Aldan - 23.09.2014, Síða 29

Aldan - 23.09.2014, Síða 29
„Sjávarútvegssýningin er mikilvægt tækifæri fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki“ - segir Jón Gunnarsson alþingismaður og formaður atvinnuveganefndar Alþingis , Það er mjög mikilvægt að vera með sjávarútvegssýningu hérlendis á þiggja ára fresti, sérstaklega í ljósi þess að Ísland og íslenskur sjávarútvegur er afar vel kynntur erlendis. Á vett- vangi Sameinuðu Þjóðanna, þar sem ég var nýlega sem þingmaður, leggi menn við hlustirniar þegar íslensk rödd heyrist fjalla um sjávarútveg vegna þekkingar okkar og reynslu,“ segir Jón Gunnarsson alþingismaður og formaður atvinnuveganefndar Al- þingis og segir að kannski sé ekki eins vel lagt við hlustir þegar Íslendingar fjalla um aðra málaflokka. Jón segir að í ljósi þess hversu framsækin íslenskur sjávarútvegur er hvernig fiskveiðistjórnunarkerfinu er háttað og hvernig framsýnum út- gerðarmönnum hefur tekist að stjórna þessu kerfi, sé hægt að fullyrða að hér sé rekin einn arðbærasti sjávarútvegur í heimi. Það eigi ekki bara við um út- gerð og fiskvinnslu, heldur ekki síður við alls konar tæknilausnir og þann stórkostlega iðnað sem hefur skapast kringum sjávarútveg á Íslandi, og er alltaf að aukast. „Sjávarútvegssýning er því mikilvægt tækifæri fyrir fjölmörg íslensk fyrir- tæki til að koma sínum, hugmyndum, vörum og þekkingu á framfæri. Sum þessara fyrirtækja séu svo smá að það gæti reynst of kostnaðarsamt að sækja sjávarútvegssýningar erlendis, t.d. í Bruxelles. Þetta er því gullið tækifæri fyrir þessi fyrirtæki. Sú þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum árum um svokallað klasasamstarf, þar sem fyrirtæki sem sérhæfa sig í hugbún- aði, tæknilausnum, vélum og fleiri taka sig saman að ná fram sameiginlegum lausnum. Sameiginlega eru þau miklu öflugri að kynna sig gagnvart inn- lendum og ekki síður erlendum aðilum. Á þessu sviði höfum við náð lengra en margar aðrar þjóðir enda höfum við oft þann sveigjanlega að laga okkur að breyttum mörkuðum með litlum fyrirvara.“ - Telurðu að íslensk sjávarútvegsfyr- irtæki séu síður tilbúin að tileinka sér erlendan tækibúnað en íslenskan? „Ég tel nú að íslensk sjávarútvegsfyr- irtæki leiti eftir því besta á markaðnum á hverjum tíma, hvort það sé íslensk eða erlend framleiðsla. Fyrirtækin gera miklar kröfur og það er grunnurinn að þeim gæðum sem er á íslensku sjávar- fangi í dag. Þess vegna horfa þau mjög til tæknifyrirtækja innanlands vegna þess að þar er oft hægt að fá ódýrar lausnir, eða a.m.k. ódýrari. Þetta eru fyrirtæki með hágæða vöru, eins og Marel, Valka og Skaginn svo einhver fyrirtæki séu nefnd. Það á bæði við um hugbúnað og vélbúnað. Skaginn á Akranesi hefur m.a. verið að setja upp upp verksmiður í Færeyjum sem vinna uppsjávarfisk og Traust –Þekking í Borgarfirði hefur veirð að setja upp vinnslulínur í tvo rússneska togara. Dæmin eru mun fleiri.“ Starfsumhverfið í sjávarút- vegi að taka stórkostleg- um breytingum - Það hefur á síðustu árum ekki þótt nógu „fínt“ að vinna í fiskvinnslu. Telurðu að sjávarútvegssýningin í Kópa- vogi geti eflt ímynd íslensk fiskiðnaðar í augum þess fólks sem ekki hefur atvinnu sína af því að vinna í þeirri atvinnu- grein? „Eftirsóknin í þessi störf hefur dregist saman á undanförnum árum, þrátt fyrir mikilvægi þeirra í íslensku samfélagi gegnum tíðina. En tilkomu allrar þessarar nýju tækni og breytingu á vinnuaðstöðu fólks þá er þetta starfsumhverfi að taka stórkostlegum breytingum. Það er ekki hægt að líkja aðbúnaði í hefðbundnum fiskvinnslu- störfum í dag við þann aðbúnað sem fólk bjó við áður, og kannski þarf ekki að fara lengra en aldarfjórðung aftur í tímann til að sjá hversu gríðarlegur munurinn er. Það má líkja þessu við byltingu. Í dag eru þetta tæknimenn að stórum hluta sem eru að vinna fisk- vinnslustörf, svo tæknivædd er greinin orðin.