Aldan - 23.09.2014, Síða 28
23. SEPTEMBER 2014aldan28
Íslenskur sjávarútvegur:
Betri gögn - meiri verðmæti!
Allar ákvarðanir stórar og smáar
eru teknar á grundvelli upplýsinga
og þekkingar og því skyldi maður
ætla að ein mikilvægasta atvinnu-
grein þjóðarinnar væri stútfull af
gögnum sem hægt væri að reiða sig
á. Þegar leitað er svara við mörgum
áleitnum spurningum um þróun og
verðmætasköpun í íslenskum sjávar-
útvegi þá kemur oftar en ekki í ljós
að upplýsingar eru ekki til staðar eða
þá að þær standast ekki skoðun. Nú
er það ekki svo að ekki sé hægt að
teikna upp stóru myndina, afli allra
tegunda er þekkt stærð og heildar-
útflutningsverðmætin liggja einnig
fyrir, en þegar meta á t.d. þróun og
nýsköpun einstakra tegunda eða af-
urða þá er oft erfiðara um vik.
„Lögð hefur verið mikil áhersla á að
skrá allan afla og er því að sjálfsögðu
fylgt vel eftir, en þegar kemur að út-
flutningi þá tekur við annað kerfi sem
byggist á skráningu útflutnings eftir
tollskrárnúmerum,“ segir Páll Gunnar
Pálsson hjá MATÍS. „Tollskránni er
ætlað að vera það kerfi sem á að ná
utan um allar afurðir sem fluttar eru
til og frá landinu. Það kerfi sem notað
er hér á landi er byggt á samræmdu
alþjóðlegu númera- og flokkunarkerfi
sem yfir 200 þjóðir nýta sér, þannig að
í grunninn er t.d. þorskur með sama
númer víðast hvar í heiminum. Þetta
á við um fyrstu sex tölustafina, síðan
geta þjóðir lengt númerið og bætt við
ítarlegri greiningu afurða. Hér á landi
hefur einungis verið hægt að bæta við
tveimur tölustöfum vegna takmark-
aðrar getu gagnagrunna sem eru í
notkun.“
Mikilvægt að sjávarútvegur sé með
í ráðum þegar mikilvægur gagna-
grunnur er skipulagður
Upplýsingarnar sem útflytjendur
setja á útflutningspappíra og skila
til Tollsins, eru síðan grunnurinn
að birtingu gagna hjá Hagstofunni,
þannig að ef útflytjendur eru að kasta
til hendinni við upplýsingagjöfina þá
verður minna mark á takandi þeim
upplýsingum sem Hagstofan birtir.
Þar sem útflutningur er ekki tilefni
gjalda hér á landi þá gefur það auga
leið að eftirlit með réttri skráningu er
takmarkað, það á sér í raun ekki stað
fyrr en í innflutningslandi því þá þarf
varan að tengjast réttu tollnúmeri þess
lands.
Þegar verið er að rýna tölur um út-
flutning þá er fyrsta stopp að skoða
vörulýsinguna og finna út hvað er átt
við eða hvað ekki er átt við, það getur
reynst mjög erfitt að fá glögga mynd
af þeim afurðum sem skráðar eru í til-
tekin tollskrárnúmer. Vörulýsingar er
oft á tíðum mjög opnar og geta átt við
mismunandi afurðir, en yfir 100 hugtök
eru notuð til að lýsa sjávarafurðum í
tollskránni og er hvergi að finna nánari
skýringar á þeim hugtökum.
Það er hægt að tína til mýmörg
dæmi um misvísandi vörulýsingar og
er greinilegt að nokkur skortur er á
vöruþekkingu við samningu þeirra,
en hafa verður þó í huga að starfsmenn
Tollsins hafa ýmislegt annað á sinni
könnu en að semja vörulýsingar fyrir
sjávarafurðir. Tollskrárnúmer fyrir
sjávarfang eru örfá hundruð meðan
tollskráin í heild hefur að geyma
þúsundir annarra vörulýsinga, því
er mikilvægt að sjávarútvegurinn sé
með í ráðum þegar svona mikilvægur
gagnagrunnur er skipulagður. Það er
vissulega sjávarútvegurinn sem nýtur
fyrst og fremst góðs af góðum og ít-
arlegum upplýsingum um hvernig til
tekst með verðmætasköpun og nýtingu
sjávarfangs, því í upplýsingunum verða
tækifærin sýnileg.
