Fréttablaðið - 15.09.2015, Side 30
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda.
Net fang: f ibut@ f ibut . is
Til bókaútgefenda:
Bókatíðindi 2015
Skráning nýrra bóka í Bókatíðindi
2015 er hafin.
Útgefendur eru hvattir til að skrá bækur
sínar sem allra fyrst en lokaskil vegna
kynninga eru 14. október.
Bókatíðindum verður sem fyrr
dreift á öll heimili á Íslandi.
Hægt er að leggja fram bækur til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
2015 til 14. október nk.
www.f ibut . is
Íslensku
bókmenntaverðlaunin
TónlisT
Verk eftir Mozart, schumann og
Jórunni Viðar
Fimmtudagur 10. september.
Flutningur: Sinfóníuhljómsveit Íslands
Stjórnandi: Cornelius Meister
Einleikari: Arngunnur Árnadóttir
Rétt eins og Hafnfirðingabrandarar þá
er til fullt af klarinettubröndurum. Hér
er einn: Hver er munurinn á klarinettu
og lauk? Svar: Enginn grætur þegar þú
skerð klarinettuna niður í litla bita.
Annar: Hvað kallarðu hóp klarinettu-
leikara í heitum potti? Grænmetissúpu.
Sá þriðji: Hverju kastarðu til drukknandi
klarinettuleikara? Klarinettutöskunni.
Ég veit ekki af hverju klarinettu-
leikarar eru svo forsmáðir að fólki er
ráðlagt að bjarga þeim EKKI ef þeir
eru að drukkna. Ég veit bara að ég
myndi henda mér út í ef Arngunn-
ur Árnadóttir klarinettuleikari væri í
slíkum aðstæðum. Ekki nema til að fá
að heyra hana spila Mozart aftur. Ein-
leikur hennar með Sinfóníuhljómsveit
Íslands, þar sem hún spilaði konsertinn
í A-dúr var með því fegursta sem ég hef
lengi heyrt.
Það var eitthvað ótrúlega ferskt við
túlkunina. Hægi kaflinn var hrífandi
einlægur, unaðslega mjúkur og dreym-
andi. Hröðu kaflarnir voru sömuleiðis
fumlausir, óheftir og leikandi léttir.
Hljómsveitin spilaði líka af aðdáunar-
verðri fagmennsku undir öruggri stjórn
Cornelius Meister. Hljómsveitarleikur-
inn var notalega blátt áfram og tækni-
lega nákvæmur. Þetta var dásamlegur
flutningur.
Tvö önnur verk voru á dagskránni.
Annað var stutt og nefndist Eldur
eftir Jórunni Viðar. Tónlistin skartaði
grípandi laglínum en virkaði nokkuð
sundurlaus. Enda var hún samin sem
balletttónlist, átti greinilega að falla að
tiltekinni atburðarás. Það væri gaman
að heyra Eld og sjá dansinn við hann.
Tónlistin hefur verið leikin áður á
tónleikum, en dansinn hefur vantað.
Án hans er verkið aðeins skugginn af
sjálfu sér.
Meira var varið í Vorsinfóníu Schu-
manns. Þetta er fyrsta sinfónía tón-
skáldsins, kölluð svo vegna þess hve
glaðleg hún er. Schumann þjáðist af
geðhvarfasýki. Þegar hann var í maníu
samdi hann og samdi, stundum á
undraskömmum tíma. Árið 1841
var hamingjuríkur tími í lífi hans
og hann skutlaði sinfóníunni á blað
á fjórum dögum. Hljómsveitin lék
prýðilega undir stjórn Meisters, túlk-
unin var full af ákefð. Strengirnir
voru breiðir og safaríkir, blásararnir
pottþéttir. Heildarmyndin var kraft-
mikil og litrík, akkúrat eins og verkið
átti að hljóma. Maður hálfpartinn
dansaði út í náttmyrkrið á eftir.
Jónas Sen
niðursTaða: Frábær Mozart þar
sem Arngunnur Árnadóttir fór á
kost um. Schumann kom líka vel út.
Fumlaust, óheft, leikandi létt
Fyrir þrjátíu árum var opnuð á Kjarvals-stöðum sýningin Hér og nú. Sýningin var hluti af Listahátíð kvenna árið 1985 og tóku 28 mynd-
listarkonur þátt í sýningunni.
Síðastliðinn laugardag var svo
opnuð á Kjarvalsstöðum sýningin
Kvennatími – Hér og nú þrjátíu
árum síðar.
Sýningarstjóri Kvennatími – Hér
og nú þrjátíu árum síðar er Anna
Jóa, myndlistarmaður og listfræð-
ingur, og hún segir að hún hafi nú
aðeins verið unglingur á fyrsta ári
í menntaskóla þarna fyrir þrjátíu
árum en hafi engu að síður verið
fengin til að stýra sýningunni í ár.
