Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.04.2015, Qupperneq 10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015 10 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf Erlent OMX 18 1.366 0,1% OMXN40 1.653 -2,5% OMXC 982 -2,1% OMXS 1.680 -2,3% OMXH 3.472 -2,5% OSEBX 645 -1,1% Dow Jones 18.110 0,4% Nasdaq 5.055 -0,1% FTSE 7.031 -1,0% DAX 11.812 -1,9% Í dag hefst dagskrá viðskiptasendi- nefndar á vegum Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins (AMIS) í New York þar sem sjónum verður beint að efna- hagsumhverfi í Bandaríkjunum í ná- inni framtíð. Alls eru 35 fulltrúar 20 ís- lenskra fyrirtækja í hópnum. Sendi- nefndin mun í dag heimsækja Nasdaq- kauphöllina, auk þess að fara í kynn- isferðir til Jet Blue og Alcoa. Á morgun fer fram ráðstefna í Norræna húsinu í New York um viðskipti á norðurslóðum þar sem Bjarni Bene- diktsson, fjármála- og efnahags- ráðherra, verður á meðal þátttakenda. Síðar um daginn mun sendinefndin kynna sér stöðu og horfur í bandarísk- um efnahagsmálum hjá Citi-bank- anum, auk þess sem fjallað verður um þróun í fjölmiðlun hjá Time Warner. Dagskránni lýkur á föstudaginn með kynningu á mögulegum viðskiptatæki- færum við Sameinuðu þjóðirnar. Ferð- in er skipulögð af AMIS og IACC í samvinnu við Íslandsstofu. Sendinefnd Amerísk- íslenska viðskipta- ráðsins til New York AMIS Sendinefnd er nú í New York. Orkuiðnaðurinn á Íslandi hefur á nokkr- um áratugum orðið jafnverðmætur sjáv- arútveginum og vöxturinn því verið gríð- arlegur. Þetta benti Ragnar Guðmundsson, formaður Samáls og for- stjóri Norðuráls, á í ræðu á aðalfundi samtakanna í gær. „Sjávarútvegur hefur verið stundaður á Íslandi í hundruð ára. Og markaðsverðmætið er 600 millj- arðar,“ sagði hann og vísaði þar til út- reikninga þar sem hann skoðaði mark- aðsvirði eina sjávarútvegsfyrirtækisins sem skráð er á markað, HB Granda, og hlutdeildar fyrirtækisins í heildarafla- heimildum. Ragnar spurði fundargesti út í hvað þeir teldu þá markaðsvirði atvinnugrein- ar sem vaxið hefði upp á sextíu árum vera og vísaði þar til orkuiðnaðarins. Hann svaraði spurningunni sjálfur og sagði: „Raunveruleikinn er sá að íslensku orkufyrirtækin eru líklega 500 til 800 milljarða virði. Myndi eitthvert ykkar til dæmis selja Landsvirkjun fyrir minna en 500 milljarða?“ Benti hann á að Landsvirkjun gæti greitt skuldir sínar niður á 9,4 árum ef vilji stæði til þess, jafnvel þótt skammt sé frá því að fyrirtækið réðst í gríðarlegar fjárfestingar með uppbyggingu Kára- hnjúkavirkjunar. Sú staðreynd þýddi að innan fárra ára gæti fyrirtækið greitt 30- 40 milljarða í arð til eigenda sinna á hverju einasta ári, án þess að orkuverð hækki svo nokkru nemi. Benti hann á í samhengi við það að veiðigjöld á sjávar- útveg nema um 10-15 milljörðum árlega. Þá benti Ragnar einnig á að álfyrir- tækin kaupa um 75% af þeirri orku sem Landsvirkjun framleiðir og bætti við: „Þeir samningar sem gerðir hafa verið við álverin eru þjóðinni hagstæðir, skila gríðarlega góðri afkomu og þúsundum traustra og vel launaðra starfa.“ Morgunblaðið/Ómar Orka Búrfellsstöð hóf að framleiða rafmagn úr Þjórsá árið 1969 og var aflmesta virkjun landsins allt þar til Fljótsdalsstöð var tekin í notkun 38 árum síðar. Orkan og fiskurinn Formaður Samáls segir orkuiðnaðinn jafnverðmætan sjávarútveginum hérlendis BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is Bæði Írar og Íslendingar þurfa að finna tækifæri til að eiga viðskipti á hin- um alþjóðlega markaði til að skapa áhugavert umhverfi fyrir kynslóðir framtíðarinnar í báðum löndunum og þá þýðir ekki að hugsa smátt. Þetta kom fram í máli Colm Ó Floinn, fram- kvæmdastjóra viðskipta- og kynningar- sviðs utanríkis- og viðskiptaráðuneytis- ins á Írlandi, á ársfundi Íslandsstofu í