Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.01.2015, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 2015 5
Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) var stofnuð 1. október 2014, í víðfeðmasta heilbrigðisumdæmi landsins, við sam-
einingu Heilbrigðisstofnunar Suð-Austurlands (HSSa), Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) og Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja (HSVe). Formleg sameining tók gildi 1. janúar 2015. Heildarframlag til HSU á fjárlögum 2015 er um 3,6
milljarðar króna og hjá stofnuninni starfa ríflega 500 manns. Fjöldi íbúa í umdæminu eru um 26.000 manns.
Hlutverk HSU er að leggja grunn að skipulagi almennrar heilbrigðisþjónustu og tryggja íbúum í heilbrigðisumdæmi
Suðurlands og öðrum þjónustuþegum, s.s. ferðamönnum á svæðinu, jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem á
hverjum tíma er tök á að veita. Við starfsstöðina í Vestmannaeyjum er sinnt heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu við íbúa
Vestmannaeyja, sem eru um 4.300 talsins, auk ferðamanna. Heilsugæslan veitir almenna lækninga- og hjúkrunarþjónustu,
forvarnir og heilsuvernd ásamt bráða- og slysaþjónustu.
Við sjúkrahússvið er starfsrækt legudeild, hjúkrunardeild, skurðstofa og fæðingarhjálp. Vestmannaeyjar eru heillandi og
fjölskylduvæn náttúruparadís með öflugt íþrótta- og menningarlíf.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laust til umsóknar starf yfirlæknis heilsugæslu við starfsstöð í Vestmannaeyjum.
Yfirlæknir hefur umsjón með daglegum rekstri á þjónustu sinnar sérgreinar við starfsstöðina auk þátttöku í almennum
störfum heilsugæslulækna og vaktþjónustu. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga við HSU.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laus til umsóknar störf heilsugæslulæknis við starfsstöð í Vestmannaeyjum.
Um er að ræða 100% starf eða samkvæmt samkomulagi. Næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu við starfsstöðina.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir laus til umsóknar störf lyflæknis/sjúkrahúslæknis við starfsstöð í
Vestmannaeyjum. Um er að ræða starf yfirlæknis í 100% starfshlutfalli eða samkvæmt nánara samkomulagi. Yfirlæknir
hefur umsjón með daglegum rekstri á þjónustu sinnar sérgreinar og sjúkrahúslækninga við starfsstöðina auk þess að
sinna hefðbundnum lækningum og vaktþjónustu. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga við HSU.
Starf veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
og Læknafélags Íslands. Hægt er að aðstoða við að útvega húsnæði.
Starf veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
og Læknafélags Íslands. Hægt er að aðstoða við að útvega húsnæði.
Starf veitist frá 1. apríl nk. eða samkvæmt samkomulagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
og Læknafélags Íslands. Hægt er að aðstoða við að útvega húsnæði.
Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Kristjánsson framkvæmdastjóri lækninga, netfang hjortur.kristjansson@hsu.is,
sími 481-1955. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar nk. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Umsókn óskast fyllt út á umsóknarblað á www.hsu.is og henni þarf að fylgja staðfestar upplýsingar ummenntun,
starfsleyfi, fyrri störf og reynslu. Umsóknum er skilað rafrænt á hsu@hsu.is.
Yfirlæknir heilsugæslu
Heilsugæslulæknir
Lyflæknir/sjúkrahúslæknir
Helstu viðfangsefni og ábyrgð
• Stjórn starfsemi lækna í heilsugæslu
• Leiðandi hlutverk í faglegummálefnum og þróun
starfsemi
• Áætlanagerð og breytingastjórnun
• Ábyrgð á rekstri og faglegri þjónustu
heimilislækninga
• Innleiðing nýjunga
• Þátttaka í eflingu kennslu, fræðslu og
endurmenntunar
Helstu viðfangsefni og ábyrgð
• Almennar heilsugæslulækningar og heilsuvernd
• Fræðsla til skjólstæðinga og aðstandenda
• Þátttaka í vaktþjónustu
• Kennsla nema og starfsfólks
• Þátttaka í þróun sinnar faggreinar innan
starfsstöðvar
Helstu viðfangsefni og ábyrgð
• Stjórn starfsemi lækna á sjúkrahússviði
• Leiðandi hlutverk í faglegummálefnum og þróun
starfsemi
• Áætlanagerð og breytingastjórnun
• Ábyrgð á rekstri og faglegri þjónustu sjúkrahússviðs
• Innleiðing nýjunga
• Þátttaka í eflingu kennslu, fræðslu og
endurmenntunar
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í
heimilislækningum eru skilyrði
• Reynsla af stjórnun, áætlanagerð og rekstri er æskileg
• Stjórnunar- og skipulagningarhæfni
• Reynsla af umbótaverkefnum og teymisvinnu
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi í
heimilislækningum eru skilyrði
• Reynsla af umbótaverkefnum og teymisvinnu
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi eru skilyrði
• Reynsla af stjórnun, áætlanagerð og rekstri er æskileg
• Stjórnunar- og skipulagningarhæfni
• Reynsla af umbótaverkefnum og teymisvinnu
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Heilbrigðisstofnun Suðurlands | Vestmannaeyjar
Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra veitti á dög-
unum styrki til sex gæða-
verkefna í
heilbrigðisþjónustu. Að
þessu sinni var áhersla lögð
á verkefni sem miða að þró-
un þjónustu við sjúklinga,
þar sem heildstætt mat á
þjónustuþörf er leiðarljós.
