Morgunblaðið - 29.04.2015, Síða 15

Morgunblaðið - 29.04.2015, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015 Stoð í áli Ársfundur Samáls var í Hörpu í gær og við það tækifæri tók Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, sporið í gervifótum frá Össuri, en fyrirtækið notar meðal annars ál í framleiðsluvörur. Ólafur Teitur Guðnason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi, dansaði við Rannveigu. Kristinn Á grundvelli stjórn- arskrár okkar og laga um kosningar til Al- þingis kjósa lands- menn fulltrúa sína til að sitja á Alþingi, sem ræður því síðan hverjir veljast í stöð- ur ráðherra og fara með framkvæmda- valdið. Hingað til hef- ur þetta verið kallað lýðræði og þótt harla gott en ekki gallalaust. Nú tala ýmsir skrumarar mikið um opið lýðræði. Mér skilst, að slíkt lýðræði sé þannig, að kjósendur geti í tíma og ótíma tek- ið fram fyrir hendur þeirra, sem hafa verið kosnir til setu á Alþingi. Ég hef hvergi séð útskýrt opið lýðræði af viti, og skil því ekki hvað felst í því. Er það götulýðræði með grjót- og saurkasti á lögreglumenn og Alþingi? Sú rík- isstjórn, sem nú situr við völd á grundvelli þeirra laga, sem gilda í landinu, hefur reynt að gera ýmislegt til að laga og leiðrétta óhæfuverk vinstri stjórnar Jóhönnu Sigurð- ardóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Það er mikið verk og hefur gengið illa vegna óheilinda þingmanna í stjórnarandstöðu. Nú rísa þeir gegn þeim málum, sem þeir áður studdu. Sérstaka furðu vekur framkoma núverandi formanns Vinstri grænna, sem leggst gegn því, að rík- isstjórnin bindi enda á þá þvælu og lygar, sem Samfylk- ingin kallaði yfir þjóðina með umsókn um inngöngu í ESB í trássi við kosningaloforð Vinstri grænna og vilja meiri hluta kjósenda. Opið lýðræði? Þegar fjármálaráðherra kynnti Alþingi tillögur rík- isstjórnarinnar um breytingar á virð- isaukaskatti, vörugjaldi o.fl., brást miðstjórn ASÍ með samfylkingarmann í fararbroddi og sagði ríkisstjórn og Alþingi stríð á hendur með hótun um grófari verkfallsaðgerðir en þekkst höfðu í fjóra áratugi. Opið lýðræði? Þær stéttir samfélagsins, sem best eru settar í launum, t.d. flugstjórar, og svo það fólk, sem hefur góð laun vegna menntunar sinnar á kostnað skattborgara, t.d. læknar og sumt starfsfólk í heilbrigðisgeiranum, ríður nú á vaðið með kröfur um launahækk- anir og hótar ella brottför úr landi til sæluríkja í Skandinavíu og víðar. Eitt- hvað var djúpt á siðferði lækna (og eiðnum hans Hippokratesar gamla), þegar þeim hótunum var beitt. Af ótta við þessar hótanir og vegna þess, að grimmar verkfallsaðgerðir þeirra bitn- uðu á sjúku fólki og gömlu, voru þeim boðnir meiri peningar. Ekkert vit var í þessu peningatilboði, enda lá fyrir, að annað starfsfólk á sjúkrahúsum myndi feta í slóð læknanna. Var ekki rétt að segja þeim læknum að fara, sem vildu heldur sænska peninga fyrir störf sín, og treysta á siðferði hinna? Verkföll lækna reyndust sjúku fólki og heil- brigðiskerfinu erfiðari, því nú eru haf- in verkföll annars starfsfólks á sjúkra- húsum, og yfirmenn þar segja, að þau verkföll muni valda meiri erfiðleikum en verkföll lækna. Þá eru skemmdarverk BHM, sem framin eru í skjóli verkfallsréttar, eitt