Aldan - 23.09.2014, Qupperneq 8

Aldan - 23.09.2014, Qupperneq 8
23. SEPTEMBER 2014aldan8 MAREL kynnir nýja kynslóð vinnslulína fyrir hvítfisk Í ár kynnir Marel næstu kynslóð vinnslulína fyrir hvítfisk, FleXicut, sem nýlega vann nýsköpunarverð- laun á Nor-Fishing sjávarútvegs- sýningunni í Noregi. FleXicut notar háþróaða röntgentækni til að greina beingarð í hvítfiski og sker beingarðinn burt með vatnsskurði af mikilli nákvæmni og hlutar flakið niður. Auk þess kynnir Marel Innova, framleiðsluhugbúnaðinn sem gerir framleiðendum kleift að hámarka nýtingu og afköst, uppfylla gæða- kröfur og tryggja matvælaöryggi. Á sýningarbás Marel á sjávarútvegs- sýningunni verða sérfræðingar og ráðgjafar í fiskiðnaði sem veita ráð um tækninýjungar í fiskvinnslu, þjónustusamninga og lausnir sem hentar öllum sem eru í fiskvinnslu. Happastund Á fimmtudag og föstudag milli 16.00 og 17.00 býður Marel í Happastund í tilefni af opnun Progress Point, nýs sýningarhúss Marels í Kaupmanna- höfn. Í Progress Point fá viðskipta- vinir Marel tækifæri til að kynnast frá fyrstu hendi hvernig tæki, kerfi og lausnir Marel geta hjálpað þeim að bæta nýtingu, auka arðsemi og skapa þannig meiri verðmæti í sínum iðnaði. Starfsmenn Marel hvetja sýningargesti til að koma og upplifa sanna danska stemmingu með Kim Larsen, Carls- berg, ákavíti og smørrebrød svo fátt eitt sé nefnt. Þeir sem skrá sig rafrænt í Happastund eiga kost á vinningum, meðal annars flug og gistingu á við- burð að eigin vali í Progress Point í Kaupmannahöfn 2015. Sýningarbás MAREL á sjávarútvegssýningunni 2011. Þar var oft margt um manninn og eins má gera ráð fyrir tölu- verði umferð þar á sýningunni nú. FleXicut. „Rekstur Samherja árið 2013 gekk að mörgu leyti vonum framar“ - segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja Hagnaður ársins 2013 hjá Samherja á Akureyri nam tæpum 22 milljörðum króna. Hagnaður af sölu eigna 8,1 milljarðar króna. Samherji greiðir 1,7 milljarð króna í tekjuskatt til Ríkissjóðs ■ Hagnaður ársins tæpir 22 milljarðar króna. ■ Hagnaður af sölu eigna 8,1 milljarðar króna. ■ Samherji greiðir 1,7 milljarð króna í tekjuskatt til Ríkissjóðs Íslands og 1 milljarð í veiðileyfagjald, samtals 2,7 milljarða. ■ Tæpur helmingur af starfsemi Sam- herja samstæðunnar er erlendis. ■ Félög Samherja starfa í ellefu löndum, gera upp í níu mismunandi gjald- miðlum. Samherji hf. er eignarhalds- félag um eignarhluti í dóttur- og hlutdeildarfélögum sem flest tengjast sjávarútvegi og vinnslu afurða hér- lendis og erlendis. Rekstur útgerðar og fiskvinnslu á Íslandi er í félögunum Samherji Ísland ehf. og Útgerðarfélag Akureyringa ehf. og rekstur fiskeldis er í félögum í eigu Oddeyrar ehf. Félög samstæðunnar starfa í ellefu löndum og gera upp í níu mismunandi gjald- miðlum. (EUR, USD, GBP, ISK, CAD, PLN, DKK, NOK og NAD). Sam- stæðureikningur Samherja er settur fram í evrum en í tilkynningunni eru tölur umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við meðalgengi ársins 2013 sem var 162 krónur á hverja evru. Rekstrartekjur Samherja og dóttur- félaga voru tæpir 90 milljarðar króna árið 2013 eins og árið áður. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 25,4 milljörðum króna, samanborið við 21,7 milljarða árið á undan. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 25,5 milljörðum og að teknu tilliti til tekjuskatts var hagnaður ársins 21,9 milljarðar króna. Þetta er fimmta árið í röð sem allar afkomueiningar samstæðunnar skila hagnaði. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar í lok ársins 2013 samtals 110,7 milljörðum króna. Heildarskuldir og skuldbindingar á sama tíma voru 45,9 milljarðar og bók- fært eigið fé 64,8 milljarðar króna. Eig- infjárhlutfall samstæðunnar var 58,5% í árslok. Veltufjármunir námu 40,8 millj- örðum króna og nettóskuldir samstæð- unnar voru jákvæðar sem nemur 6,1 milljarði króna. Skuldir við innlendar lánastofnanir námu um 22 milljörðum króna í árslok og hafa lækkað um tæpa 5 milljarða króna það sem af er árinu 2014. Skuldir við innlendar lánastofn- anir hafa frá árslokum 2012 lækkað um ríflega 20 milljarða. Fjárfest fyrir 5,1 