrúgað” inn á miðsvæðið á kostnað þeirra. Var enska landsliðið, sem vann heims- meistaratitilinn árið 1966, til dæm- is kallað „The Wingless Wonder”, eða útherjalausa undrið. Hvaða leikaðferð var notuð á Íslandi þetta sumar skal ósagt látið. 22 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2006 Ý M I S Þ J Ó N U S T A Hreinsum allan fatnað, sængur, millidýnur og gardínur á athyglisverðu verði. EFNALAUGIN DRÍFA Hringbraut 119 • Rvk. ÖLL ALMENN PRENTUN SÍMI 561 1594 895 8298 HRÓLFSSKÁLAVÖR 14 NETFANG: NES@ISHOLF.IS AUGL†SINGASÍMI 511 1188 895 8298 Netfang: borgarblod@simnet.is borgarblod.is Bikarmeistarar KR 1966 unnu Val í úrslitaleik á Melavellinum Stjórn Körfuknattleiksdeildar KR ákvað í haust í samvinnu við Sjötta Manninn og Unglingráð að efna til leiks þar sem heppnum iðkanda gefst tækifæri til að vinna ferð fyrir tvo á leik í NBA deild- inni vorið 2007. Markmiðið er að skapa öfluga stemmingu meðal þeirra sem koma að starfi deild- arinnar. Með samstilltu átaki er hægt að skapa frábæra umgjörð í kringum meistarflokk karla. Að fara á góðan körfuboltaleik út í KR er bæði mjög gaman og eyk- ur áhuga og skilning á íþróttinni. Ekki má vanmeta þau tengsl sem geta skapast milli barns og for- ráðamanna. Að hafa sameiginlegt áhugamál er ómetanlegt í allri þeirru flóru sem er á boðstólun- um í dag. Dregið verður úr kúlun- um sem iðkendur safna saman í lok tímabilsins. Reglur leiksins eru þessar helst: • Allir þeir sem hafa greitt árs- gjald hjá körfuknattleiksdeildinni hafa þátttökurétt. • Iðkandi fær 3 kúlur fyrir að mæta á heimaleik á tímabilinu sem leikurinn stendur yfir, það eru allir heimaleikir KR í Íslands- mótinu og Bikarkeppni KKÍ. • Iðkandi skrár sig til leiks hjá starfsmönnum leiksins inní keppn- issal. • Ef iðkandi mætir í KR-búning á leikinn fær hann aukakúlu. Körfuknattleiksdeild KR kynnir NBA Lottery Bikarmeistarar KR 1966 mættu í KR-heimilið fyrir bikarúrslitaleik KR gegn Keflavík í haust og rifjuðu upp gamla tíma. Ekki tókst þeim þó að fagna sigri í haust því Keflavík varð bikarmeistari með 2-0 sigri. Fjarverandi voru Ellert Schram og Bjarni Felixson en þrír eru látnir, þeir Baldvin Baldvinsson, Einar Ísfeld og Hörður Markan. KR vann Val í úrslitaleik bikarkeppni KSÍ 1966. Hér eru þeir sigurreifir með bikarinn á Melavellinum. Í haust byrjuðu æfingar í Tae- kwondo í Vesturbænum. Æfing- ar fara fram í íþróttasal Vestur- bæjarskóla á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 16.00 og 17.00. Æfingarnar eru ætlaðar fyrir bæði kynin og einkum fyrir aldurshópinn 9 til 12 ára. Kenn- ari er Sigursteinn Snorrason. Þessar Taekwondoæfingar eru samstarfs- og tilraunaverkefni KR og Taekwondosambands Íslands. Taekwondo er ein vinsælasta bar- dagaíþróttin í dag, upprunnin í Kóreu, og því áhugavert að sjá hvernig viðtökur íþróttin fær með- al barna í Vesturbænum. Elstu heimildir um stundun bar- dagalista sem rekja má til Tae- wondo eru um 2000 ára gamlar. Tilgangur bardagalista í dag er nær því að vera mannrækt frekar en hernaðarlist. Með ástundun bardagalista eins og Taekwondo öðlast fólk betri heilsu og aukið jafnvægi í lífið. Hvort tveggja bráð- nauðsynlegt í hröðu nútímaþjóðfé- lagi. Um 600 milljónir manna æfa í dag Taekwondo á heimsvísu. Taekwondo í íþróttasal Vesturbæjarskóla Opnunartímar verða þessir eða þeir sömu og í fyrra: 28.12. - 30.12. opið frá 9-22 31.12. opið frá 9-16 6.1.´07 opið frá 13-21 1 sölustaður, KR-heimilið við Frostaskjól. KR-flugeldar

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.