Aldan - 23.09.2014, Blaðsíða 18
Promens Tempra ehf. • Íshella 8 • 221 Hafnarfjörður • Sími: 520 5400 • tempra@promens.com
Promens Tempra hefur í samráði við Matís hannað nýjan kassa til útflutnings á ferskum
fiski. Rannsóknir sýna að með því að þykkja hornin á kassanum mun fiskurinn viðhalda
ferskleika sínum 2-3 dögum lengur en mögulegt er þegar um kassa með hefðbundinni
hönnun er að ræða og geymsluþolið eykst um 1-2 daga (Björn Margeirsson o.fl.,
2010). Hér er miðað við dæmigerðar hitasveiflur í land- og flugflutningi frá Íslandi
til Evrópu.
10
9
8
7
6
5
4
3
0 2 4 6 8 10
Geymsluþolsmörk
Ferskleikamörk
Dagar frá pökkun
Hefðbundin hönnun
Nýr Tempru kassi
Heimild: Björn Margeirsson o.fl., 2010. Skýrsla Matís 29-10.
To
rr
y
ei
nk
un
n
Temprukassarnir eru undirstaða þess að íslenskur fiskur kemst ferskur
til neytenda um allan heim.
Hvers virði er aukinn ferskleiki
í 2-3 daga fyrir þig?
H
ön
nu
n:
th
or
ri@
12
og
3.
is
/
P
re
nt
un
: L
itl
ap
re
nt
Kaldari kassar – ferskari fiskur
www.promens.is/tempra
23. SEPTEMBER 2014aldan18
Ný tækni við kælingu á ferskum
fiski vekur athygli mína“
- segir Ásmundur Friðriksson, nefndarmaður í atvinnuveganefnd
Ásmundur Friðriksson alþingismaður
í Suðurkjördæmi fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn á sæti í atvinnuveganefnd.
Hann var spurður hvort af hverju
veiðileyfagjald hafi enn ekki verið
lagt fyrir Alþingi, hvað þá samþykkt,
sem hljóti að teljast afar bagalegt
fyrir útgerðina og kemur í veg fyrir
að samið er við sjómenn um kaup og
kjör. Ásmundur var spurður hvenær
vænta mætti þess að tillögur um það
liggi fyrir Alþingi.
„Ég vona að það verði sem fyrst enda
nauðsynlegt að koma málinu til þingsins
og nefnda sem fyrst.“
- Nýsmiði fiskiskipa hefur verið sáralítil
undanfarna áratugi þó eitthvað sé að
glæðast í þeim málum nú, en öll sú vinna
fer fram erlendis. Hvað er hægt að gera til
að auðvelda útgerðarmönnum að endur-
nýja fiskiskipaflotann til samræmis við
okkar nágrannaþjóðir?
„Það er mikilvægt að við beitum
sömu ívilnunum og aðrar þjóðir gera
fyrir skipasmíðaiðnaðinn. Hér á landi
er þekking og reynsla enn til að efla
megi skipasmíðar innanlands og fjöldi
nýsköpunarfyrirtækja sem framleiða og
selja búnað í nýsmiði um allan heim.
Það er mikilvægt að í nánustu framtíð
verði umhverfi iðnaðarins þannig að
raunhæfur möguleiki verði á því að
endurnýjun stórs hluta fiskiskipastóls-
ins verða að raunveruleka hér heima.
Til þess að það verði þarf umhverfið
að lagast, traust útgerðarinnar á iðnað-
inum að aukast og við sem fiskveiðiþjóð
getum með stolti byggt og viðhaldið
stórum hluta fiskiskipastólsins við Ís-
landsstrendur.“
Niðurskurður undanfar-
inna ára hefur komið
niður á Hafró
- Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar-
innar er ávallt deilumál þegar hún
birtist. Samt eiga Íslendingar marga
bestu vísindamenn heims á þessu sviði.
Getur verið að takmarkað fjármagn til
stofnunarinnar eigi sinn þátt í þessum
ágreiningi?