milljarð króna Fjárfestingar samstæðunnar á síðasta ári námu samtals 5,1 milljarði króna. Stærsta fjárfestingin á árinu 2013 var í línuskipinu Önnu EA sem keypt var frá Noregi. Skipið er gert út til línu- veiða á Íslandi. Einnig var fjárfest í flutningaskipi sem flytur frystar af- urðir á fjarlægari markaði í Afríku og Austur Evrópu. Aðrar fjárfestingar ársins voru flestar í framleiðslutækjum og breytingum á skipum, Frystitogar- inn Baldvin NC sem er í eigu DFFU í Þýskalandi var meðal annars lengdur á árinu. Dótturfélög Samherja hf. seldu fimm skip og aðrar eignir sem tengjast útgerð við strendur Afríku. Hagnaður af sölu þessara eigna nam 7,7 milljörðum fyrir tekjuskatt og hefur hann veruleg áhrif á heildarafkomu félagsins. „Rekstur okkar árið 2013 gekk að mörgu leyti vonum framar auk þess sem sala eigna hefur mikil áhrif á af- komuna sem er í heild mjög góð“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Hann segir að hins vegar séu alltaf blendnar tilfinningar þegar eignir séu seldar en á árinu voru eignir sem tengjast útgerð við Afríku og vörumerki seld og er þriðjungur hagnaðar ársins söluhagnaður vegna þess. „Við seldum góðar eignir sem búið var að leggja mikla vinnu í að breyta og bæta. Það er því alltaf ákveðin eftirsjá þegar horft er til baka og ekki síst í því góða fólki sem hafði tekið þátt í þessu með okkur. Efnahagur okkar og rekstur minnk- aði umtalsvert í kjölfarið og verkefni okkar er að fylla í það skarð á næstu misserum. Þorsteinn Már bendir á að tæpur helmingur af veltu samstæðunnar komi frá dótturfélögum Samherja erlendis og að þar hafi gengið mjög vel. „Veiðar hjá erlendum dótturfélögum okkar í Barentshafi gengu vel á árinu. Það hefur líka gengið vel í Namibíu þar sem við gerum út frystiskip og rækjuveiðar í Kanada gengu mjög vel eins og árið á undan.“ Mikill árangur á Íslandi Hjá Samherja hf. og dótturfélögum starfa nú um 700 manns á Íslandi. Þor- steinn Már segir að margt hafi gengið vel hér heima. „Landvinnsla bolfisks í fiskvinnslum félagsins við Eyjafjörð hefur gengið vel. Í þeim fiskvinnslum tókum við á síðasta ári á móti meira hráefni en nokkru sinni fyrr. Það er stórt verkefni að vinna verðmætar afurðir úr tæpum 30 þúsund tonnum af bolfiski á ári. Okkur tókst að fylgja þessari miklu framleiðslu eftir í mark- aðsstarfinu en þar teljum við vera mikil tækifæri í framtíðinni. Veiðar flestra tegunda á Íslandi gengu einnig vel. Aflaverðmæti Vilhelms Þorsteinssonar EA á árinu var 4,3 milljarðar króna. Það er afbragðsgóður árangur sem ekki næst nema allir geri sitt besta, í veiðum, vinnslu, sölu og dreifingu.“ Höfuðstöðvar alþjóðlegs sjávarútvegsfyrirtækis á Íslandi „Sá árangur sem starfsfólk Samherja hefur enn á ný náð er ekki síður mark- verður fyrir það að á sama tíma hafa stjórnvöld haldið áfram aðgerðum sínum gegn félögum í samstæðunni. Þessar aðgerðir hafa óhjákvæmilega tekið mikla orku og tíma frá stjórn- endum og starfsfólki sem gjarnan vildi sinna uppbyggilegri hlutum. Ég er ekki tilbúinn að sætta mig við að höfuðstöðvar alþjóðlegs sjávarútvegs- fyrirtækis geti ekki verið á Íslandi en umhverfið hér í dag er farið að hafa neikvæð áhrif og jafnvel hamla okkar starfsemi. Ég hef sagt það oft áður að sjávarútvegur er alþjóðleg atvinnugrein. Velgengnin byggist að stórum hluta á þekkingu og áræði starfsfólksins, hvort heldur er í veiðum, vinnslu eða mark- aðssetningu. Þegar samviskusamt og duglegt fólk með mikla þekkingu úr skóla lífsins leggst saman á árarnar er hægt að ná afbragðsárangri,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Þeir frændur og helstu eigendur Samherja, Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri og Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri geta með sanni verið ánægðir með með rekstur fyrirtækisins. Myndin er tekin á sjávarútvegssýningu í Bruxelles. Með þeim er lengst t.v. Finnbogi Baldvinsson, bróðir Þorsteins Más en Finnbogi er nú framkvæmdastjóri Pickenpack Europe GmBH í Þýskalandi.

x

Aldan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aldan
https://timarit.is/publication/1119

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.