sýnishorn enn um siðleysi þeirra, sem fengið hafa sína menntun að verulegu leyti á kostnað hins almenna skatt- borgara, sem bandalagið níðist nú á. Opið lýðræði? Réttur til að gera verkföll var í ár- daga veittur þeim, sem lökust kjör höfðu, til að bæta lífskjör verkamanna og kvenna, sjómanna o.fl. Skammsýnir lýðskrumarar á vinstri væng á at- kvæðaveiðum hafa á undanförnum áratugum beitt sér fyrir verkfallsrétti um allt samfélagið, með þeim afleið- ingum, sem að ofan greinir. Þeir best settu hafa nú riðið á vaðið og þeir verst settu bíða. Skattborgarar fá ekki að vita, hvaða kröfur eru gerðar, og þeir fá ekki heldur að vita, hverjar eru raunverulegar launatekjur þeirra, sem nú keppast við að heimta meira. Allir vita, að verði þær kröfur samþykktar, vekja þær upp verðbólgudraug, sem étur launahækkanir upp á fáum mán- uðum. Það bitnar á öllum, og þjónar þeim einum tilgangi að eyðileggja þann árangur, sem ríkisstjórnin hefur náð, knésetja hana og kalla yfir þjóð- ina eina vinstri stjórn enn. Opið lýð- ræði? Gleymd eru þau orð, sem höfundur Njálu lagði Njáli í munn: „Eigi er það sættarrof … að hver hafi lög við ann- an því að með lögum skal land vort byggja en með ólögum eyða.“ Eftir Axel Kristjánsson »Eitthvað var djúpt á siðferði lækna (og eiðnum hans Hippokrat- esar gamla), þegar þeim hótunum var beitt. Axel Kristjánsson Höfundur er lögmaður. Opið lýðræði – Taka launþegar völdin? Við Íslendingar eigum ótrúleg tækifæri til að sækja fram, bæta lífskjörin og auka lífsgæði allra á komandi árum. Það er nán- ast sama hvert horft er. Tækifærin bíða eftir að þau verði gripin og nýtt. Því miður er margt sem bendir til þess að við ætlum að láta tækifærin renna úr greip- um okkar. Tekist hefur að koma böndum á ríkissjóð sem er hættur að gefa út víxla sem skattgreið- endum framtíðarinnar er ætlað að greiða. Líkur eru á því að með afnámi fjármagnshafta og uppgjöri á þrotabúum föllnu bankanna verði hægt að lækka skuldir ríkissjóðs verulega á komandi ár- um og þar með draga úr vaxtakostnaði sem er þriðji stærsti útgjaldaliður rík- isins. Með því eykst svigrúm til frekari skattalækkana. Staða sveitarfélaga er að styrkjast þótt enn glími mörg þeirra við drauga fortíðar. Vinnumarkaðurinn hefur verið að efl- ast. Frá mars 2014 til sama mánaðar á þessu ári fjölgaði starfandi fólki um 10.400 og atvinnulausum fækkaði um 3.500. Samkvæmt mælingum Hagstof- unnar jókst kaupmáttur launa um 4% á sama 12 mánaða tímabili. Allt frá febrúar á síðasta ári hefur 12 mánaða verðbólga verið undir verðbólgumarkmiðum Seðla- bankans. Þannig hefur tekist að koma böndum á gamlan fjanda íslenskra launa- manna. Staða sjávarútvegs er í flestu sterk og ferðaþjónusta heldur áfram að vaxa og styrkjast með ótrúlegum hraða. Við- skiptakjör sem rýrnuðu um 20% frá 2006 til 2013 bötnuðu um 3% á liðnu ári og horfur fyrir yfirstandandi ár eru hag- stæðar. Stoðir efnahagslífsins hafa hægt og bítandi verið að styrkjast. Flestar hagtölur gefa tilefni til bjart- sýni um bætt lífskjör almennings á næstu misserum og árum. Verkföll og átök á vinnumarkaði stefna væntan- legum lífskjarabata hins vegar í hættu. Launabarátta á villigötum Ég hef áður haldið því fram að barátta launamanna fyrir