„Það er ljóst að niðurskurður liðinna
ára hefur komið niður á starfsemi Hafró
og mjög brýnt að úr verði bætt. Loðnu-
rannsóknir, rannsóknir á makríl, skötu-
sel og fleiri tegundum eru í lágmarki,
eða nánast engar. Það er skilningur á
vanda Hafró og mikilvægt að við látum
meira fé rakna til hafrannsókna á nýjum
stofnum eins og gulldeplu sem gætu
styrkt sjávarútveg okkar á næstu árum.“
- Telurðu líklegt að Íslendingar nái
samkomulagi við Evrópubandalagið,
Færeyinga, Norðmenn og jafnvel fleiri
þjóðir um samninga um makrílveiðar á
næstu misserum?
„Ég get bara svarað því til að ég ber þá
von í brjósti að við náum sanngjörnum
samningum við nágranaþjóðir okkar
um alla helstu nytjastofna.“
- Ætlar þingmaðurinn að sækja sjávar-
útvegssýninguna sem hefst í Kópavpogi
í þessari viku og hvað mun þar vekja
mesta áhuga hans?
„Þingmaðurinn þarf að sinna
skyldum erlendis þessa helgi, því
miður, en ný tækni við kælingu á
ferskum fiski vekur athygli mína og svo
margt annað sem glepur huga gamals
fiskverkenda,“ segir Ásmundur Frið-
riksson.
Ásmundur Friðriksson.
Íslenska sjávarútvegssýningin:
Wise kynnir öflugt
hleðslu og flutninga-
kerfi fyrir WiseFish
„WiseFish fyrir NAV 2013 er best
heppnaða útgáfa af WiseFish frá
upphafi og við hjá Wise erum mjög
stolt að kynna kerfið á sjávarút-
vegssýningunni í Fífunni 25-27
september n.k. Við munum kynna
Dynamics NAV, WiseFish og Wise
Analyzer greiningartól fyrir Wis-
eFish,“ segir Jón Heiðar Pálsson hjá
Wise.
„Á sjávarútvegssýningunni í Bás
G-19 munum við m.a. kynna nýtt
öflugt hleðslu og flutningakerfi fyrir
WiseFish. Kerfið stýrir og heldur utan
um útskipanir og flutninga á afurðum
þar sem allar afhendingar eru sýni-
legar á einum stað. Sérstök virkni er
fyrir sendingar með flugi, til að hraða
allri úrvinnslu og skjalagerð.
Við munum kynna sendingu og
móttöku viðskiptaupplýsinga og
veiðivottorða á rafrænu formi milli
söluaðila og framleiðenda sem sparar
mikinn innslátt fyrir þá sem selja í
gegn um 3ja aðila eða innan fyrir-
tækja með margar vinnslur. , - þannig
að þegar um er að ræða framleiðendur
og söluaðila, mikinn vinnusparnað,
hagræðingu og tryggt sé að gögn sé
rétt skráð.“
Með nýrri útgáfu af WiseFish færðu
nú m.a.
• Nýtt útflutningskerfi: - yfirfarið og
endurgert að mestu.
• Hægt að keyra kerfið á snjallsímum,
spjaldtölvum og með léttum vef
• biðlara
• Nýtt samningakerfi: Kostnaður
við sölu er nú skráður í samninga-
kerfi/ sölusamkomulög sem tryggir
betra umhald um sölur, framlegð
og kostnaðargreiningu fyrir útflytj-
endur og söluaðila.
„Með WiseFish og NAV 2013
kemur ný virkni sem tengir enn
betur sama Office 365, þ. e. Word,
Excel, Outlook, PDF, SharePoint og
One note svo dæmi séu nefnd. Nú
bjóðum við WiseFish og Dynamics
NAV í áskrift þar sem við bjóðum
hýsingu og leigu á hugbúnaðinum.
Þannig geta allir innleitt WiseFish í
Skýinu. Þannig þarf ekki lengur að
reka netstjóra, Office né annan hug-
búnað heldur er aðgangur tryggður
hvar og hvenær sem er, og kerfið
kemur tilbúið til notkunar,“ segir Jón
Heiðar Pálsson.
Dæmi um fyrirtæki sem keyra
WiseFish og NAV í skýinu er P/ F
Pelagos í Færeyjum. Ein fullkomnasta
vinnsla sinnar tegundar í heiminum
með afköst allt að 1. 000 tonnum á
sólarhring í uppsjávarfiski.
Phil Sorgen, varaforseti Worldwide Partner Group og Jón Heiðar Pálsson.
Wise was valið sem ,,Country Partner of the Year,” þriðja árið.