Morgunblaðið - 29.04.2015, Síða 24
Norski leikhópurinn Jo
Strömgren Kompani sýnir
tvö verk úr smiðju dans- og
leikskáldsins Jo Strömgren
18.-23. maí nk. í Tjarnarbíói
og leikur leikarinn Ívar Sverr-
isson í þeim báðum en hann
hefur búið og starfað í Nor-
egi sl. fimm ár. Annars vegar
verður sýnd barnasýningin
Eldhúsið og hins vegar The Border.
Strömgren hefur komið reglulega til Íslands
sem danshöfundur hjá Íslenska dansflokknum og
leikstjóri hjá Borgarleikhúsinu. Leiksýningin Eld-
húsið er fyrsta sýning Jo Strømgren sem er sér-
staklega ætluð börnum. Hún segir frá tveimur
ólíkum persónum sem finna autt hús og vilja
báðar eiga heima þar en það er óljóst hvor varð
fyrri til að finna það.
The Border fjallar um tvær persónur, Harald og
Jelenu, sem deila skrifstofu á ónefndum landa-
mærum milli vesturs og austurs. Þau tala ekki
sama tungumál og eru mjög ólík í alla staði en
það kemur sú stund að þau þurfa að leita lengra
og út fyrir eigin þægindaramma til að kynnast
betur. Sýningin er í grunninn leikverk sem bland-
að hefur verið með dansi þegar persónurnar þrýt-
ur orð til að tjá tilfinningar sínar og ástand, eins
og segir í tilkynningu.
Ívar í tveimur verkum eftir
Strömgren í Tjarnarbíói
Ívar Sverrisson
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 4 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Stytti Arnar sér leið?
2. Telur að loka þurfi göngunum
3. Vilborg Arna er þakklát
4. Ingvar ósáttur við yfirlýsingu ÍR
Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunaut-
ur Þjóðleikhússins, stýrir léttu spjalli um leik-
ritið Fjalla-Eyvind og Höllu sem sýnt er í Þjóð-
leikhúsinu, í Leikhúskaffi í Borgarbókasafninu í
Gerðubergi í kvöld kl. 20. Nína Dögg Filipp-
usdóttir og Steinn Ármann Magnússon,
sem leika Höllu og Björn hrepp-
stjóra, munu segja frá sýning-
unni og hlutverkum sínum. Í
Leikhúskaffi Gerðubergs og
Þjóðleikhússins gefst
áhorfendum kostur á að
taka þátt í umræðum um
leiksýningar, hitta aðstand-
endur þeirra og fræðast um
leikverkin.
Nína og Steinn segja frá
Fjalla-Eyvindi og Höllu
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 3-10 m/s. Þurrt um landið V-vert, annars dálítil él, en
slydda syðst síðdegis. Hiti um og yfir frostmarki, en allt að 10 stiga hiti með S-ströndinni.
Á fimmtudag Austlæg átt 3-8 m/s. Snjókoma eða slydda af og til S-lands, annars skýjað
með köflum og úrkomulítið. Frost 0 til 4 stig, en hiti 0 til 4 stig á S- og V-landi yfir daginn.
Á föstudag Hæg austlæg eða breytileg átt. Él um landið A-vert, en bjart með köflum í
öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið.
Það var sannkölluð háspenna lífshætta þegar Fjölnir og Víkingur
áttust við í fjórða leiknum í umspilinu um sæti í úrvalsdeild karla í
handknattleik í Dalhúsum í Grafarvogi í gærkvöld. Í æsispennandi
leik þar sem úrslitin réðust í framlengingu höfðu Fjölnismenn
betur, 24:23. Kristján Örn Kristjánsson reyndist hetja Fjöln-
ismanna en hann skoraði sigurmarkið á lokasekúndu framleng-
ingarinnar og ætlaði allt um koll að keyra á heimavelli Fjöln-
ismanna þegar úrslitin réðust. Með sigrinum tryggði Fjölnir sér
oddaleik en eftir að Víkingar höfðu unnið fyrstu tvo leikina í um-
spilinu hafa strákarnir úr Grafarvogi unnið tvo leiki í röð. Odda-
leikurinn fer fram í Víkinni annað kvöld og þar ræðst það hvort
liðið fylgir liði Gróttu upp í Olís-deildina. »16
Fjölnismenn náðu að knýja fram oddaleik
Það ríkir sannkölluð sigurhátíð hjá blakfólki HK-inga í Kópavogi. Í gærkvöld
varð kvennalið félagsins Íslandsmeistari en á dögunum hampaði karlalið HK
Íslandsmeistaratitlinum. HK tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn með því að
leggja Aftureldingu að velli í oddaleik að Varmá í miklum spennuleik. HK
hafði betur 3:2. HK vann fyrstu hrinuna 25:23 en Afturelding jafnaði metin í
1:1 með sigri í annarri hrinu, 25:22. HK tók forystuna á nýjan leik með því að
vinna þriðju hrinuna 25:22 en Afturelding hafði betur í fjórðu hrinunni,
26:24, og nældi í oddahrinu. Þar reyndist HK miklu sterkari aðilinn og vann
hana, 15:5.
HK-ingar komu þar með í veg fyrir að Mosfellingar ynnu þrefalt á leiktíð-
inni en Afturelding varð deildarmeistari í vetur og vann einnig bikarmeist-
aratitilinn. »16
HK varð Íslandsmeistari í blaki kvenna
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 119. DAGUR ÁRSINS 2015
Æfingin skapar meistarann Á myndinni má sjá tónlistarmenn á æfingu en þeir munu leika tónlist Jóns Múla Árnasonar í Hörpunni á morgun.
