Fréttablaðið - 15.09.2015, Síða 25

Fréttablaðið - 15.09.2015, Síða 25
CRÉATIVE TECHNOLOGIE Frábær vinnuaðstaða með góðu aðgengi fyrir farm og farþega. 180° opnun á afturhurðum, rennihurð, þægileg hleðsluhæð, há sætisstaða og fjöldi geymslu- hólfa. Öflug en sparneytin 90 hestafla dísilvél ásamt spólvörn og ESP stöðugleikakerfi gera Berlingo Van að öruggum og hagkvæmum kosti fyrir þinn rekstur. Brimborg er stærst í sölu atvinnubíla á Íslandi. Veldu traust umboð með einstöku þjónustuframboði fyrir bíla- og tækjaflota. KOMDU OG PRÓFAÐU CITROËN BERLINGO VAN citroen.is • 3,3 M - 4,1 M HLEÐSLURÝMI • 850 KG BURÐARGETA • 3JA MANNA • SPARNEYTINN •3 3 Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. BETRI REKSTUR OG AUKIN ÞÆGINDI CITROËN BERLINGO VAN 1,6 HDi 90 hö dísil VERÐ FRÁ: 2.379.032 KR. ÁN VSK VERÐ FRÁ: 2.950.000 KR. MEÐ VSK Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Körfubolti Mótastjórn Körfuknatt- leikssambands Íslands, KKÍ, staðfesti í gær að aðeins sjö lið myndu taka þátt í Dominos-deild kvenna í vetur. Eftir að KR óskaði eftir því að lið sitt yrði fært niður um deild var liðum Breiðabliks og Njarðvíkur boðið sæti KR án árangurs. Mun ekk- ert lið falla að móti loknu. Það vakti óneitanlega athygli þegar KR ákvað að óska þess að vera fært niður um deild en fimm ár eru síðan liðið varð síðast Íslandsmeistari. Guðrún Kristmundsdóttir, formað- ur körfuknattleiksdeildar KR, segir að málið eigi sér eðlilega skýringu. . „Við vorum með mjög fáskipað lið og mikið af ungum stelpum sem hefðu illa þolað álagið af því að spila í Dominos-deildinni. Fyrir vikið tókum við ákvörðun um að hlúa betur að ungu stelpunum og reyna að vinna okkur upp. Markmiðið er að vinna í ungviðinu, byggja upp og komast aftur upp í efstu deild í fram- tíðinni,“ segir Guðrún, sem sagði það engum gott að vera sífellt að tapa. „Það er erfitt, þær eru ungar og vantar reynslu. Þetta er þétt leikjadag- skrá og þetta var bara að okkar mati of mikið fyrir þessar stúlkur á meðan þær eru að fullorðnast. Við teljum að þetta sé besta ákvörðunin fyrir KR.“ Boðið kom of seint Stefán Þór Borgþórsson, mótastjóri KKÍ, tók undir að málið liti illa út þegar tvö lið neituðu að taka sæti í deild þeirra bestu. „Þetta gerðist fyrir þremur árum að lið óskaði eftir því að færa sig um deild og þá samþykkti annað lið að taka sæti hins. Ég held að þetta boð hafi bara komið of seint. Leikmanna- markaðnum er eiginlega lokað og lið- unum sem voru boðin sætin voru að undirbúa sig fyrir það að spila í fyrstu deild.“ Mikill gæðamunur er á milli 1. deildar og Dominos-deildarinnar en það er ekki algengt að ná í erlendan leikmann hjá liðum í fyrstu deild. „Þú vilt ekki í sterkustu deildina ef þú ert með mannskap sem á ekkert erindi í hana, þá stendurðu kannski verr að vígi eftir eitt ár. Það er miklu dýrara að vera samkeppnis- hæfur í efstu deild, þú þarft erlendan atvinnumann og það er ekki í mynd- inni hjá liðum í 1. deildinni.“ Krafa um samkeppnishæft lið „Það var rætt um að stækka deildina á síðasta ársþingi og það er vilji hjá félögunum að komast í efstu deild,“ sagði Stefán sem sagði samkeppnis- hæft lið vera lykilatriði. „Það þarf að vera með samkeppnis- hæft lið. Þessi ákvörðun er tekin með langtímahagsmuni í huga því þetta hefði verið erfitt, það er mikill getu- munur milli deilda.“ Tindastóll tók svipaða ákvörðun á dögunum þegar félagið ákvað að leggja niður meistaraflokk kvenna og skrá lið í unglingaflokki til þess að hlúa betur að ungum kjarna liðsins. „Það er ekki hægt að fela sig í körfu- bolta og þú þarft að hafa líkamlegan og andlegan styrk. Það er andlega erfitt að tapa mörgum leikjum. Það gerist oft að ungir leikmenn sem lenda í miklum erfiðleikum ákveði að hætta vegna þess.“ Aukin skuldbinding hjá félögunum Stefán tók undir að málið liti illa út en hann sagði að áhuginn á körfu- bolta væri að aukast úti um land allt. „Það er komin meiri alvara í fleiri félög og þar af leiðandi er erfiðara að vera með. Um leið og samkeppnin eykst innan vallar eykst skuldbinding félaganna. Það er ekki hægt lengur að vera bara með góða leikmenn, þú þarft góðan þjálfara,“ sagði Stefán sem sagði þjálfaramálin allt önnur. „Áður fyrr voru þjálfarar í kvennaflokki oft bara leikmenn úr karlaflokki en núna eru þjálfarar sem einblína á körfuknattleik kvenna,“ sagði Stefán en fyrir ári var farið af stað með utandeild í kvennaflokki. „Ég held að það hafi aldrei verið fleiri lið á Íslandi sem hafa boðið upp á kvennakörfubolta frá 6 ára aldri og upp úr sem er jákvætt. Við erum ekki að upplifa neikvæða tíma þótt það sé auðvitað neikvætt að vera ekki með fulla deild, eigum við ekki að kalla þetta vaxtarverki?“ sagði Stefán léttur. kristinnpall@365.is Bara góðir leikmenn dugar ekki lengur Aðeins sjö lið keppa í Dominos-deild kvenna í vetur og fellur ekkert lið að mótinu loknu. Eftir að KR dró lið sitt úr keppni höfnuðu tvö lið sæti í deild þeirra bestu. Mótastjóri segir þetta áhrif þess að með aukinni samkeppni hafi fagmennska aukist í deildinni. KR varð síðast Íslandsmeistari í kvennaflokki árið 2010 en félagið leikur ekki í efstu deild í vetur. Fréttablaðið/Vilhelm S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 21Þ r i ð J u D A G u r 1 5 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 3 2 -A 2 D 0 1 7 3 2 -A 1 9 4 1 7 3 2 -A 0 5 8 1 7 3 2 -9 F 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 1 4 9 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.