“ - Það hafa allir skoðanir þegar umræðan snýst um sjávarútveg. Það er sama hvort það er kvótinn, veiðileyfagjald, mark- aðsmál eða eitthvað annað. Sýnir það ekki öðru fremur það hversu nærri þessi atvinnugrein er þorra landsmanna? „Tvímælalaust. Þarna er enginn skoðanalaus. Þess vegna eru margir sem ekki eru að vinna við sjávarútveg að leggja leið sína á sjávarútvegssýn- inguna og það á jafnt við unga sem gamla. Að koma á sýninguna opnar huga ungs fólks fyrir þeim tækifærum sem svo sannarlega liggja á þessum vettvangi. Það er afar jákvætt,“ segir Jón Gunnarsson. Samhentir eru leiðandi fyrirtæki í umbúðum - umbúðir utan um fiskafurðir hafa hlotið almennt lof Samhentir – Kassagerð er þjón- ustufyrirtæki um heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrar- vörum. Fyrirtækið er leiðandi þegar kemur að umbúðum. Kassar, öskjur, arkir, pokar, pappi, plast, límbönd og allt sem þarf svo vel fari um vöruna þína er til á lager. Birgjar eru fjölmargir, bæði inn- lendir og erlendir. Samhentir eru ráðgefandi um lausnir, efnisval, hönnun og tækjakost. Til að spara viðskiptavinum sporin er einnig boðið upp á rekstrarvörur, s.s. hreinlætisvörur og einnota vörur, vinnufatnað og skó, áhöld s.s. hnífa og matvinnsluáhöld, krydd og íblöndunarefni og pökkunar- vélar. Samhentir leggja sig fram um að viðskiptavinurinn fái allt á einum stað. Hið mikla vöruúrval auk umbúðanna léttir verulega undir hjá framleiðslufyrirtækum þar sem hlutirnir þurfa að ganga hratt fyrir sig og hjá fiskiskipum sem stoppa stutt í landi. Umbúðir selja er staðreynd sem flestir viðskiptavinanna hafa fengið að reyna. Því reynir oft á umbúða- hönnuðinn að finna rétta utanum- haldið um vöruna. Samhentir er bandamaður þegar leitað er umbúða á sanngjörnu verði, sem fara vel með vöruna og freista neytandans. Sýningarbás Samhentra á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2011 ásamt starfsmönnum. Útbreiðsla uppsjávar- stofna í NA-Atlants- hafi sumarið 2014 er svipuð milli ára Dagana 13. -17. ágúst sl. var haldinn fundur í Þórshöfn í Færeyjum með þátttöku fiskifræðinga frá Noregi, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Þar var fjallað um og samræmd gögn alþjóðlegs rannsóknaleiðangurs í sumar, sem beindist að vistfræði, dreifingu og magnmælingu mak- ríls og annarra uppsjávartegunda í Norðaustur Atlantshafi. Rannsóknar- svæðið var útvíkkað samanborðið við fyrri leiðangra, einkum til norðurs að Svalbarða, til austurs í Barentshaf og til vesturs og suðurs að Hvarfi á suðurodda Grænlands. Rannsókna- skipið Árni Friðriksson kannaði grænlenskt hafsvæði á vegum Græn- lendinga. Makríll fannst víðast hvar á rann- sóknasvæðinu og í svipuðu magni og árið 2013. Dreifing norsk-íslensku síldarinnar var vestlægari og norð- lægari en undanfarin ár. Hrognkelsi fundust víðast hvar norðan 65. gráðu, en við Grænland náði útbreiðslan eins langt suður og kannað var. Makríll. Aukin ganga hans á hafsvæðið við landið hefur aukið heildarverð- mæti sjávarfangs á Íslandi. Sjóvélar eru leiðandi í vörum fyrir línuflotann Fyrirtækið Sjóvélar í Skútvogi 12 var stofnað svorið 2003. Markmið fyrir- tækisins er að vera leiðandi í þjónustu og sölu á vörum fyrir línuflotann. Öll vörumerki fyrirtækisins eru rótgróin á íslenskum markaði og reynslan af þeim hefur verið góð. Sjóvélar sér- hæfa sig í vörum fyrir handfæra- og línuveiðar svo sem línum, krókum, línuspilum, færavindum, slíturum og fleiru. Sýningarbás Sjóvéla á sjávarútvegssýningunni í Fífunni haustið 2011. Jón Gunnarsson alþingismaður. 23 . SEPTEMBER 2014 aldan 29

x

Aldan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aldan
https://timarit.is/publication/1119

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.