Aldan - 23.09.2014, Page 16

Aldan - 23.09.2014, Page 16
23. SEPTEMBER 2014aldan16 Hafnasambandsþing á Dalvík og í Fjallabyggð: Beint framlag hafnanna nemur 0,3% af landsframleiðslu Þing Hafnasambands Íslands, það 39. í röðinni, var haldið í Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð 4. og 5. september sl. Gísli Gíslason formaður stjórnar Hafnasambands Íslands setti þingið og bauð fulltrúa og gesti velkomna með eftirfarandi orðum: „Ég vil byrja á því að bjóða ykkur öll hjart- anlega velkomin á hafnasambands- þing sem haldið er sameiginlega af Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð. Við hittumst síðast á hafnasambandsþingi í Vestmanna- eyjum árið 2012, en nú hafa gengið yfir sveitarstjórnarkosningar og til þings mæta nýir fulltrúar sem ég býð velkomna og vona að þeir taki upp merkið í stað þeirra sem eru horfnir á braut til annarra verkefna. Ykkur hinum, sem hafa setið mörg hafna- sambandsþingin treysti ég til að standa sem fyrr undir merkjum og því orðspori að hafnasambandsþing séu í senn skemmtileg og árangursrík. Þau eru fjölbreytt málefnin sem varða hafnirnar og á síðustu árum hefur ým- islegt áunnist en annað mátt ganga betur. Það gætir því ekki síður flóðs og fjöru í hafnamálunum en höfnunum - en ég hef áður sagt að það fólk sem kemur að hafnamálum hefur til að bera kjark og áræðni til að halda úti rekstri og þróun hafna, við mjög misjafnar aðstæður. Við höfum haldið því á lofti að hafnirnar séu hornsteinn í samgöngu- og flutn- ingakerfi landsins og að í tilvist þeirra og þróun felist sóknarfæri sem efli atvinnu- og efnahagslíf. Staðreyndir í þessum efnum tala sínu máli, en ef- laust megum við herða róðurinn til þess að vekja verðuga athygli á þessum sannleika. Í skýrslu um efnahagsleg áhrif hafna, sem Valur Rafn Hall- dórsson, starfsmaður okkar skrifaði, kemur m.a. fram að beint framlag hafnanna nemur 0,3% af landsfram- leiðslu en að óbein áhrif, sem er starf- semin í höfnunum, nemur um 28% af landsframleiðslu. Heildar áhrifin af því atvinnulífi sem þrífst innan hafnarsvæða eru því óumdeilt mikil og verðskulda aukna athygli og skiln- ing,“ sagði Gísli Gíslason. Gísli sagði að á síðustu hafnasam- bandsþingum og hafnafundum hafi umhverfismál verið fyrirferðamikill málaflokkur og svo verði áfram. Fæstir geri sér í raun grein fyrir hversu margir þættir umhverfismála kristallast í starfsemi hafnanna. Framkvæmdir í höfnum, umferð bíla, loftmengun frá skipum og landtengingar við rafmagn, mælingar á ástandi sjávar, frárennslis- mál, dýpkun, móttaka sorps og skólps, frágangur opinna svæða og hafnarlýs- ing eru dæmi um þau umhverfismál sem í auknum mæli eru til umfjöllunar og úrlausnar hafnarstjórna. Hvort sem höfnin er stór eða smá hafa þessi verk- efni aukist og hafnirnar hafa almennt staðið sig vel á lang flestum sviðum þessara verkefna, en að sjálfsögðu má gera betur. Það hefur verið nefnt hér á fundum að skynsamlegt sé fyrir hafnir að formgera betur aðkomu sína að umhverfismálum með samþykktri stefnu, grænu bókhaldi og jafnvel vott- aðri umhverfisstefnu. Vissulega eru þarfirnar mismunandi en svo segir mér hugur að það eigi að vera auðvelt fyrir hafnarstjórnir að gera umhverfis- málin og skipulögð vinnubrögð í þeim efnum enn sýnilegri. Með því að leiða umræðuna eru meiri líkur til þess að við getum rutt veginn fremur en fengið yfir okkur reglugerðir að ofan um óþarfa aðgerðir eða tilskipanir sem ekki taka mið af þeim aðstæðum sem við búum við. Norðurslóðaverkefnið Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur flutti afar áhugavert erindi um Norð- urslóðir og flutninga. Hann sagði að í tölum væri þetta svði með 20% nátt- úruauðlinda heims,15% jarðnæðis heims, 0,05% fjólksfjölda og raun- hagvöxtur 7-8% en næstu ár ganga út á að byggja upp innviði svæðisins. Fjárfestingar næstu 10 árin verða ca. 600 ma USD fram til 2024, Rússland lang stærst. Með 300 – 400 ma USD, Alaska og Kanada um 100 ma USD, Norðurlönd 150 ma USD og Ísland og Grænland um 10-20 ma USD. Ef olía finnst á Grænlandi eða Íslandi yrði fjárfestingin margfalt meiri. Jón Kjartan Jónsson fram- kvæmdastjóri fiskeldis Samherja flutti erindi um sjávarútveginn. Hann sagði að íslenskur sjávarútvegur stæði tendur sterkt um þessar mundir. Af- koman síðustu árin hafi verið góð og vel hafi veiðst og afurðaverð hátt þegar á heildina litið. Jón Kjartan sagði gengi íslensku krónunnar sé útflutningsgreinum hagstætt og þorskstofninn á uppleið og uppsjáv- arstofnar almennt öflugir. Tilkoma makríls á Íslandsmið væri gríðarlega mikilvæg. Önnur áhersluatrið væru m.a. : • Áhersla á gæði og að þjóna mörk- uðum eins vel og mögulegt er. • Íslenskur sjávarútvegur á í samkeppni við ríkisstyrktan sjáv- arútveg annarra þjóða. • Mikilvægt að öll virðiskeðjan sé á einni hendi – allt frá veiðum til sölu á mörkuðum. Þannig er veiðum og vinnslu stýrt með þarfir og óskir markaðarins í huga. • Hin góða afkoma síðustu ára hefur leitt til þess að sjávarútvegsfyr- irtækin eru farin að fjárfesta á ný. Sérstaklega er mikilvægt að endurnýja íslenska fiskiskipaflot- ann. • Góð afkoma hvetur einnig til ný- sköpunar í greininni. Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa- flóahafna sf. Var endurkjörinn for- maður til tveggja ára. Samþykkt var að halda næsta Hafnasambandsþing á á Ísafirði 2016 og að næsti hafna- fundur verður haldin í Hafnarfirði á árinu 2015. Dalvíkurhöfn. Séð til Ólafsfjarðar úr Héðinsfjarðargöngum sem tengir Ólafsfjörð og Siglufjörð sem mynda sveitarfélagið Fjallabyggð.

x

Aldan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aldan
https://timarit.is/publication/1119

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.