Spila djass frá
morgni til kvölds
Tónlistarmenn spila í Hörpu fram eftir kvöldi
190 þjóðir halda djass-daginn hátíðlegan
Brynja Dögg Guðmundsdóttir Briem
brynjadogg@mbl.is
Tónlistarmenn eru nú byrjaðir að búa sig
undir alþjóðlegan dag djassins. Dagurinn verð-
ur haldinn hátíðlegur á morgun, fimmtudaginn
30. apríl. UNESCO, stofnun á vegum Samein-
uðu þjóðanna, útnefndi daginn árið 2011 til að
tileinka djasstónlist. Í dag halda 190 þjóðir
hann hátíðlegan, víðs vegar um heiminn, en
þetta er í fimmta sinn sem dagurinn er haldinn
hátíðlegur. Á Íslandi verður hátíðinni fagnað í
Hörpunni.
„Þessu var komið á fót til að vekja athygli
á djasstónlist og samvinnu og bræðralagi milli
þjóða í gegnum tónlist. Vakin var athygli á já-
kvæðum hliðum á þessu fyrirbæri sem djass-
tónlist er, þó að hún eigi sér margvíslegan upp-
runa en tónlistin er orðin að alþjóðlegu
tungumáli,“ segir Sigurður Flosason, tónlistar-
maður. Sigurður lék á saxófón á djasshátíðinni í
fyrra.
Á Íslandi verður fjölbreytt tónlistar-
dagskrá í Hörpu. Ólafur Jónsson saxófónleikari
undirbýr sig ásamt hljómsveit sinni, Tríói Ólafs
Jónssonar, fyrir tónleika morgundagsins. Hann
kveðst ekki vera orðinn stressaður vegna tón-
leikanna heldur einfaldlega einbeita sér að því
að hafa gaman af þessu og hafa þetta skemmti-
legt.
Leikið fram eftir kvöldi
Dagskráin í Hörpu hefst klukkan tólf og
mun standa með hléum fram á kvöld. Fjöl-
margir tónlistarmenn stíga á stokk en þar fara
fremstir Jazzklúbburinn Múlinn, Jazzhátíð
Reykjavíkur og Jazzdeild FÍH. Hljómsveitin
Reykjavík Swing Syndicate ríður á vaðið með
„auðmeltanlega og létta“ djasstónlist en leikin
verður sveiflutónlist millistríðsáranna. Hljóm-
sveitin er skipuð Hauki Gröndal, Gunnari Hilm-
arssyni og Leifi Gunnarssyni. Næst tekur við
Tríó Ólafs Jónssonar sem leikur milli klukkan
tvö og þrjú. Þá hljómsveit skipar Ólafur sjálfur
auk Richard Anderson og Eirik Qvick. Klukkan
fjögur verður leikin djasstónlist í anda tromp-
etleikarans Chet Baker. Snorri Sigurðsson
trompetleikari kemur þar fram ásamt Ásgeiri
J. Ásgeirssyni og Gunnari Hrafnssyni. Síðar
um daginn verður sagt frá Jóni Múla Árnasyni
og um kvöldið verður leikin tónlist eftir hann.
Sameiningartákn
„Tónlistin í sínum fjölbreyttu myndum er
talin geta verið tákn sameiningar fyrir fólk af
ólíkum uppruna og frá öllum heimshornum,“
segir Ólafur. Hann segir þó hápunkt djassdags-
ins vera tónleika kvöldsins. Tónleikarnir verði
tileinkaðir Jóni Múla Árnasyni en Jazzklúbb-
urinn Múlinn hafi verið nefndur í höfuðið á hon-
um. Ókeypis er á tónleikana og er dagskráin
talin henta bæði yngri og eldri tónlistarunn-
endum.
Árlega velur UNESCO eina þjóð og gerir
netútsendingu frá djasstónleikum staðarins. Á
síðasta ári varð Osaka í Japan fyrir valinu en
að þessu sinni verður sjónvarpað frá París.
Þess má geta að oft er talað um Frakkland sem
síðari fæðingarstað djasstónlistar á eftir
Bandaríkjunum en frá seinni heimsstyrjöld hef-
ur París verið mjög áberandi fyrir sköpun
djasstónlistar. Á vefsíðu Jazz-dagsins kemur
fram að þar í landi sé ekki einungis mikið hlust-
að á djasstónlist heldur tónlistinni einnig gert
hátt undir höfði og mikið lagt í að greina og
varðveita listrænt gildi hennar.
Á vefsíðunni www.jazzday.com má horfa á
galatónleikana í París. Á síðunni eru líka ít-
arlegar upplýsingar um sögu dagsins, hvaða
þjóðir halda upp á hann og hvar þjóðirnar
halda tónleika, svo og almenn fræðsla um
djasstónlist.
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
ÓSKASTJARNAN
Þann 17. júlí hittir einn af áskrifendum Morgunblaðsins á óskastund þegar
við drögum út glæsilegan, fjórhjóladrifinn Mercedes-Benz B-Class með 7 þrepa
sjálfskiptingu að verðmæti 6.970.000 kr.* í áskriftarleik Morgunblaðsins.
Víkkaðu hringinn með Morgunblaðinu í sumar.
*Innifalinn í verðinu er ríkulegur aukabúnaður: bakkmyndavél, rafstillanleg framsæti með minni, regnskynjari o.fl.
Barcelona bauð upp
á sannkallaða flug-
eldasýningu þegar
liðið tók á móti
Getafe í
spænsku 1.
deildinni í
knattspyrnu í
gær. Börsung-
ar fóru á kost-
um og unnu
stórsigur, 6:0,
eftir að staðan
hafði verið 5:0
í hálfleik.
Messi, Neymar
og Suárez skor-
uðu allir og
samanlagt hafa
þeir nú skorað
100 mörk á leik-
tíðinni. »16
Sóknartríó
Barcelona komið
með 100 mörk