Aldan - 23.09.2014, Blaðsíða 10

Aldan - 23.09.2014, Blaðsíða 10
- snjallar lausnir 545 3200 wise.is sala@wise.is Sjávarútvegslausnir Gold Enterprise Resource Planning Silver Independent Software Vendor (ISV) TMBorgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, Akureyri sími: 545 3200 » www.wise.is Við vonumst til að sjá þig á IceFish sjávarútvegssýningunni í Fífunni, Kópavogi, dagana 25.-27. september. Þar munum við kynna nýjustu útgáfu af WiseFish sjávarútvegslausnum, vottaða af Microsoft fyrir Dynamics NAV, ásamt greiningartólum Wise. Líttu við á bás G19 fyrir kynningu á okkar lausnum. 23. SEPTEMBER 2014aldan10 Síldarvinnslan er burðarás í atvinnu- lífi Neskaupstaðar Síldarvinnslan er eitt öflugasta sjáv- arútvegsfyrirtæki landsins á sviði vinnslu uppsjávarfisks til mann- eldis. Síldveiðar úti fyrir Austfjörðum ganga nú vel og síðasta sunnudag voru skipin Seyðisfjarðardýpi og Norðfjarðardýpi. Börkur NK kom á sunnudag með allt að 800 tonn en aflinn fer eins mikið og hægt er til manneldisvinnslu. Það eykur til muna verðmætið, bæði fyrir skip og landvinnslu. Verðmætasköpunin er höfð að leiðarljósi allt frá því að skipið leggur úr höfn til veiða. Athafnasvæði Síldarvinnslunnar á Neskaupstað. Aflaheimildir fiskveiðiársins 2014-2015: HB-Grandi með10,67% af heildarúthlutuninni Samkvæmt úthlutun sjávarútvegs- ráðuneytisins á aflaheimildum fyrir nýhafið fiskveiðiár, koma alls 40.125 þorskígildistonn í hlut skipa HB-Granda. Það samsvarar 10,67% af heildarúthlutun fiskveiðiársins. Þetta er 0,50% lægri hlutdeild en HB Grandi var með í upphafi fiskveiði- árs. Skýringin er sú að misjafnt er hve mikið vægi einstaka fisktegundir hafa í þorskígildum frá ári til árs. Ef litið er á úthlutunina fyrir fisk- veiðiárið kemur í ljós að heildarkvót- inn nemur alls tæplega 439 þúsund tonnum eða rúmlega 376 þúsund þorskígildistonnum. Um er að ræða lítilsháttar samdrátt milli fiskveiðiára en sambærilegar tölur fyrir fiskveiði- árið 2013/ 14 voru 443,3 þúsund tonn og 381,4 þúsund þorskígildistonn. HB-Grandi fær úthlutað alls 48.853 tonnum af kvóta í hinum ýmsu tegundum en sambærileg tala fyrir nýliðið fiskveiðiár var 50.352 tonn. Sem hlutfall af heildarúthlutun í tonnum talið er hlutdeild HB Granda nú 11,13% en hún var 11,36% á síðasta fiskveiðiári. Vert er að hafa í huga að eftir á að gefa út kvóta í deilitegundum eins og norsk-íslenskri síld, loðnu, makríl og kolmunna en sú úthlutun miðast venju samkvæmt við alman- aksárið. Þerney RE, eitt skipa HB-Granda. Eskja með menningarlegt samstarf við Biomar í Noregi Útgerðar- og fiskverkunarfyrirtækið Eskja á Eskifirði og Biomar A/ S í Noregi hafa nú í tvö ár staðið fyrir menningarviðburðum í heimahér- öðum sínum – Myre í Vesterålen og á Eskifirði – undir heitinu Rytme- för. Hafa tónlistarmenn á vegum Eskju farið utan og haldið tónleika og norskir tónlistarmenn komið til Eskifjarðar á vegum Biomar. Nú í ár fór fyrir hönd Eskju, Garðar Eðvaldsson, 19 ára saxafónleikari. Spilaði hann á þremur tónleikum í Myre, Sortland og Bö. Hefur þetta menningarsamstarf