Fréttablaðið - 15.09.2015, Side 13

Fréttablaðið - 15.09.2015, Side 13
Myndir af líkum barna og fullorð- inna sem drukkna á flótta yfir Mið- jarðarhafið hafa birst reglulega í fjöl- miðlum upp á síðkastið. Við sjáum að aðstæður þeirra flóttamanna sem komast til Evrópu eru skelfilegar. Skortur er á vatni, húsaskjóli og mat – og við slíkar aðstæður eru börn við- kvæmust. Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa miklar áhyggjur af þeim fjölda flóttabarna sem hafa flúið til Evrópu á síðustu mánuðum í von um betra líf, ekki síst þeim sem eru án fjölskyldna sinna. Yfir tvær milljónir sýrlenskra barna hafa flúið heima- land sitt og eru ýmist í flóttamanna- búðum eða á ferðlagi frá Sýrlandi. Um 2.000 fylgdarlaus flóttabörn hafa komið til Ítalíu og hátt í 150.000 sýr- lensk börn hafa fæðst utan landsins frá því að átökin hófust fyrir fjórum og hálfu ári síðan. Innan landamæra Sýrlands Milljónir barna sem enn búa innan landamæra Sýrlands eiga á hættu að verða fyrir sprengjuárásum, ofbeldi, að missa foreldra sína eða tapa eigin lífi – eins og 10.000 börn hafa þegar gert. Örvinglaðir foreldrar hafa engan annan kost en að flýja heimaland sitt þar sem hungur, rjúkandi rústir og brostnir innviðir minna á að dapur- leg framtíð blasir við þeim sem eftir sitja. Um tvær milljónir barna hafa flúið land en innan Sýrlands eru 3,5 milljónir barna á flótta. Um þrjár milljónir sýrlenskra barna njóta ekki réttar síns til mennt- unar og það hefur áhrif á framtíðar- möguleika þeirra. Barnaheill – Save the Children hafa dreift mat, drykkjarvatni, lyfjum og skjóli til barna og fjölskyldna þeirra. Samstarfsaðilar okkar hætta lífi sínu til að koma lífsnauðsynlegri hjálp til torfarinna svæða í Sýrlandi. Sem frjáls félagasamtök njótum við góðs af hlutleysi í stjórnmálum og það eflir mannúðarstarf okkar á þessu svæði. Í flóttamannabúðum Barnaheill – Save the Children vinna í Jórdaníu, Líbanon, Írak, Egyptalandi og Tyrklandi að því að dreifa matar- miðum, matarpökkum og brauði til að hjálpa börnum að fá nægilega nær- ingu. Til að vernda flóttabörn frá kuld- anum er teppum dreift til fjölskyldna. Gefin hafa verið segl til að skýla þeim sem búa í tjöldum eða skemmdum byggingum og útbúin eru örugg svæði þar sem börn geta leikið og lært. Á flótta Í skjóli nætur koma rúmlega 1.000 flóttamenn til Grikklands á hverjum sólarhring. Á þessu ári er heildartala sýrlenskra flóttamanna til lands- ins komin í 130.000 manns og stefnir í að ná 200.000 fyrir áramót. Auk þess streyma þúsundir til landa Evrópu- sambandsins í von um betra líf. Til að styðja flóttabörn og fjöl- skyldur þeirra í Grikklandi er unnið að því að tryggja að börn séu líkam- lega örugg, fái nægilegan mat og sál- rænan stuðning. Bleyjum, hreinlætis- vörum og fæðu er dreift til barna og fjölskyldna þeirra. Um þessar mundir er unnið að átaki við að koma upp skjóli og tryggja matargjafir áður en veturinn skellur á, en áhersla er á vernd barna. Á Ítalíu er unnið á móttökustöðv- um við að mæta þörfum barna og stuðla að bæði líkamlegu og andlegu heilbrigði. Þetta er gert í formi matar, lyfja, fata, hreinlætisaðstöðu og lög- fræðiaðstoðar til fjölskyldna. Ákall til þjóðarinnar Vandinn er risavaxinn og meiri en svo að einstaka ríki geti borið ábyrgð á þeim gífurlega fjölda fólks sem flæðir til Evrópu. Okkur ber öllum siðferðisleg skylda til að rétta fram hjálparhönd til þeirra sem flýja stríðsátök og að tryggja að þær millj- ónir barna sem búa innan Sýrlands séu verndaðar gegn ofbeldinu. Barnaheill – Save the Children hafa gefið út neyðarkall til allra Evrópulanda og skorað hefur verið á íslensk stjórnvöld að bregðast við ástandinu tafarlaust. Stórauka þarf fjármagn til neyðaraðstoðar og taka á móti fleiri flóttamönnum til lands- ins, ekki síst börnum og fjölskyldum þeirra, sem og fylgdarlausum börn- um. Gæta þarf sérstaklega að því varðandi börn sem eru fylgdarlaus að fullreynt hafi verið að finna fjöl- skyldur þeirra. Barnaheill hvetja fyrirtæki til að styðja starf hjálparsamtaka og höfða til samfélagslegrar ábyrgðar þeirra, sérstaklega fyrirtækja sem geta greitt arð. Einnig hvetjum við hinn almenna borgara til að styðja starfið og bjarga þannig lífi flóttafólks. Hægt er að styðja mannúðarstarf Barnaheilla – Save the Children með því að hringja í söfnunarsímann 904 1900 fyrir 1.000 króna stuðning, eða með því að leggja inn upphæð að eigin vali á reikning 336-26-58, kt. 521089-1059. Börn á flótta – Hvað gerum við? Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Sigríður Guðlaugsdóttir verkefnastjóri kynningarmála, Barnaheill – Save the Children á Íslandi Stórauka þarf fjármagn til neyðaraðstoðar og taka á móti fleiri flóttamönnum til landsins. Fylgdu okkur á facebook. facebook.com/kiamotorsisland ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Kia Ceed bíður þín í Öskju, Krókhálsi 11. Komdu og prófaðu, við tökum vel á móti þér. Kia Ceed Sportswagon LX 1,4 — dísilbíll. Verð frá 3.440.777 kr. Eða 52.130 kr. á mánuði í 84 mánuði* *Mánaðarleg afborgun miðast við 10% útborgun og bílalán til 84 mánaða. Bílalánstölur eru viðmiðunarverð og geta breyst án fyrirvara. Útborgun aðeins 349.777 kr. SWakalegur fjölskyldubíll 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum cee’d fjölskyldan frá Kia samanstendur af cee’d og cee'd Sportswagon, sem er rúmbetri og hentar því vel þar sem þörf er á meira rými fyrir farangur. Bílarnir eru allir einstaklega sparneytnir og eyða frá 4,1 l/100 km. Hiti í stýri er staðal- búnaður. 7 ára ábyrgð er á öllum nýjum Kia bílum. s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 1 5 . s e p T e m B e R 2 0 1 5 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K _ N Ý.p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 3 1 -B 5 D 0 1 7 3 1 -B 4 9 4 1 7 3 1 -B 3 5 8 1 7 3 1 -B 2 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 1 4 9 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.