bættum kjörum sé á villigötum. Miðstýrðir kjarasamningar hafa ekki skilað þeim árangri sem þeir geta sætt sig við. Engu að síður er stað- inn vörður um kerfið í stað þess að brjóta það upp. Miðstýrðir kjarasamningar hafa myndað gjá milli launamanna og at- vinnurekanda sem þó eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta; að viðkomandi fyr- irtæki vegni sem best og hafi burði til að greiða góð laun. Stjórnendur og eig- endur fyrirtækja hafa varpað ábyrgðinni á kjörum starfsmanna sinna yfir til sam- eiginlegra samtaka atvinnurekenda. Með því hafa þeir fengið skjól frá því að semja með beinum hætti við starfsmenn með hliðsjón af stöðu fyrirtækisins. Mið- stýring kjarasamninga hef- ur einnig leitt til þess að starfsmenn eru ónæmari en ella fyrir afkomu og rekstri vinnuveitandans – líkt og það skipti þá litlu. Ein birtingarmynd mið- stýringarinnar er verkföll sem lama heilu atvinnu- greinarnar og þar með talið starfsemi fyrirtækja sem greiða starfsmönnum sín- um hærri laun en krafist er í kjaradeilu sem komin er í hnút. Þannig er hinum „góða“ atvinurekanda refsað fyrir launastefnu annarra fyrirtækja eða getuleysi þeirra til að greiða ásættanleg laun. Þannig er dregið út hvata fyrir- tækja til að gera betur við sína starfs- menn en kveðið er á um í miðstýrðum ákvörðunum sem teknar eru við samn- ingaborð verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda. Afleiðingin er lakari laun og minni samkeppni milli atvinnu- rekenda um krafta dugmikilla starfs- manna. Þversögn í launabaráttunni Miðstýrðir kjarasamningar hafa leitt í ljós ákveðna þversögn. Kjör þeirra sem lægst hafa launin eru vart boðleg en þó hafa þau hækkað meira en annarra á undanförnum árum. Þeir sem njóta hærri launa eru hins vegar sannfærðir um að þeir hafi ekki notið réttlætis og að menntun sé ekki lengur metin að verð- leikum til launa. Þetta viðhorf kemur skýrt fram í kröfugerð háskólamennt- aðra starfsmanna ríkisins. Þeir virðast sannfærðir um að of langt hafi verið gengið í launajöfnun á síðustu árum. Þannig hafa kjarabætur þeirra sem lægst hafa launin orðið vopn í höndum þeirra sem hærra eru launaðir. Þetta er því miður enn ein birtingarmynd mið- stýrðrar kjarabaráttu – það virðist úti- lokað að bæta kjör þeirra sem verst standa án þess að hinir betur settu geri sameiginlega kröfur um svipaðar og jafn- vel meiri kjarabætur. Allt hefur þetta leitt til þess að við höf- um misst sjónar á því sem er mikilvæg- ast: Að kaupmáttur launa hækki. Að ráð- stöfunartekjur hækki. Krónutöluhækkun skiptir launamann- inn engu ef hækkunin er étin upp í verð- bólgu og opinberum álögum. Raunar er líklegt að hann standi verr að vígi þar sem kaupmáttur launanna gæti minnkað og möguleikar til bættra kjara í náinni framtíð verða að engu gerðir. Skattur á láglaunafólk Því miður eru litlar líkur á að hægt verði á komandi mánuðum að brjótast út úr þeim vítahring miðstýringar sem ís- lenskur vinnumarkaður er fastur í. Sá vítahringur verður ekki brotinn í erfiðum kjaradeilum, þar sem himinn og haf er á milli samningsaðila. Við þessar aðstæður getur hið opin- bera – ríki og sveitarfélög – leikið lyk- ilhlutverk með því annars vegar að lækka álögur á atvinnulífið og hins vegar