Austurland - 19.09.2013, Side 9
919. september 2013
knattspyrnu fyrir alla flokka, íþrótta-
skóla fyrir börn á aldrinum 6 – 10 ára,
sundæfingar fyrir börn frá 7 ára aldri
og frjálsar íþróttir fyrir börn 11 ára
og eldri. Á Fáskrúðsfirði er alhliða
íþróttahús í fullri stærð sem þjónar
sem skólamannvirki, til æfinga fyrir
íþróttafélagið Leikni og fyrir almenn-
ing auk þess sem húsið er nýtt fyrir
mótahald og keppnir. Knattspyrnu-
völlur stendur við hlið íþróttahúsins.
Bað- og búningsklefar íþróttahússins
eru nýttir fyrir æfingar og keppnir á
knattspyrnuvellinum. Líkamsræktar-
stöð er í íþróttahúsinu. Sundlaugin
á Fáskrúðsfirði er lítil innilaug með
heitum potti utandyra.
Á Stöðvarfirði sér Ungmennafé-
lagið Súlan, stofnað 1928, utan um
íþróttastarf fyrir börn. Íþróttahúsið
á Stöðvarfirði er alhliða íþróttahús
sem þjónar sem skólamannvirki, til
æfinga og fyrir almenning. Þá er
húsið nýtt fyrir mótahald og keppnir.
Líkamsræktaraðstaða er í íþrótta-
húsinu. Bað- og búningsaðstaða
eru nýtt fyrir æfingar og keppnir á
knattspyrnuvellinum sem stendur
utar í bænum. Sundlaug Stöðvar-
fjarðar er lítil útilaug með heitum
potti. Sundlaugin er opin á sumrin.
Bæði íþróttahúsið og sundlaugin
eru við grunnskólann.
Á heimasíðu Fjarðabyggðar, www.
fjardabyggd.is, kemur fram að Odds-
skarð eða Austfirsku alparnir, eins
og skíðasvæðið milli Eskifjarðar
og Norðfjarðar er oft nefnt, sé eitt
skemmtilegasta skíðasvæði landsins.
Í fjallinu er toglyfta í 513 metra hæð
og þegar upp á topp er komið, í 840
metra hæð yfir sjávarmáli, blasir við
ægifagurt útsýni yfir Reyðarfjörð. Á
skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og
barnalyfta, góð aðstaða fyrir bretta-
fólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu.
rúMlega 90% barna og
unglinga æfa íþróttir
Á Djúpavogi er Sveinn Þórður
Þórðarson íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúi og hóf hann störf um miðj-
an ágúst. Íþrótta og æskulýðsfull-
trúastaðan er ný á Djúpavogi og
með henni er ætlunin að bæta starf
barna og unglinga hvort sem er hjá
Ungmennafélaginu Neista, sem var
stofnað 1919, eða æskulýðsstarf í
skólanum. Hluti af starfi Sveins er
að sjá um alla þjálfun í plássinu.
Starfið hjá Neista er fyrir börn og
unglinga á aldrinum 5 ára (elsta árið
í leikskóla) til 16 ára (10. bekk) og er
þeim boðið að æfa fótbolta, frjálsar
og sund. Sveinn er stoltur af því að
segja að um 92% barna og unglinga
á svæðinu æfi einhvað hjá Neista.
Starfið fór af stað þann 3. september
síðastliðinn og er því komið á fullt.
Á Djúpavogi er aðstaða til
íþróttaiðkunar góð og nýtir Neisti
hana eins mikið og hægt er. Á vet-
urna eru Neistakrakkarnir í tímum
í Íþróttamiðstöðinni þar sem þau
æfa fótbolta, frjálsar og prófa fleiri
íþróttagreinar. Í íþróttamiðstöðinni
er lyftingarsalur með lóðum, hlaupa-
brettum og öðrum tækjum til líkams-
ræktar sem íbúar geta nýtt sér einnig
er gufubað og ljósabekkur.
Einnig geta íbúar keypt sér tíma
í íþróttasalnum til að stunda íþróttir
eða aðra hreyfingu og eru íbúar hér
nokkuð duglegir að gera það. Inni-
sundlaug er í Íþróttamiðstöðinni þar
sem sund er æft af kappi.
Fyrir aftan Íþróttamiðstöðina er
sparkvöllur þar sem hægt er að taka
fótboltaæfingar þegar veðrið er gott.
Á sumrin er æft á Íþróttasvæðinu í
Blánni en þar er góður fótboltavöll-
ur, kúluvarpshringur og langstökks-
gryfja. Þar æfa krakkarnir frjálsar
íþróttir og fótbolta. Áhorfendasvæð-
ið er í brekkunni við völlinn en á vet-
urna þegar snjóar er Neistabrekkan
vinsæl til að renna sér á snjóþotum,
sleðum, skíðum eða á snjóbretti.
fullkoMin aðstaða
í hornafirði
Unglingalandsmót UMFÍ fór fram á
Höfn í Hornafirði í sumar en á Höfn
var Ungmennafélagið Sindri stofn-
að af um 15 ungmennum árið 1934.
