Aldan - 23.09.2014, Side 8
23. SEPTEMBER 2014aldan8
MAREL kynnir nýja kynslóð vinnslulína fyrir hvítfisk
Í ár kynnir Marel næstu kynslóð
vinnslulína fyrir hvítfisk, FleXicut,
sem nýlega vann nýsköpunarverð-
laun á Nor-Fishing sjávarútvegs-
sýningunni í Noregi. FleXicut
notar háþróaða röntgentækni til að
greina beingarð í hvítfiski og sker
beingarðinn burt með vatnsskurði
af mikilli nákvæmni og hlutar flakið
niður. Auk þess kynnir Marel Innova,
framleiðsluhugbúnaðinn sem gerir
framleiðendum kleift að hámarka
nýtingu og afköst, uppfylla gæða-
kröfur og tryggja matvælaöryggi. Á
sýningarbás Marel á sjávarútvegs-
sýningunni verða sérfræðingar og
ráðgjafar í fiskiðnaði sem veita ráð
um tækninýjungar í fiskvinnslu,
þjónustusamninga og lausnir sem
hentar öllum sem eru í fiskvinnslu.
Happastund
Á fimmtudag og föstudag milli 16.00
og 17.00 býður Marel í Happastund í
tilefni af opnun Progress Point, nýs
sýningarhúss Marels í Kaupmanna-
höfn. Í Progress Point fá viðskipta-
vinir Marel tækifæri til að kynnast
frá fyrstu hendi hvernig tæki, kerfi
og lausnir Marel geta hjálpað þeim að
bæta nýtingu, auka arðsemi og skapa
þannig meiri verðmæti í sínum iðnaði.
Starfsmenn Marel hvetja sýningargesti
til að koma og upplifa sanna danska
stemmingu með Kim Larsen, Carls-
berg, ákavíti og smørrebrød svo fátt
eitt sé nefnt. Þeir sem skrá sig rafrænt
í Happastund eiga kost á vinningum,
meðal annars flug og gistingu á við-
burð að eigin vali í Progress Point í
Kaupmannahöfn 2015.
Sýningarbás MAREL á sjávarútvegssýningunni 2011. Þar var oft margt um manninn og eins má gera ráð fyrir tölu-
verði umferð þar á sýningunni nú. FleXicut.
„Rekstur Samherja árið 2013 gekk
að mörgu leyti vonum framar“
- segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja
Hagnaður ársins 2013 hjá Samherja á
Akureyri nam tæpum 22 milljörðum
króna. Hagnaður af sölu eigna 8,1
milljarðar króna. Samherji greiðir
1,7 milljarð króna í tekjuskatt til
Ríkissjóðs
■ Hagnaður ársins tæpir 22 milljarðar
króna.
■ Hagnaður af sölu eigna 8,1 milljarðar
króna.
■ Samherji greiðir 1,7 milljarð króna í
tekjuskatt til Ríkissjóðs Íslands og 1
milljarð í veiðileyfagjald, samtals 2,7
milljarða.
■ Tæpur helmingur af starfsemi Sam-
herja samstæðunnar er erlendis.
■ Félög Samherja starfa í ellefu löndum,
gera upp í níu mismunandi gjald-
miðlum. Samherji hf. er eignarhalds-
félag um eignarhluti í dóttur- og
hlutdeildarfélögum sem flest tengjast
sjávarútvegi og vinnslu afurða hér-
lendis og erlendis. Rekstur útgerðar
og fiskvinnslu á Íslandi er í félögunum
Samherji Ísland ehf. og Útgerðarfélag
Akureyringa ehf. og rekstur fiskeldis
er í félögum í eigu Oddeyrar ehf. Félög
samstæðunnar starfa í ellefu löndum
og gera upp í níu mismunandi gjald-
miðlum. (EUR, USD, GBP, ISK, CAD,
PLN, DKK, NOK og NAD). Sam-
stæðureikningur Samherja er settur
fram í evrum en í tilkynningunni eru
tölur umreiknaðar í íslenskar krónur
miðað við meðalgengi ársins 2013
sem var 162 krónur á hverja evru.
Rekstrartekjur Samherja og dóttur-
félaga voru tæpir 90 milljarðar króna
árið 2013 eins og árið áður. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam
25,4 milljörðum króna, samanborið við
21,7 milljarða árið á undan. Hagnaður
fyrir tekjuskatt nam 25,5 milljörðum
og að teknu tilliti til tekjuskatts var
hagnaður ársins 21,9 milljarðar króna.
Þetta er fimmta árið í röð sem allar
afkomueiningar samstæðunnar skila
hagnaði. Samkvæmt efnahagsreikningi
námu eignir samstæðunnar í lok ársins
2013 samtals 110,7 milljörðum króna.
Heildarskuldir og skuldbindingar á
sama tíma voru 45,9 milljarðar og bók-
fært eigið fé 64,8 milljarðar króna. Eig-
infjárhlutfall samstæðunnar var 58,5% í
árslok. Veltufjármunir námu 40,8 millj-
örðum króna og nettóskuldir samstæð-
unnar voru jákvæðar sem nemur 6,1
milljarði króna. Skuldir við innlendar
lánastofnanir námu um 22 milljörðum
króna í árslok og hafa lækkað um tæpa
5 milljarða króna það sem af er árinu
2014. Skuldir við innlendar lánastofn-
anir hafa frá árslokum 2012 lækkað um
ríflega 20 milljarða.
