Fréttablaðið - 15.09.2015, Síða 8

Fréttablaðið - 15.09.2015, Síða 8
Fjögurra ára uppbygging fyrir bí Hjón sem hafa rekið jarðhitasýningu í Hellisheiðarvirkjun í fjögur ár eru ósátt við að leigusamningur þeirra hafi ekki verið endurnýjaður. Þau segja dótturfyrirtæki OR ætla að reka sýninguna á þeirra uppbyggingu. Hjónin Auður Björg Sigurjónsdóttir og Kristinn Gíslason hafa síðan árið 2011 byggt upp ferðaþjónustu í Hellisheiðarvirkjun í gegn um fyrirtæki sitt, Orkusýn. Samningur við OR rennur út í október. Fréttablaðið/Vilhelm Viðskipti „Þegar litla gula hænan var búin að þreskja korn og baka brauðið þá komu aðrir til að éta það. Það er akkúrat það sem er verið að gera hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) í dag,“ segir Kristinn H. Gíslason, en hann og kona hans, Auður Björg Sigurjóns- dóttir, hafa rekið jarðhitasýningu í Hellisheiðarvirkjun síðan í mars 2011. Dótturfélag OR, Orka náttúr- unnar (ON), hefur ákveðið að endur- nýja ekki leigusamning við hjónin, sem rennur út í október, og sjá sjálft um sýninguna. Forsagan er sú að Auði var sagt upp sem deildarstjóra hjá kynningardeild OR árið 2010 í fjöldauppsögnum. Leiga á sýningarrými Hellisheiðar- virkjunar var svo boðin út og Auður og Kristinn hófu rekstur á sýningunni í mars árið 2011. „Við rákum þetta með bullandi tapi fyrstu tvö árin. Svo var afkoman orðin mjög þokka- leg. Fyrsta árið gaf okkur um tuttugu þúsund gesti en á síðasta ári komu 94 þúsund gestir. Við greiddum OR tíu milljónir í húsaleigu á síðasta ári fyrir að kynna þá og nú á bara að úthýsa okkur og greiða ekki neitt fyrir það, einhverja smáaura,“ segir Kristinn. Samkvæmt Kristni hefur ON boðið þeim að borga fyrir efnislega hluti sem þau hafa keypt inn í sýningar- rýmið og 1,2 milljónir aukreitis fyrir viðskiptavild og dagbók um staðfest- ar bókanir fram á næsta ár. „En stað- festu bókanirnar jafngilda peningum upp á 28 milljónir. Það á sem sagt að fá allt fyrir ekkert.“ Uppbygging hjónanna hefur meðal annars falist í því að hafa leiðsögu- mann með ferðum um virkjunina og að hafa kynningarupptöku á níu tungumálum. Kristinn spáir því að ON muni tapa á því að taka reksturinn yfir. „Á fyrsta árinu tapa þeir þessum tíu milljónum sem þeir fengu í húsaleigu hjá okkur. Svo hafa svörin frá ferðaþjónustunni til okkar verið þannig að hún er með okkur. ON á eftir að tapa á rekstrinum svona fimmtán til tuttugu milljónum. Og hvar ætla þeir að fá það? Úr vasa orkukaupandans?“ Eiríkur Hjálmarsson, upplýsinga- fulltrúi OR og ON, segir að samn- ingurinn við hjónin hafi fyrst verið til tveggja ára og svo framlengdur. Ákvæði banni að hann verði fram- lengdur aftur. Þá hafi valið staðið á milli þess að bjóða leiguna út aftur, sem hefði getað farið til þeirra ef þau hefðu haft besta boð, eða að hætta leigu á húsnæðinu. „Meðal þess sem hefur breyst frá því þetta var boðið út 2010 er að nú er komið nýtt fyrir- tæki sem rekur þessar virkjanir. Það er fyrirtæki sem starfar alfarið á samkeppnismarkaði. Þar á bæ finnst mönnum eðlilegt að fyrirtækið sjái sjálft um að kynna sig og sína starf- semi.“ Eiríkur segir að þegar samningnum var að ljúka hafi viðræður verið tekn- ar upp við félag hjónanna. „Þá komu fram kröfur um rúmar fjörutíu millj- ónir. Það er óhemju há fjárhæð að greiða leigjanda þegar leigusamningi lýkur.“ snaeros@frettabladid.is Meðal þess sem hefur breyst frá því þetta var boðið út 2010 er að nú er komið nýtt fyrirtæki sem rekur þessar virkjanir. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi OR og ON FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI Breytingar skatta og gjalda 2016 17. sept. | kl. 8:30-10:00 | Borgartúni 27 Kynntar verða breytingar á sköttum og gjöldum á einstaklinga og fyrirtæki sem boð aðar eru í frum­ varpi til fjárlaga 2016. Einnig verður gerð grein fyrir áhuga verðum laga setning um á árinu 2015. Skráning á kpmg.is Viðskipti Gló veitingar ehf. sem rekur veitingastaði og verslun undir heitinu Gló seldi vörur fyrir 572 millj- ónir króna á síðasta ári. Sala jókst um tæpar 150 milljónir milli ára. Tap varð af rekstri félagsins á árinu 2014 að fjárhæð 11,9 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi, saman- borið við fimm milljónir árið áður. Eigið fé félagsins var neikvætt um 19,4 milljónir króna, þar af nemur hlutafé félagsins 540 þúsund krón- um. Eignir í lok árs námu 233 millj- ónum, samanborið við 66 milljónir í árslok 2013. Á árinu störfuðu að meðaltali 40 starfsmenn hjá félaginu og námu launagreiðslur samtals 196,9 millj- ónum króna. – sg Seldu heilsufæði fyrir hálfan milljarð Sólveig Eiríksdóttir er eigandi veitinga- staðarins Gló. Fréttablaðið/Stefán stjórnmál Heiða Kristín Helga- dóttir tók sæti Bjartar Ólafsdóttur á þingfundi í gær, en sú síðarnefnda ól tvíbura á dögunum og er núna í fæðingarorlofi. Þá tók Brynhildur Björnsdóttir tímabundið sæti Óttars Proppé, nýkjörins formanns Bjartrar framtíðar. Bæði Heiða Kristín og Brynhildur hafa áður tekið sæti á Alþingi í fjarveru aðalmanna. – jhh Heiða Kristín og Brynhildur á Alþingi Heiða Kristín tekur sæti í fjarveru Bjartar Ólafsdóttur. Fréttablaðið/Stefán Orkumál „Núverandi staða þar sem fyrirtæki á Austurlandi þurfa að sæta skerðingu á afhendingu raforku, er óásættanleg og uppbygging á því kerfi verður að vera forgangsverk- efni,“ segir bæjarráð Fljótsdalshér- aðs sem kveður mikilvægt að styrkja flutningskerfi raforku innanlands og þá sérstaklega til og frá Austurlandi. „Komi að því loknu til lagningar sæstrengs til Evrópu lítur bæjarráð svo á að öll rök séu fyrir því að tengja hann inn á Austurland og telur ýmsar þær röksemdir sem tilgreindar eru í drögum að kerfisáætlun varðandi tengingu sæstrengs ekki eiga rétt á sér,“ ályktar bæjarráðið. – gar Sæstrengur verði frá Austurlandi Sæstrengur lagður til Vestmannaeyja. Mynd/Landsnet 1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 Þ r i ð j u D A G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 3 2 -2 2 7 0 1 7 3 2 -2 1 3 4 1 7 3 2 -1 F F 8 1 7 3 2 -1 E B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 1 4 9 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.