á launafólk. Ef markmiðið er að auka kaupmátt almennra launamanna skiptir hins vegar miklu hvernig að verki er staðið. Ég hef áður lagt áherslu á að ríkis- sjóður lækki tryggingagjaldið sem er lít- ið annað en skattur á laun og störf – skattur sem starfsmenn greiða í formi lægri launa. Með lækkun trygginga- gjaldsins eykst svigrúm fyrirtækja til að greiða hærri laun án þess að valda kostn- aðarhækkun. En fleira þarf að gera. Virðisaukaskattur á fatnað er fyrst og fremst skattur á þá sem lægst hafa laun- in og hafa ekki efni á því að ferðast til út- landa. Kannanir hafa ítrekað sýnt að þeir efnameiri kaupa fatnað í útlöndum á meðan láglaunafólk þarf að sætta sig við 24% virðisaukaskatt í verslunum hér á landi. Lækkun virðisaukaskatts á föt í neðra þrep (11%) og afnám tolla er því bein kjarabót sem kemur efnaminni fjöl- skyldum best. Í kaupbæti mun innlend verslun eflast og möguleikar hennar til að greiða hærri laun þar með. Þegar upp er staðið verður ríkissjóður fyrir tak- mörkuðum tekjumissi. Því miður kemur innbyggð kerfisvilla í veg fyrir að stór hluti láglaunafólks fái að njóta hugsanlegrar hækkunar á persónu- afslætti. Ástæðan er sú að hækkunin er étin upp í útsvari til sveitarfélaga. Aðeins með lækkun útsvarsprósentunnar er hægt að tryggja að hækkun persónu- afsláttar renni í launaumslögin. Það væri því eðlileg krafa, ef ákveðið verður að hækka persónuafslátt, að sveitarfélög lækki útsvarið, a.m.k. þau sem innheimta hámarksútsvar. Og í þessu sambandi er vert að hafa í huga að skattgreiðendur í Reykjavík og öðrum háskattasveitar- félögum eru viku lengur að vinna fyrir útsvarinu en þeir sem minnst greiða. Tækifærin til að bæta hér lífskjör eru fyrir hendi og augljóst er að mörg fyrir- tæki hafa góða burði til að standa undir hærri launum. Hættan er hins vegar sú að við náum ekki að nýta tækifærin vegna verkfalla og kjaradeilna og að lok- um með því að henda tækifærunum á verðbólgubál samkvæmt gömlum sið. Vítahringur á vinnumarkaði Eftir Óla Björn Kárason » Þannig hafa kjara- bætur þeirra sem lægst hafa launin orðið vopn í höndum þeirra sem hærra eru launaðir. Þetta er birtingarmynd mið- stýrðrar kjarabaráttu Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks. Í ljósi mikillar umfjöllunar í íslenskum fjölmiðlum um tengsl menntamálaráð- herra og félagsins ORKA Energy þá vil ég koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri um starfsemi félagsins. ORKA Energy sérhæfir sig í uppbygg- ingu og rekstri á hitaveitum og jarð- hitavirkjunum. Félagið er með aðsetur í Singapúr og er eignarhaldið að hluta ís- lenskt og að hluta erlent. Verkefni félags- ins eru aðallega í Kína þar sem unnið er að áframhaldandi uppbyggingu á rekstri hitaveitna og einnig á Filippseyjum þar sem unnið er að uppbyggingu á þremur litlum jarðhitavirkjunum. Auk þess er fé- lagið að skoða frekari verkefni á þessu sviði víðar í Asíu. Félagið rekur skrifstofur í Singapúr, Manila og Beijing auk þess að reka litla skrifstofu í Reykjavík sem sér aðallega um kaup á íslenskri verkfræðiþjónustu. Í heild starfa hjá félaginu og félögum því tengdum um 500 starfsmenn auk verk- taka og ráðgjafa. Reksturinn í Kína Rekstur hitaveitna í Kína byrjaði árið 2006 