Fjárfest fyrir
5,1 milljarð króna
Fjárfestingar samstæðunnar á síðasta
ári námu samtals 5,1 milljarði króna.
Stærsta fjárfestingin á árinu 2013 var
í línuskipinu Önnu EA sem keypt var
frá Noregi. Skipið er gert út til línu-
veiða á Íslandi. Einnig var fjárfest í
flutningaskipi sem flytur frystar af-
urðir á fjarlægari markaði í Afríku
og Austur Evrópu. Aðrar fjárfestingar
ársins voru flestar í framleiðslutækjum
og breytingum á skipum, Frystitogar-
inn Baldvin NC sem er í eigu DFFU í
Þýskalandi var meðal annars lengdur
á árinu.
Dótturfélög Samherja hf. seldu fimm
skip og aðrar eignir sem tengjast útgerð
við strendur Afríku. Hagnaður af sölu
þessara eigna nam 7,7 milljörðum fyrir
tekjuskatt og hefur hann veruleg áhrif
á heildarafkomu félagsins.
„Rekstur okkar árið 2013 gekk að
mörgu leyti vonum framar auk þess
sem sala eigna hefur mikil áhrif á af-
komuna sem er í heild mjög góð“ segir
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja.
Hann segir að hins vegar séu alltaf
blendnar tilfinningar þegar eignir
séu seldar en á árinu voru eignir sem
tengjast útgerð við Afríku og vörumerki
seld og er þriðjungur hagnaðar ársins
söluhagnaður vegna þess. „Við seldum
góðar eignir sem búið var að leggja
mikla vinnu í að breyta og bæta. Það
er því alltaf ákveðin eftirsjá þegar horft
er til baka og ekki síst í því góða fólki
sem hafði tekið þátt í þessu með okkur.
Efnahagur okkar og rekstur minnk-
aði umtalsvert í kjölfarið og verkefni
okkar er að fylla í það skarð á næstu
misserum.
Þorsteinn Már bendir á að tæpur
helmingur af veltu samstæðunnar komi
frá dótturfélögum Samherja erlendis
og að þar hafi gengið mjög vel. „Veiðar
hjá erlendum dótturfélögum okkar í
Barentshafi gengu vel á árinu. Það hefur
líka gengið vel í Namibíu þar sem við
gerum út frystiskip og rækjuveiðar í
Kanada gengu mjög vel eins og árið
á undan.“
Mikill árangur á Íslandi
Hjá Samherja hf. og dótturfélögum
starfa nú um 700 manns á Íslandi. Þor-
steinn Már segir að margt hafi gengið
vel hér heima. „Landvinnsla bolfisks
í fiskvinnslum félagsins við Eyjafjörð
hefur gengið vel. Í þeim fiskvinnslum
tókum við á síðasta ári á móti meira
hráefni en nokkru sinni fyrr. Það er
stórt verkefni að vinna verðmætar
afurðir úr tæpum 30 þúsund tonnum
af bolfiski á ári. Okkur tókst að fylgja
þessari miklu framleiðslu eftir í mark-
aðsstarfinu en þar teljum við vera mikil
tækifæri í framtíðinni. Veiðar flestra
tegunda á Íslandi gengu einnig vel.
Aflaverðmæti Vilhelms Þorsteinssonar
EA á árinu var 4,3 milljarðar króna.
Það er afbragðsgóður árangur sem ekki
næst nema allir geri sitt besta, í veiðum,
vinnslu, sölu og dreifingu.“
Höfuðstöðvar alþjóðlegs
sjávarútvegsfyrirtækis
á Íslandi
„Sá árangur sem starfsfólk Samherja
hefur enn á ný náð er ekki síður mark-
verður fyrir það að á sama tíma hafa
stjórnvöld haldið áfram aðgerðum
sínum gegn félögum í samstæðunni.
Þessar aðgerðir hafa óhjákvæmilega
tekið mikla orku og tíma frá stjórn-
endum og starfsfólki sem gjarnan
vildi sinna uppbyggilegri hlutum. Ég
er ekki tilbúinn að sætta mig við að
höfuðstöðvar alþjóðlegs sjávarútvegs-
fyrirtækis geti ekki verið á Íslandi en
umhverfið hér í dag er farið að hafa
neikvæð áhrif og jafnvel hamla okkar
starfsemi. Ég hef sagt það oft áður að
sjávarútvegur er alþjóðleg atvinnugrein.
Velgengnin byggist að stórum hluta á
þekkingu og áræði starfsfólksins, hvort
heldur er í veiðum, vinnslu eða mark-
aðssetningu. Þegar samviskusamt og
duglegt fólk með mikla þekkingu úr
skóla lífsins leggst saman á árarnar
er hægt að ná afbragðsárangri,“ segir
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja.
Þeir frændur og helstu eigendur Samherja, Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri og Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri
geta með sanni verið ánægðir með með rekstur fyrirtækisins. Myndin er tekin á sjávarútvegssýningu í Bruxelles.
Með þeim er lengst t.v. Finnbogi Baldvinsson, bróðir Þorsteins Más en Finnbogi er nú framkvæmdastjóri Pickenpack
Europe GmBH í Þýskalandi.