Aldan - 23.09.2014, Side 24
23. SEPTEMBER 2014aldan24
„Sé allt það nýjasta sem er í
boði á sjávarútvegssýningunni“
- segir Guðmundur Geirdal, sjómaður og bæjarfulltrúi
Guðmundur Geirdal bæjarfulltrúi
í Kópavogi gerir út bátinn Gísla
KÓ-10 og segist ætla að skoða sjáv-
arútvegssýninguna í Kópavogi, það
hafi hann yfirleitt gert. Hann segist
sjálfur vera mjög áhugasamur um
allar nýjungar í sjávarútvegi en eitt af
því sem sé ákaflega jákvætt við svona
sýningar sé að þar myndast persónu-
leg tengsl milli manna sem jafnvel
endist í það óendanlega. „Þarna
hittir maður söluaðila sem maður
hefur verið í miklum tengslum við en
kannski aldrei hitt persónulega, enda
er lykillinn að góðum viðskiptum
persónuleg tengsl milli manna.“
- Hefurðu fengið nýjar hugmyndir með
því að koma á sjávarútvegssýninguna
í Kópavogi?
„Já, það hef ég gert. Ég mun ekki síst
skoða þessu fullgerðu báta sem verða
væntalega á útisvæðinu og skoða hvaða
tækni hefur verið innleidd í þá. Þarna
sér maður allt það nýjasta sem er í boði
í dag, það er afar mikilvægt fyrir sjó-
mann eins og mig. Þarna sér maður oft
ýmislegt sem getur létt manni vinnuna
um borð. Ég get ekki sagt að ég hafi séð
einhverja byltingakenndar nýjungar
á sjávarútvegssýningunni en það er
stöðug og ör þróun í gangi, bæði í
tækni og matvælaframleiðslun, ekki
bara þegar sýning er haldin. Það hefur
á undanförnum sýningum verið lög
vaxandi áherslu á bætta kælingu á fiski,
en lykilatriði að kæling afurðanna sé
góð. Þegar maður sér hvað þeir leggja
mikið á sig sem taka við fiskinum frá
manni þá eðlilega fer maður að bæta
meðhöndlun fisksins um borð áður en
komið er til löndunar. Þá aukast lík-
urnar á að fiskurinn komi óskemmdur
á disk neytandans og bætir þá ímynd
atvinnugreinarinnar.“
Guðmundur segist fastlega búast við
að sjá eitthvað nýtt á þessari sjávar-
útvegssýningu sem hann geti jafnvel
nýtt sér sjálfur. „Það er mjög margt
að gerast í sjávarútvegi í dag, jafnvel
ótrúlega margt. Það sem mér finnst
mest spennandi eru þær afurður sem
fóru aftur í sjóinn, stundum ekkert
hirt nema holdið en annað fór í sjó-
inn. Kannski er tækniframfarirnar
kannski mestar í því að nálgast það
að gjörnýta fiskinn, ekki bara til neyslu
heldur einnig t.d. til lyfjaframleiðslu,
sem er dýr afurð. Það er afar spennandi
þróun.“
Guðmundur Geirdal segir afar já-
kvætt að vera með sjávarútvegssýn-
ingu hérlendis þar sem sjávarútvegur
hafi alltaf verið stór liður í menningu
okkar Íslendinga. Með því að færa
svona sýningu hingað heim fjölgar
þeim verulega sem læra ýmislegt um
sjávarútveginn, þá kynnast fleri þessari
atvinnugrein en bara þeir sem eru í
henni.
- Er það mikilvægt fyrir Kópavogsbæ
að sjávarútvegssýningin skuli vera í
Kópavogi?
„Ég er nokkuð viss um það og er
stoltur af því að undanfarandi sjávarút-
vegssýningar skuli hafa tekist svona vel
í Kópavogi,“ segir Guðmundur Geirdal
sjómaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Guðmundur Geirdal.
Nýjasta skip fiskveiðiflotans:
Sigurður VE-15 er uppsjávar-
veiðiskip sem getur borið
3.000 rúmmetra af afla
Sigurður VE-15, nýtt skip Ísfélags
Vestmannaeyja, og þar með nýjasta
skipið í fiskveiðiflotanum, kom til
heimahafnar 25. júlí sl. frá Tyrklandi
þar sem það var smíðað. Það var þá til
sýnis bæjarbúum og gestum. Guðbjörg
Matthíasdóttir tók á móti þessu glæsi-
lega skipi ásamt fjölskyldunni þegar
það lagðist að bryggju og tók við spott-
anum úr hendi sonar síns, Sigurðar
Sigurðarsonar, sem er í áhöfn skipsins
Sigurður VE-15 er 3.763 lesta upp-
sjávarskip, 80,3 metrar að lengd og 17
metrara ð breidd. Aðalvélin er Wartsila
9L32, 4.500 kw. , burðargeta er 3.000
rúmmetrar af afla. Rúm er fyrir 22
manna áhöfn í 15 klefum. Kaupin á
þessu glæsilega skipi er liður í endur-
nýjun fiskveiðiflota Ísfélags Vestmanna-
eyja og er liður í því að mæta þeirri
þróun að stöðugt meira af uppsjávarafla
fer til manneldisvinnslu í landi. Skipið
er á uppsjávarveiðum, en fyrsti túrinn
var á makríl.
Glæsilegt skip kemur til heimahafnar, Vestmannaeyja, frá Tyrklandi.
Það er ekki þrengt að þeim sem stjórna þessu skipi í þessari brú sem er búin
öllum helsltu og nýjustu tækjum sem þekkjast í dag.