Allt um íþróttir - 01.05.1951, Blaðsíða 5

Allt um íþróttir - 01.05.1951, Blaðsíða 5
Þetta eru dönsku millivegalengdahlaup- ararnir, sem kepptu hér í landskeppn- inni í fyrra. Poul Nielsen og Erik Jör- gensen heita þeir. Haukur, sem hljóp með Emi, og heyrzt hefur, að hann æfi grinda- hlaupið betur núna en áður, og ef það reynist rétt, er óhætt að bóka tvöfaldan sigur. Það verður erfitt að komast upp á milli Norðmann- anna í 400 m. grhl., en ekki er það samt alveg vonlaust. Við skul- um segja, að þeir vinni okkur tvö- falt, en vonum, að Ingi komi í veg fyrir það. Eftir þessari ágizkun fá Norðmenn 63 stig fyrir hlaupin, en íslendingar 61. Snúum okkur nú að stökkunum, en þar verður baráttan miklu harð- ari. Langstökkið vinnst tvöfalt, það er nokkuð öruggt, ef ekkert slys kemur fyrir. Stangarstökkið verður skemmtilegt og tvísýnt, og þó að Kaas eigi betri árangur en Torfi í fyrra, þá er það þó nærri öruggt, að Torfi sigrar, því að Kaas er búinn með sitt bezta og kominn í afturför. Torfi er aftur á móti ungur og í framför, svo að ekki sé talað um keppnisskap hans. Skúli á að vera öruggur með há- stökkið, en líklega kemst Sigurð- ur ekki nema í fjórða sæti. Það er töluverð óvissa með þrístökkið og erfitt að spá um úrslit þar, og við skulum ekki vera of bjartsýn, þessvegna aðeins annað og fjórða sæti þar. Fyrir stökkin fáum við 24 stig, en Norðmenn 20. í köstunum getur margt óvænt komið fyrir, sem kannske gerir út um keppnina. Huseby vinnur auð- vitað kúluvarpið með yfirburðum, en keppnin um annað sæti verður geysihörð. Þó að bezti Norðmað- urinn sé með betri árangur en Vil- Ivar Ramstad, norski methafinn í kringlukasti. IÞRÓTTIR 149

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.