Þrátt fyrir töluverða endurskoðun
tollskrárinnar 2012 og fjölgun númera
þá er engan veginn hægt að greina með
nokkrum hætti hver nýting einstakra
tegunda er, sem sést m.a. af því að
fjórða verðmætasta tegundin sem
flutt er frá Íslandi er „annar fiskur“ eða
„ýmsar tegundir“ það eru afurðir þar
sem engin sérstök fisktegund er nefnd í
vörulýsingu. Þessi „annar fiskur“ skilar
um 10% af heildarverðmætum útfluttra
sjávarafurða.
Samræma þarf
vörulýsingar
„Það eru á floti fullyrðingar um svo og
svo mikla nýtingu einstakra tegunda
og eru menn að berja sér á brjóst og
fullyrða að við séu öðrum þjóðum
fremri. En það er ekki hægt að halda
neinu slíku fram nema að fyrir hendi
liggi betri upplýsingar um allar afurð-
irnar. Meðan ólíkum afurðum er safnað
saman í einstök tollskrárnúmer þá er
ekki hægt að reikna til baka og segja
hver nýting aflans er. Þeir sem hafa
komið nálægt vinnslu sjávarafurða
vita að það skiptir máli að vita hvort
fiskur er með eða án hauss, slægður eða
óslægður, flök með roði og beinum eða
roðlaus og beinlaus o.s.frv. , ef þessar
upplýsingar eru ekki fyrir hendi þá er
útilokað að reikna út heildarnýtingu
einstakra tegunda.
Matís hefur verið í samstarfsverk-
efni með Tollstjóraembættinu, Hag-
stofu Íslands, Samtökum fiskvinnslu-
stöðva, Landssambandi fiskeldisstöðva,
Icelandic og Iceland Seafood, þar sem
farið hefur verið yfir þessi máli. Ver-
kefnið var styrkt af AVS sjóðnum. Af-
rakstur verkefnisins er samantekt um
hver staðan er og hvernig núverandi
upplýsingakerfi er ekki að ná nægj-
anleg vel utan um þessi gögn sem til
verða. Einnig er sett fram tillaga að
úrbótum og hvernig mætti ná fram
mjög ítarlegum upplýsingum um allar
tegundir, verðmæti og nýtingu, en til
þess að ná slíku fram þá þarf að sam-
ræma vörulýsingar og tryggja það að
sami skilningur sé um hugtökin sem
notuð eru. Nú liggja fyrir hugtakaskýr-
ingar fyrir vörulýsingarnar og eru þær
með fjölda mynda til að sýna betur
hvað átt er við.
Þessi nýja tillaga mun einfalda alla
skráningu og getur í raun gert tilbún-
ing séríslenskra tollskrárnúmera fyrir
sjávarfang algerlega óþarfan, en samt
boðið upp á mun ítarlegri upplýsingar.
Þá verður hægt að svara nánast öllum
hugsanlegum spurningum varðandi
verðmætasköpun og nýtingu sjávar-
fangs og þar með taka skynsamlegar
ákvarðanir, byggðar á bestu fáanlegu
upplýsingum, um allt sem viðkemur
nýtingu auðlindarinnar.“
Einn öflugasti útgerðarstaður landsins er Akureyri.
Þrátt fyrir töluverða endurskoðun tollskrárinnar 2012 og
fjölgun númera þá er engan veginn hægt að greina með
nokkrum hætti hver nýting einstakra tegunda er, sem sést
m.a. af því að fjórða verðmætasta tegundin sem flutt er
frá Íslandi er „annar fiskur“ eða „ýmsar tegundir“ það eru
afurðir þar sem engin sérstök fisktegund er nefnd í vöru-
lýsingu. Þessi „annar fiskur“ skilar um 10% af heildar-
verðmætum útfluttra sjávarafurða.