gær. Colm sagði frá því hvernig brugðist var með skipulögðum hætti við til að auka útflutningstekjur Írlands í kjölfar fjármála- og efnahagshrunsins en Írland varð illa úti í hruninu og glímir enn við miklar skuldir. Til að ná aftur bata í efnahagslífinu settu yfirvöld alla áherslu á að skapa atvinnutækifæri með auknum útflutningi. Í samráði írsku ríkisstjórn- arinnar og hagsmunaaðila á markaðnum voru settar saman ítarlegar áætlanir til að auka viðskipti, fjárfestingar og ferða- þjónustu á Írlandi með það að markmiði að ná fram sem mestum slagkrafti. Hann sagði að Írland hefði náð sér vel á strik og Írar væru komnir aftur á skrið, reynslunni ríkari. Margt fram að færa Colm sagði að Írland og Ísland ættu ýmislegt sameiginlegt. „Bæði löndin eru eyjar í Norðvestur-Evrópu, bæði eru þau tiltölulega lítil hagkerfi með ekki svo marga íbúa og hlutfallslega lítil á alþjóð- legum mörkuðum. Hins vegar hafa bæði löndin margt fram að færa í alþjóðlega viðskiptaumhverfinu.“ Hann sagði að báðar þjóðir ættu skilið klapp á bakið vegna þess árangurs sem hefur náðst. „Við lifðum af erfiðleikana sem fylgdu hruninu og komum sterkari út úr því.“ Hann sagði að tekist hefði að laða erlenda fjárfesta til Írlands og út- flutningur væri meiri nú en hann var fyr- ir hrun. „Við höfum meðal annars náð að búa til leiðandi upplýsingatækni- og net- fyrirtæki. Við vissum að við þyrftum að vera samstiga til að ná árangri í að byggja aftur upp orðspor Írlands á er- lendum mörkuðum. Því var búið til sam- stillt átak til að kynna viðskiptamögu- leika margvíslegra atvinnugreina, meðal annars í upplýsingatækni, landbúnaði, vísindum, menntun og ferðaþjónustu.“ Markmið 9 milljónir ferðamanna Colm sagði að stofnað hefði verið eins- konar viðskiptaútflutningsráð sem hitt- ist tvisvar á ári í tveggja og hálfs tíma umræðu þar sem samankomnir eru ábyrgðaraðilar frá hinu opinbera og einkageiranum. Markmið eru sett fram og nefndi hann sem dæmi að núna koma 7,5 milljónir ferðamanna til Írlands ár- lega en markmiðið væri að innan tveggja ára yrðu þeir orðnir 9 milljónir. Annað dæmi um markmið nefndi hann að nú kæmu 75% fjárfestinga frá Bandaríkj- unum en markmiðið er að fjárfestingar frá nýmörkuðum nái 20% innan skamms tíma. Meðal hlutverka viðskiptaútflutn- ingsráðsins er að fylgjast með hvernig gengur að ná markmiðunum sem sett eru. Þá er innan írska utanríkisráðu- neytisins skipulagt samstillt átak í að kynna viðskiptamöguleika þar sem sendiráð þeirra um allan heim eru nýtt. Hann sagði að lykilatriðið væri að hið op- inbera og einkageirinn ynnu saman í að ná markmiðunum. 1.581 grein um Ísland erlendis Íslandsstofu er ætlað að vera sam- starfsvettvangur atvinnulífsins og stjórnvalda með þann megintilgang að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Á ársfundinum fór framkvæmdastjóri Íslandsstofu, Jón Ásbergsson, yfir rekst- ur síðasta árs. Rekstrartekjur Íslands- stofu voru 985 milljónir króna, þar af voru ríkisframlög 219 milljónir króna. Rekstrargjöldin námu 941 milljón króna og meira en helmingur fer í kynningar- og markaðsstarf. Hjá Íslandsstofu starfa 30 starfsmenn á fjórum sviðum sem eru ferðaþjónusta og skapandi greinar, fjár- festingasvið, iðnaður og þjónusta og sjávarútvegur og matvæli. Á fundinum voru nokkrar tölulegar staðreyndir kynntar í myndbandi sem sýnt var. Þar kom meðal annars fram að 72 íslensk fyrirtæki taki þátt í markaðs- verkefnunum Ísland – allt árið og Ice- land Naturally. 750 erlendir aðilar sóttu 30 vinnustofur sem Íslandsstofa skipu- lagði fyrir ferðaþjónustuna í jafnmörg- um borgum. 11 þúsund erlendum og 400 innlendum fyrirspurnum var svarað á síðasta ári. Íslandsstofa skipulagði 59 sýningar, vinnustofur, viðskiptasendi- nefndir og aðra kynningarviðburði er- lendis. Sóttar voru 26 sýningar og ráð- stefnur erlendis. 