Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.03.2015, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. MARS 2015 7 Reykjavíkurborg Innkaupadeild Borgartún 12-14, 105 Reykjavík Sími 411 1042 / 411 1043 Bréfsími 411 1048 Netfang: utbod@reykjavik.is Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Ráðhús Reykjavíkur, háþrýstiþvottur og sílanböðun 2015 útboð nr. 13404. • Ingunnarskóli, utanhússmúrviðgerðir 2015 útboð nr. 13439. • Grassláttur við þjóðvegi í Reykjavík 2015-2017 útboð I útboð nr. 13435. • Grassláttur við þjóðvegi í Reykjavík 2015-2017 útboð II útboð nr. 13436. • Grassláttur við þjóðvegi í Reykjavík 2015-2017 útboð III útboð nr. 13437. • Grassláttur við þjóðvegi í Reykjavík 2015-2017 útboð IV útboð nr. 13438. ÚTBOÐ Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod ÚTBOÐ AKSTURSÞJÓNUSTA Bæjarsjóður Kópavogs óskar eftir tilboðum í skólaakstur og rammasamning um hópferðaþjónustu fyrir Kópavogsbæ 2015–2019. Í verkinu felst skólaakstur fyrir grunnskóla Kópavogsbæjar og akstur í vettvangsferðir nemenda í grunn- og leikskólum Kópavogsbæjar, ásamt öðrum akstri fyrir Kópavogsbæ. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögn á geisladiski verða seld á kr. 10.000 frá þriðjudeginum 17. mars 2015 í þjónustuveri Kópavogsbæjar, Fannborg 2 (1. hæð). Tilboðum skal skila fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 22. apríl 2015 í þjónustuver Kópavogsbæjar, Fannborg 2 (1. hæð) og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta. kopavogur.is Útboð STA-31 STAKKUR Tengivirki Helguvík Háspennubúnaður og uppsetning Landsnet óskar eftir tilboðum í útvegun, uppsetningu og gangsetningu háspennubúnaðar og hjálparkerfa fyrir Stakk - tengivirki Helguvík í samræmi við útboðsgögn STA-31. Verkið felur í sér hönnun, útvegun búnaðar og uppsetningu, gangsetningu og handbókar-gerð fyrir allan búnað fyrir tengivirkið með þremur 145 kV rofareitum, auk tengingar á aflspenni. Verkinu skal að fullu lokið 29. desember 2015. Útboðsgögn verða afhent á geisladiski í móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík frá hádegi þriðjudaginn 17. mars 2015. Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 9. apríl 2015. Helstu verkliðir eru: • Fullnaðarhönnun fyrirkomulags búnaðar í tengivirkinu. • Uppsetning og tenging DCB-aflrofa sem verkkaupi leggur til, þrír rofareitir. • Útvegun, uppsetning og tenging: - Mælispenna, eldingavara og gegnum- taka. - Teinrofa með jarðrofum. - Einangrara og skinna fyrir skinnukerfi í lofti. • Virkniprófanir. • Hönnun, smíði, uppsetning og tenging: - Stjórn- og varnarbúnaðarskápa, verk- kaupi leggur til megin búnaðinn í skápana. - Jafnspennukerfa, með rafgeymum og hleðslutækjum. • Tenging á HV, afl- og stýrirásum 50 MVA, ONAF spennis m/OLTC. • Hönnun, smíði og uppsetning undirstaða fyrir mælispenna, eldingavara, strengenda- búnað, skinna og teinrofa í rofasal og fyrir skápa í stjórnbúnaðarrými. • Hönnun, útvegun og uppsetning lagnagólfs í stjórnbúnaðarrými. Útboðsgögn nr. 20188 Stækkun Búrfellsvirkjunar Ráðgjafarþjónusta Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í ráðgjafarþjónustu vegna framkvæmda við fyrirhugaða stækkun Búrfellsvirkjunar samkvæmt útboðsgögnum nr. 20188. Landsvirkjun áformar að stækka Búrfellsvirkjun um 100 MW í einni vélarsamstæðu. Fyrirhugað er að framkvæmdir geti hafist fyrri hluta árs 2016 og ljúki í desember 2018. Verkefnið felst í megindráttum í útboðshönnun, gerð útboðsgagna fyrir framkvæmdir, aðstoð á útboðstíma, loka- hönnun allra mannvirkja ásamt hönnunar- rýni, aðstoð á byggingartíma og gerð tíma- og kostnaðaráætlana. Gert er ráð fyrir að vinna við ráðgjafar- þjónustuna geti hafist í júní 2015 og ljúki í desember 2018. Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Landsvirkjunar, http://utbod.lv.is frá og með þriðjudeginum 17. mars 2015. Útboðið er svokallað tveggja umslaga útboð þar sem bjóðandi skilar inn tveimur umslögum. Annað umslagið skal innihalda upplýsingar um nafn og hæfi bjóðanda og hitt umslagið skal innihalda nafn og verðtilboð bjóðanda. Tilboðum skal skila til Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík eigi síðar en kl. 12.00 þriðjudaginn 28. apríl 2015 þar sem þau verða opnuð sama dag kl. 14.00 og verða nöfn bjóðenda lesin upp að viðstöddum þeim sem þess óska. Að loknu mati á hæfi bjóðenda verða verðtilboð opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem uppfylla kröfur útboðs- gagna um hæfi. Sameinuðu þjóðirnar sam- þykktu nýlega ályktun um mikilvægi landmælinga og alþjóðlegra landmæl- ingakerfa. Ályktunin var lögð fram af 52 ríkjum og var Ísland þar á meðal. Í ályktun þessari er undir- strikað mikilvægi alþjóða- samvinnu á sviði landmæl- inga og fjarkönnunar við vöktun á loftslagsbreytingum og hamfarastjórnun. Segir að auk þessa hafi mæling- arnar víðtækt notagildi í samgöngum, landbúnaði og verklegum framkvæmdum. Lögð er áhersla á opið óhindrað aðgengi að land- mælingagögnum um allan heim. Landmælingar Íslands bera, að því er fram kemur í tilkynningu, ábyrgð á al- þjóðlegu samstarfi á sviði landmælinga hér á landi. Stofnunin haldi úti lands- hnitakerfi og sameiginlegu hæðarkerfi fyrir allt Ísland. Þessi kerfi leggi samfélaginu til áreiðanlegan grunn fyrir nákvæmar mælingar svo sem vegna framkvæmda og vöktunar náttúrunnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Landmælingar Hvert örstutt spor, segir í ljóði nóbelsskáldsins. Mælingarnar hafa víðtækt notagildi Ekki eru uppi neinar áætl- anir um aðgerðir í þá veru að auka hlut karla í hópi kennara við grunn- skóla í Reykja- vík. Þetta kemur fram í svari við fyrir- spurn Svein- bjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, fulltrúa Framsóknarflokks í borgarráði. Hún óskaði eftir svörum um þetta og hvert kynjahlutfallið væri meðal stjórnenda skóla svo og kennara. Fram kemur í svari Ragnars Þorsteinssonar, sviðsstjóra skóla- og frí- stundasviðs Reykjavík- urborgar, til borgarráðs að á líðandi vetri væru stöðu- gildi kennara við grunn- skólana 1.131. Konurnar væru 933 eða 82% og karl- arnir 198 eða 18%. Meðal stjórnenda, það er skóla- stjórar og aðstoðarskóla- stjórar, væru konurnar 52 eða 69% og karlarnir 23 eða 31%. Mikilvægar fyrirmyndir „Það segir sig kannski sjálft að þessi hlutföll kynjanna í starfsmannahópi skólanna þurfa að vera jafn- ari. Kennarar eru börn- unum mikilvægar fyr- irmyndir og því verða bæði kynin að vera áberandi á uppvaxtarárum barnanna. Aðeins þannig næst að auka jafnréttisvitund barnanna,“ sagði Sveinbjörg Birna í samtali við Morgunblaðið. Sveinbjörg Birna segist vilja kanna þetta mál frek- ar, meðal annars í krafti ýmissa rannsókna sem gerðar hafa verið og sýna fram á mikilvægi þess að bæði kynin komi að starfi skólanna. Segist hún jafn- framt vilja fylgja þessu máli betur eftir á vettvangi borg- arstjórnar svo og annars staðar á næstunni. sbs@mbl.is Skólastarf Konur eru ráðandi í kennarastétt og hjá borginni eru ekki áætlanir sem stuðlað gætu að breytingu á því. Hlutföll kynja í skól- unumum séu jafnari  Konur 82% grunnskólakenn- ara í Reykjavík  Fyrirmyndir Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.