Dagrenning - 01.02.1953, Qupperneq 40
JÖNAS GUÐMUNDSSON:
Krístílegí stjómmála-
flokkurine í Noregí
i.
Á síðast liðnu vori barst mér bréf frá að-
alritara eins hinna norsku stjómmálaflokka,
Kristelig Folkeparti, þar sem skýrt var frá
því, að stjórnmálaflokkur þessi ætlaði að efna
til landsmóts — landstevne — á Voss í
Noregi, síðustu daga júnímánaðar 1952, og
flokksstjóminni þætti mikilsvert ef gestir
frá öllum hinum Norðurlöndunum gætu
sótt mótið. Hliðstæðir flokkar við þennan
stjómmálaflokk Norðmanna — sem líklega
væri réttast nefndur á íslenzku Kristilegi
alþýðuflokkurinn — er ckki til í neinu
hinna Norðurlandanna, nema ef vera
skyldi í Danmörku, þar sem er Dansk
Samlig, en sá flokkur á nú engan
mann á þingi Dana. Það voru því ekki full-
trúar frá kristilegum stjómmálasamtökum,
sem mættu þar frá Danmörku, Finnlandi og
Svíþjóð, heldur einstaklingar, sem áhuga
höfðu á því að kynnast þessum athvglis-
verðu stjórnmálasamtökum og gátu komið
því við, að sækja mótið. Ég gerði mér von
um að geta þegið boð aðalritarans, en þeg-
ar til kom, reyndist ekki kleift að samrýma
það þeim störfum, er ég þá varð að gegna,
svo ég varð á síðustu stundu að tilkynna, að
af þátttöku minni gæti ekki orðið. Ekki er
mér kunnugt um h\’ort nokkrum öðmm ís-
lendingi var boðið til þessa móts, en hafi svo
verið hefir þeim einnig verið ókleift að
sækja það, enda kostar slík för allmikið fé,
og menn hefðu orðið að bera sjálfir mestallan
kostnaðinn.
Landsmótið á Voss var svo haldið á tilsett-
um tíma og var bæði fjölmennt og ánægju-
legt. Kristelig Folkeparti hefir nú sent út
allstóra bók með ræðum þeim, sem þar voru
haldnar, og frásögn af mótinu.
Þegar ég varð að aflýsa þátttöku minni í
Voss-mótinu ákvað ég, ef leið mín lægi bráð-
lega til Noregs, að hafa tal af fyrirsvars-
mönnum þessa flokks og reyna að kynnast
eitthvað starfsemi hans. í nóvembermánuði
s. 1. vildi svo til að ég þurfti að sækja fund
norrænnar nefndar,sem þá var haldinn í Oslo,
og lét ég þá af því verða að hafa tal af aðal-
ritara flokksins, Olav Biyn. En þar sem dvöl
mín í Osló var einir þrír dagar, og ég bund-
inn við störf alla dagana, varð því ekki við
komið að kynnast fleirum af fyrirsvarsmönn-
um flokksins en Ólafi Bryn, enda ekki þörf
því hann leysti vel og skilmerkilega úr öllu
því, sem mér lék mestur hugur á að vita um
þennan sérstæða stjómmálaflokk, sem ég
mun nú segja nokknð frá hér á eftir.
II.
Árið 1933 — sama árið og Hitler braust til
valda í Þýskalandi — var fyrsti þingmaður
hins kristilega stjómmálaflokks Norðmanna
kjörinn á norska Stórþingið, það var Nils
Lavik er síðan hefir verið einn af fremstu
34 DAGRENNING