142 fyrirtæki tóku þátt í markaðsverkefnunum Iceland Respon- sible Fisheries og verkefni í Suður-Evr- ópu með íslenskar saltaðar afurðir. 627.000 fylgjendur tengjast samfélags- miðlaverkefnum Íslandsstofu. 230 íslenskir aðilar sóttu vinnustofur á vegum Íslandsstofu. 1.581 grein birtist í erlendum fjölmiðlum um Ísland og það sem íslenskt er. 130 fjölmiðlum var boðið í skipulagðar ferðir til Íslands. Íslandsstofa aðstoðaði 742 erlenda blaðamenn á árinu. 435 viðskiptatengd verkefni voru unnin í tíu löndum af við- skiptafulltrúum við sendiráð Íslands er- lendis. 1.600 manns sóttu markaðs-, vinnu- og upplýsingafundi sem haldnir voru víðsvegar um landið. 2 erlendar kvikmyndir og 5 sjónvarpsþættir voru teknir upp á Íslandi. 26 fjárfestingaverk- efni fóru í virka skoðun. 35 heimsóknir erlendra fjárfesta og 90 fundir voru haldnir með mögulegum fjárfestum er- lendis. 14 íslensk fyrirtæki aðstoðuðu við tengslamyndun við erlenda fjárfesta. Að lokum var tiltekið að vefir Íslands- stofu hefðu fengið um 2,5 milljónir heim- sókna á árinu. Þýðir ekki að hugsa smátt Samstarf hins opinbera og einkageirans skilar Írum meiri útflutningi nú en fyrir hrun Morgunblaðið/Ómar Ferðaþjónusta Írar hafa sett sér það markmið að fá 9 milljónir ferðamanna innan tveggja ára en Íslendingar eru með spá um 1,5 milljónir ferðamanna á sama tíma. Þjóðræknir Bretar bíða fyrir utan fæðingardeild sjúkrahúss í London þar sem búist er við að Katrín Middleton hertogaynja fæði annað barn sitt og Vilhjálms Bretaprins á næstunni. Breskir veðbankar telja líklegast að barnið verði skírt Alice, Charlotte, Elizabeth eða Victoria ef það er stúlka, en James, Arthur, Alexander eða Philip ef það er sveinbarn. AFP Beðið eftir öðru barni Katrínar og Vilhjálms Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Sársoltnir og örvæntingarfullir Nepal- ar þyrptust að þyrlum sem lentu á af- skekktum hamfarasvæðum í Nepal í gær, fjórum dögum eftir jarðskjálfta sem kostaði þúsundir manna lífið. Margir íbúanna voru óttaslegnir vegna fjölmargra eftirskjálfta og grátbáðu þyrluáhafnirnar um mat og drykkjar- vatn. Örvænting þeirra varð að reiði í garð yfirvalda sem þeir sögðu hafa brugðist of seint við náttúruhamförunum og ekki gert nóg til að koma hjálpargögn- um til nauðstaddra. Mikill skortur er á matvælum, drykkjarvatni og öðrum lífs- nauðsynjum á hamfarasvæðunum og margir hafa þurft að hafast við undir ber- um himni í næturkuldanum. Sushil Koirala, forsætisráðherra Nep- al, sagði að stjórnin hefði gert allt sem á valdi hennar stæði til að koma fólkinu til hjálpar en viðurkenndi að ekki hefði ver- ið hægt að bregðast nógu fljótt við hjálparbeiðnum frá afskekktum þorpum vegna skorts á tækjum og sérfræðingum í björgunarstarfi. Hermt er að um 90% af 100.000 manna herafla Nepal taki þátt í björgunar- og hjálparstarfinu. Forsætisráðherrann sagði að talið væri að allt að 10.000 Nepalar hefðu látið lífið í náttúruhamförunum. Reynist manntjónið svo mikið er þetta mann- skæðasti jarðskjálfti í sögu Nepal. Um 8.500 Nepalar og 2.200 Indverjar fórust í skæðasta skjálftanum til þessa árið 1934. Aðstæður mjög erfiðar Yfirvöld í höfuðborginni Katmandú sögðu að vitað væri um 5.057 manns sem hefðu látið lífið í Nepal. Yfir 100 manns til viðbótar fórust í grannríkjunum Indlandi og Kína. Vitað er um 8.000 manns sem slösuðust af völdum hamfaranna í Nepal. A.m.k. 18 létu lífið á Everest-fjalli, flestir þeirra burðarmenn og leiðsögumenn erlendra fjallgöngumanna. Auk þeirra fórust tveir Bandaríkjamenn, Ástrali og Kínverji. Herflugvélar frá Bandaríkjunum, Kína, Ísrael og fleiri löndum taka nú þátt í flutningum á hjálpargögnum. Talsmað- ur hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna í Nepal sagði að mjög