Gæðastyrkir hafa verið
veittir árlega frá 2001 og er
ætlað að efla umbótastarf,
nýbreytni og stuðla að
auknum gæðum heilbrigð-
isþjónustu auk þess að vera
hvatning og viðurkenning.
Þróa árangursríka leið
Alls barst 31 umsókn um
styrk að þessu sinni. Verk-
efnin sem hlutu atfylgi nú
snúa að bættari þjónustu
við aldraða á Landspítala,
þróun meðferðar fyrir börn
og fjölskyldur þeirra vegna
sjálfsskaða eða sjálfsvígs-
hugsana og uppbyggingu
fjarlækninga á sviði tal-
meina og svefnmælinga.
Sé litið til einstakra verk-
efna þá er snýr verkefnið
hjá BUGL, sem Linda
Kristmundsdóttir ber
ábyrgð á, að því að þróa ár-
angursríka leið til hjálpar
börnum sem hafa íhuga
sjálfsvíg eða -skaða. Komið
hefur til fjölda bráðainn-
lagna vegna slíks og reynt
hefur verið að finna þar ár-
angursríkar leiðir. Stendur
nú til að þróa díalektíska at-
ferlismeðferð, sem er ráð
við flóknum og erfiðum geð-
vanda. Meðferðin er sam-
bland af einstaklings- og
hópmeðferð, en sem stendur
eru engir sérfræðingar á
þessu sviði stafandi á Ís-
landi.
sbs@mbl.is
Velferð Styrkhafa ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni ráðherra.
Heildstæð þjónusta
höfð að leiðarljósi
Styrkir til umbóta í heilbrigð-
iskerfinu Gæði og nýjar leiðir
Frumkvöðullinn Fida Abu
Libdeh stofnandi nýsköp-
unarfyrirtækisins Geosilica á
Ásbrú var á dögunum valinn
Maður ársins á Suðurnesjum
2014 af blaðinu Víkurfréttum
í Keflavík. Með skólafélaga
sinum, Burkna Pálssyni,
stofnaði hún fyrirtækið og
nú um áramótin kom afurð
þeirra á markað, það er há-
gæða kísilfæðubótarefni unn-
ið úr náttúrulegum íslensk-
um jarðhitakísli.
Keilir og MBA
Fida kom 16 ára frá Pal-
estínu til Íslands, gekk í
menntaskóla í Reykjavík en
náði ekki að ljúka stúdents-
prófi vegna erfiðleika með ís-
lenskuna. Hún vildi mennta
sig meira en tókst ekki fyrr
en í háskólabrú í Keili á
Ásbrú, hvar hún fékk hjálp
vegna lesblindu sem var
hennar hindrun. Hún hefur
svo haldið áfram námi, jafn-
hliða fjölskyldulífi
„Fida er frábær fyrirmynd
þeirra sem hafa draum og
gera allt til þess að láta
hann rætast. Þrátt fyrir
margar hindranir hefur hún
afrekað ótrúlega hluti frá því
hún kom til Íslands frá Pal-
estínu á unglingsaldri …
Saga Fidu tengist mörgum
jákvæðum þáttum í upp-
byggingu Suðurnesja eftir
efnahagshrun,“ segja Víkur-
fréttir.
sbs@mbl.is
Hefur afrekað
ótrúlega hluti
Sigur Fida Abu og Páll Ket-
ilsson frá Víkurfréttum.
Breyta þarf kynskiptum
vinnumarkaði á Íslandi, því
óviðunandi er að laun í
kvennastéttum séu lægri en í
karlastéttum. Að launamunur
kynjanna mælist ennþá 7-
18% er óásættanlegt en jafn-
launastaðall stjórnvalda og
aðila vinnumarkaðarins getur
í þessu efni verið verkfæri til
breytinga. Þetta segir í álykt-
un landsþings Lands-
sambands framsóknarkvenna
sem haldið var á dögunum.
Það er mat framsóknar-
kvenna, skv. ályktun þeirra,
að uppræta verði rótgróin
kynjabundin gildi um mis-
munandi hæfni kvenna og
karla sem hamla því að kynin
hafi jafna möguleika á vinnu-
markaði. Staðalímyndir virð-
ist ráða miklu um námsval
ungs fólks sem svo hefur áhrif
þegar að atvinnuþátttöku
kemur. Einnig sé erfitt fyrir
konur sem komnar eru yfir
miðjan aldur að fá störf þrátt
fyrir að hafa fagmenntun.
sbs@mbl.is
Kynbundin gróin
gildi verði upprætt