fyrirtækjanna vakið mikla athygli í Norður-Noregi sem og hér á landi þar sem þetta er óvanalegt að fyrirtæki hafi með sér slíkt samstarf. Það er markmið Eskju hf. að vera leiðandi á sínu sviði og uppfylla ávallt væntingar viðskiptavina sinna. Til að tryggja það markmið er lögð áhersla á bestu mögulegu gæði hráefnis og afurða allt til neytenda. Fylgt er þeim lögum og reglugerðum sem við eiga hverju sinni. Fyrirtækið nýtir bestu framleiðslutækni sem býðst á hverjum tíma. Stuðst er við þau gæðakerfi sem best tryggja að markmið fyrirtækisins í gæðamálum hverju sinni nái fram að ganga. Rekjanleiki afurða frá neyt- enda til veiðistaðar er tryggður. Það er stefna Eskju hf. að allir starfsmenn fyr- irtækisins fái þá þjálfun og menntun sem þeir þarfnast til að þeir geti sinnt starfi sínu af ánægju og nái að sýna hæfni í starfi þannig að væntingar við- skiptavina og starfsmanna fari ávallt saman. Umhverfisstefna Það er stefna Eskju að allir þættir í starfsemi fyrirtækisins séu í sem bestri sátt við umhverfi sitt. Fyrirtækið umgengst auðlindir og umhverfið af ábyrgð og samkvæmt þeim lögum og reglugerðum sem í gildi eru. Ávallt er stefnt að hámarks nýtingu hráefna og orkugjafa. Fyrirtækið leitast við að nota efni, rekstrarvörur og umbúðir sem eru umhverfisvænar. Úrgangi og losun frá skipum og deildum er leitast við að halda í lágmarki og að til þess sé séð að losun úrgangs sé ætíð á þann hátt að ekki valdi skaða í náttúru eða umhverfi. Allt starfsfólk Eskju er með- vitað um umhverfisstefnu þess og fær það tækifæri til að taka þátt í mótun og þróun hennar þannig að þeir sjái hag sinn og fyrirtækisins fara saman. Eskifjörður. Alþjóðahvalveiðiráðið: Grænlendingum leyft að veiða hvali, m.a. 10 hnúfubaka Aðalfundur Alþjóðahvalveiði- ráðsins var haldinn í Slóveníu í síð- ustu viku. Meðal þeirra mála sem afgreidd voru á fundinum var kvóti fyrir frumbyggjaveiðar Græn- lendinga, en ráðið hafði lagst gegn þessum veiðum á seinasta fundi sínum árið 2012. Samkvæmt niður- stöðu ráðsins mega Grænlendingar veiða árlega næstu fjögur árin 19 langreyðar, 176 hrefnur, 2 norð- hvali og 10 hnúfubaka. ESB greindi ráðinu frá yfirlýsingu sem stjórn- völdum á Íslandi var afhent fyrr í þessari viku þar sem hvalveiðum Íslendinga í atvinnuskyni var mótmælt. Ísland undirstrikaði að veiðarnar væru sjálfbærar og í samræmi við veiðiráðgjöf sér- fræðinga Hafrannsóknastofnunar og úttektir vísindanefnda Norður- Atlantshafs sjávarspendýraráðsins (NAMMCO) og Alþjóðahvalveiði- ráðsins. Ísland lýsti vonbrigðum sínum með að tímabundið bann við hvalveiðum „moratorium“ sem tók gildi árið 1986, hefði enn ekki verið endurskoðað. Slík endurskoðun hefði átt að fara fram eigi síðar en árið 1990 en það hefði ekki hlotið stuðning innan ráðsins síðan. Niðurstöður rannsókna sýna að margir hvalastofnar hafa þegar náð þeirri stærð að nýta megi þá á sjálfbæran hátt. Hnúfubakur.

x

Aldan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aldan
https://timarit.is/publication/1119

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.