erfitt væri að koma hjálpargögnum til afskekktra fjallaþorpa vegna slæmrar færðar, úrhellis, eftir- skjálfta og skriðufalla. Óttast að 10.000 hafi farist Reiði og mikil örvænting meðal sársoltinna íbúa á afskekktum hamfarasvæðum í Nepal Skortur á tækjum, eftirskjálftar, úrhelli og skriðuföll torvelda hjálparstarf í fjallaþorpum AFP Neyð Nepalar norpa í rigningu í fjallahéraði sem varð illa úti í jarðskjálfanum á laugardag. Lýst var yfir þriggja daga þjóðarsorg í Nepal í gær vegna manntjónsins. Milljónir urðu hart úti » Embættismenn Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær að um átta milljónir Nepala hefðu orðið fyrir skaða í náttúruhamförunum. Íbúar landsins eru alls 28 milljónir. » Um tvær milljónir manna búa á svæðum sem urðu verst úti í náttúruhamförunum. » Embættismenn Sameinuðu þjóðanna segja að yfir 1,4 milljónir manna þurfi matvælaaðstoð, þeirra á meðal 750.000 manns í grennd við upptök skjálftans. » Tugir þúsunda manna misstu heimili sitt í landskjálftanum á laugardaginn var. Fregnir herma að í sumum þorpum hafi um 90% húsanna hrunið. Flugsveit NATO sem annast loftrýmis- gæslu yfir Eystrasaltsríkjunum hefur fengið ránfugla til liðs við sig til að tryggja öryggi flugmanna og orrustu- þotna. Þrír fálkar og einn örn hafa verið fengnir til að halda uppi eftirliti yfir flug- braut nálægt fjórum stórum flugskýlum á Zokniai-herflugvellinum í norðvestan- verðu Litháen. Ránfuglarnir komu þangað frá Pól- landi ásamt fálkatemjara og fengu það verkefni að fæla aðra fugla frá flugbraut- inni til að koma í veg fyrir að þoturnar fljúgi á þá í flugtaki eða lendingu. „Jafn- vel minnstu fuglarnir geta gereyðilagt flugvél ef þeir lenda í hreyfli hennar. Þessir hreyflar eru rándýrir, svo ekki sé minnst á hættuna sem flugmönnum staf- ar af þessu,“ hefur fréttaveitan AFP eft- ir pólska höfuðsmanninum Janusz Szczypior sem tekur þátt í loftrýmis- gæslunni á vegum Atlantshafs- bandalagsins. Pólski fálkatemjarinn Mariusz Chroscinski segir að reynslan sýni að þessi aðferð sé miklu árangursríkari en tilbúnar fuglafælur við flugvelli, til að mynda búnaður sem spilar viðvörunar- hljóð fugla til að fæla þá. „Allar gervi- fuglafælur virka aðeins í skamman tíma vegna þess að fuglarnir venjast þeim, en þeir hræðast alltaf ránfuglana,“ hefur AFP eftir fálkatemjaranum. Spenna við landamærin NATO hefur annast loftrýmisgæslu yfir Eistlandi, Lettlandi og Litháen frá því að löndin gengu í bandalagið árið 2004. Eystrasaltsþjóðirnar hafa haft áhyggjur af flugi rússneskra herflugvéla í grennd við landamæri þeirra síðustu mánuði. Þotur NATO hafa oft flogið frá Zokniai-flugvelli til að fylgja rússneskum herflugvélum sem hafa flogið í grennd við landamærin og nokkrum sinnum rof- ið lofthelgi Eystrasaltsríkjanna. Rúss- nesku vélarnar hafa slökkt á ratsjár- svörum sínum, þannig að farþegaþotur sjá þær ekki á ratsjám og því getur skap- ast hætta á árekstrum. bogi@mbl.is AFP Ver varnarvélar Pólski fálkatemjarinn Mariusz Chroscinski með fálka sem hefur verið fenginn til að verja herþotur NATO á Zokniai-herflugvellinum í Litháen. Fálkar fengnir til að verja herþotur NATO Skannaðu kóðann til að sjá gengið eins og það er núna á VÍKKAÐU HRINGINN - ÁSKRIFTARLEIKUR MORGUNBLAÐSINS - Það er metnaðarfullum blaðamönnum okkar hvatning að hafa góða áskrifendur og þess vegna gerum við okkur far um að gleðja þá á sem flesta vegu. Næst gefum við heppnum áskrifanda fjórhjóladrifinn Mercedes-Benz B-Class að verðmæti 6.970.000 kr.* Allir áskrifendur Morgunblaðsins eru með í áskriftarleiknum. Fylgstu með þegar við drögum út vinningshafann þann 17. júlí. *Innifalinn í verðinu er ríkulegur aukabúnaður: bakkmyndavél, rafstillanleg framsæti með minni, regnskynjari o.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.