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók að sér að þróa hitaveitur með jarðhita í sam- starfi við kínverska orkufyrirtækið Sino- pec, sem er í eigu kínverska ríkisins. ORKA Energy fer nú með 49% eignarhlut í hitaveitunum í Kína á móti Sinopec sem er með 51%. Í stuttu máli hefur þessi rekstur vaxið samfellt og nú eru 115 hitaveitur í blómleg- um rekstri með 380 starfs- menn. Unnið er að frekari stækkunaráformum og sam- nýtingu hitaveitu við raf- orkuframleiðslu. Jákvæð umhverfisáhrif af þessari starfsemi félagsins eru gríð- arleg. Fyrir hverja hitaveitu sem sett er á legg hefur að öllu jöfnu ver- ið hægt að loka einu kolaorkuveri eða koma í veg fyrir byggingu nýrra meng- andi orkuvera, svo sem kola-, olíu- eða ga- sorkuvera. Þetta framlag íslenskra verk- fræðinga og sérfræðinga á sviði jarðhita er líklega eitt mesta framlag Íslendinga til alþjóðlegra umhverfismála. Reksturinn á Filippseyjum Filippseyjar eru eitt af þeim hag- kerfum í Asíu sem vaxa hvað hraðast, en þar er íbúafjöldi um 100 milljónir. Þess- um mikla vexti fylgir mikil eftispurn eftir raforku sem endurspeglast í háu raf- orkuverði en það er um fjórum sinnum hærra en á Íslandi. Filipps- eyjar eru líka eitt samfellt jarðhitasvæði og því kjör- aðstæður fyrir félög sem þróa jarðhitavirkjanir. Orka Energy hefur unnið að jarðhitaverkefni á Bil- iran-eyju austarlega á Fil- ippseyjum og eftir jarðbor- anir síðustu ár er nú unnið að undirbúningi þriggja lít- illa jarðhitavirkjana á svæðinu. Samhliða þessu kannar félagið nú frekari verkefni á þessu sviði á Fil- ippseyjum. Stuðningur stjórnmálamanna Þar sem félagið þróar umhverfisvæna orku, skapar mikil umsvif og skatttekjur í samfélaginu, þá hefur því hvarvetna verið vel tekið. Opinberir aðilar sýna félaginu að öllu jöfnu mikinn áhuga og stuðning enda hefur félagið fjárfest fyrir um 20 milljarða króna í ofantöldum verkefnum. Nær öll verkfræðiþjónusta og sérfræði- ráðgjöf á sviði jarðhita hefur verið keypt af íslenskum aðilum auk þess sem íslensk- ir verktakar og erlend dótturfélög þeirra hafa séð um stóran hluta framkvæmd- anna. Í því felast miklir hagsmunir fyrir íslenskt samfélag. Íslenskir ráðamenn hafa í gegnum tíðina stutt við þessa upp- byggingu félagsins, ekki síst í því skyni að viðhalda góðu orðspori íslenskrar tækniþekkingar á sviði jarðhita svo skapa megi aukin tækifæri fyrir útrás ís- lenskrar sérfræðikunnáttu á sviði jarð- hitaverkefna á alþjóðavísu. Þá hafa sendiherrar Nýja-Sjálands og sendi- fulltrúar Svíþjóðar einnig stutt við upp- byggingu á verkefnum félagsins með táknrænum hætti. Það er stefna fyrirtækisins að vera leiðandi á sviði jarðhitaverkefna í heim- inum og auka veg Íslands á því sviði, hér eftir sem hingað til. Táknrænn stuðn- ingur íslenskra ráðamanna við starfsemi félagsins á erlendum vettvangi hefur því þýðingu fyrir víðtæka íslenska hags- muni, langt út fyrir raðir félagsins. ORKA Energy Eftir Eirík Bragason » Þetta framlag íslenskra verkfræðinga og sér- fræðinga á sviði jarðhita er líklega eitt mesta framlag Íslendinga til alþjóðlegra umhverfismála. Eiríkur Bragason Höfundur er verkfræðingur og forstjóri ORKA Energy Singapore.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.