Tóku félagsmenn upp á ýmsu og var
þetta aðalfélagsskapur yngra fólks
í þorpinu frá stofnun og framundir
1965. Fólk lagði vinnu í gerð íþrótta-
vallar var völlurinn notaður meira
og minna framundir 1970. Um 1965
tóku ungir menn við félaginu og eftir
það er félagið nær eingöngu íþrótta-
félag. Knattspyrna var eiginlega eina
greinin sem stunduð var framan af
a.m.k. með keppni í huga en núna er
reynt að bjóða upp á eins fjölbreytt
íþróttalíf og hægt er. Mestu ræður
um framboðið hvernig gengur að fá
leiðbeinendur til starfa, og er það
upp og ofan. Samkvæmt heima-
síðu Sindra eru deildir félagsins
knattspyrna, körfubolti, fimleikar,
sund, frjálsar íþróttir, blak, skíði,
kraftlyftingar og badminton.
Nú í september hefur Íformi
einnig æfingar á Höfn og eru þar
æfðar frjálsar, brennibolti, fótbolti
karla, strandblak kvenna og karla
og hnit. Bridgespilamenn og golfar-
ar eiga að sjá um sig sjálfir og vera
duglegir að æfa.
Á Höfn var ný og glæsileg úti-
sundlaug tekin í notkun í apríl 2009.
Þar er að finna góða 25 x 8,5 m. sund-
laug, vaðlaug fyrir börn, tvo heita
potta (annar þeirra er nuddpottur),
gufubað og þrjár mismunandi renni-
brautir.
Íþróttahúsið Höfn er með íþrótta-
sal sem er um 600 fermetrar. Íþrótta-
húsið er sambyggt Grunnskóla
Hornafjarðar (Heppuskóla) og þar
fer Íþróttakennsla grunnskólans
fram. Einnig hefur Ungmennafé-
lagið Sindri afnot af húsinu utan
skólatíma fyrir sitt íþróttastarf.
Auk hefðbundinnar íþróttastarf-
semi gegnir íþróttahúsið mikilvægu
hlutverki sem fjölnotahús, þar eru
haldnir tónleikar, ráðstefnur og aðr-
ar stórar samkomur.
Íþróttahúsið í Mánagarði í Nesj-
um er 7 km vestan við Höfn. Íþrótta-
salurinn sjálfur er um 300 fermetrar
og lagður parketi. Ungmennafélag-
ið Máni í Nesjum og Sindri á Höfn
nýta húsið fyrir íþróttaæfingar og
dans. Í íþróttasalnum eru haldn-
ar stærri samkomur s.s. þorrablót,
landsfundir og ráðstefnur. Íþrótta-
húsið er sambyggt félagsheimilinu
Mánagarði sem byggt var 1952 og
er hægt að nýta sal félagsheimilis-
ins með íþróttsalnum. Í Mánagarði
eru sviðslistir til húsa ásamt því að
ýmsar minni samkomur eru haldn-
ar þar. Hægt er að fá Mánagarð
leigðan fyrir stærri samkomur s.s.
ættarmót, ef sótt er um með góðum
fyrirvara.
Sindravellir eru íþróttasvæði
við hlið íþróttahússins á Höfn. Á
Sindravöllum er góður og vel búinn
knattspyrnu- og frjálsíþróttavöll-
ur. Þar er einnig æfingasvæði fyrir
knattspyrnu. Tartan er á hlaupa-
og stökkbrautum. Sindravellir
voru endurbyggðir fyrir unglinga-
landsmótið 2007 sem haldið var á
Hornafirði.
Mánavöllur stendur við Mána-
garð. Þar er góður knattspyrnu-
völlur og frjálsíþróttaaðstaða með
malarhlaupabrautum.
breiðdalshreppur og
borgarfjÖrður eystri
Ungmennafélagið Hrafnkell Freys-
goði, stofnað 1937, er á Breiðdalsvík
en um þessar mundir er ekki mikil
starfsemi hjá félaginu. Í Breiðdals-
hreppi er íþróttamiðstöð með tækja-
sal og lítil og skemmtileg sundlaug.
Ungmennafélag Borgarfjarðar var
stofnað 1917 á Borgarfirði eystri.
Starfsemi þess er meiri á sumrin en
á veturna. Á Borgarfirði er yfirbyggð-
ur sparkvöllur sem nýttur er til ým-
issa boltaleikja og fyrir badminton.
Engin sundlaug er á Borgarfirði og
sækja grunnskólabörn sundkennslu
upp í Egilsstaði áður en skólahald
hefst á haustin.
Eins og sagði í upphafi þá er
upptalningin á íþróttalífi á Austur-
landi engan veginn tæmandi heldur
er einungis ætlunin að sýna fram
á hið mikla úrval sem í boði er og
hve góð íþróttamannvirki er að finna
á mörgum stöðum á Austurlandi.
Eins og fram kemur hér að ofan eru
íþróttahúsin oft notuð undir annað
en íþróttastarfsemi svo sem fundi og
mannfagnaði enda sjálfsagt til að
nýta húsnæðið á staðnum sem best,
sérstaklega eftir að stærri samkomur
uxu upp úr samkomuhúsum sveitar-
félaganna. Nú er um að gera fyrir
Austfirðinga að kíkja inn í næsta
íþróttahús og athuga hvað er í boði.
Það finnst örugglega eitthvað við
flestra hæfi.
Upplýsingar í greininni eru
fengnar frá viðmælendum ritstjóra,
af heimasíðum sveitarfélaganna,
íþróttafélaganna og af heimasíðu
UÍA. a
Sundlaug Hornafjarðar
Sundlaugin á norðfirði
SundHöll SeyðiSfjarðar
ÍþróttamiðStöðin á egilSStöðum
frjálSar á vilHjálmSvelli á Egilsstöðum