„Þetta byggir á þessari hugmynd
að kalla aftur saman þennan hóp
og tilefnið er ákveðið kvenna-
samhengi. Á sínum tíma var það
Listahátíð kvenna sem var haldin
vegna loka kvennaáratugar Sam-
einuðu þjóðanna en í dag er til-
efnið 100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna. Þetta var hópur 28 kvenna
sem sýndu árið 1985 og þær eru
þarna allar nema ein, eru 27 í dag
en tvær eru reyndar látnar og við
sýnum verk eftir þær.
Þetta er flottur hópur af lista-
mönnum og þær hafa allar verið
virkar á listasviðinu í þessi þrjátíu ár
og ég bað þær um að vera með nýleg
verk. Sumar hafa reyndar verið
virkar á öðrum sviðum en myndlist-
inni, eins og t.d. Valdís Óskarsdóttir
kvikmyndagerðarkona og Þórunn
Sigríður Þorgrímsdóttir leikmynda-
hönnuður, en þær eru þarna báðar
með ný verk.
Annars eru þetta virkar mynd-
listarkonur sem hafa verið mis-
sýnilegar hin síðari ár en þó eru
langflestar mjög þekktar og virkar.
En þetta eru ólíkir listamenn sem
vinna með ólíka miðla þannig að
það var krefjandi að setja saman
sýninguna sem er þó fjölbreytt og
skemmtileg fyrir vikið.“
Anna segir að verkin geti í raun
ekki talist einhver sérstök kvenna-
verk. „Þetta eru ekki verk sem fjalla
eitthvað sérstaklega um jafnréttis-
baráttuna eða konur, það eru þó
nokkur verk sem tengjast konum
með sérstökum hætti en meirihlut-
inn er um allt mögulegt eins og var
fyrir þrjátíu árum. Þá var hugmynd-
in að sýna hvað konur væru að fást
við í myndlist hér og nú og þetta
er sama pælingin núna. Kvenna-
samhengið kemur meira fram í titli
sýningarinnar þar sem vísað er í
kvennatíma á þessum þrjátíu árum
sem eru liðin. Einn þáttur sýningar-
innar er að við erum með skissur og
annað grúsk sem sýna sköpunar-
ferlið og þannig gefum við aðeins
tilfinningu fyrir tímanum.
Ég tók líka viðtöl við þessar konur
sem segja okkur sitthvað um stöðu
kvenna í myndlist og hvernig er að
vera kona í myndlistarheiminum.
Þetta eru mikilvæg viðhorf kvenna
sem hafa lifað á þessum tíma í þrjá-
tíu ár.“
Aðspurð hvort þörf hafi verið
fyrir sérstaka kvennasýningu á borð
við þessa segir Anna Jóa að hún sé
óneitanlega enn til staðar. „Eflaust
er þörfin ekki jafn mikil og hún var
þá, sem sést vel á því ef maður lítur
til kvenna í myndlist af eldri kyn-
slóðinni og stöðu þeirra í mynd-
listarheiminum. Það sýnir svo ekki
verður um villst að það veitir ekki
af sérstökum sýningum þar sem
þeirra framlag er gert sýnilegra en
ella. Auðvitað hefur listheimurinn
breyst en maður sér til að mynda á
Listasögunni sem var gefin út árið
2011 hvað hlutur kvenna hefur
verið rýr í samanburði við karlana.
Öll umfjöllun og útgáfa er konum
mjög í óhag og erfiðara fyrir konu
að ná í gegn. Eins er þetta varðandi
markaðinn; þá er það einfald-
lega staðreynd að verkin eru síður
metin og að það er borgað minna
fyrir verk eftir konu. Þetta segja þær
allar sem hafa verið í þessu lengi
óháð því hversu þekktar þær eru
og þannig er þetta bæði hér heima
og úti í hinum stóra heimi. Þann-
ig að þörfin fyrir að taka á þessum
málum er svo sannarlega til staðar
þó svo heilmikið hafi áunnist.“
Anna Jóa segir að eftirfylgni sé
líka mikilvægur þáttur í þessu ferli
og að næsta föstudag verði hún með
sýningarstjóraspjall á Kjarvalsstöð-
um í hádeginu.
„Svo verður líka málþing í
tengslum við þessa sýningu 14.
nóvember og þá gefst tækifæri
til þess að fara yfir stöðuna og
ræða þetta kvenár vítt og breitt.
Það hafa verið ýmsar sýningar í
gangi sem þessu tengjast og það
er mikilvægt að vinna úr því og
skoða hverju þetta hefur skilað.“
magnus@frettabladid.is
Konur hér og nú í 30 ár
Fyrir 30 árum var opnuð á Kjarvalsstöðum sýningin
Hér og nú. Sýningin var hluti af Listahátíð kvenna árið 1985
og tóku 28 myndlistarkonur þátt í henni. Síðastliðinn
laugardag var opnuð, einnig á Kjarvalsstöðum, sýningin
Kvennatími – Hér og nú þrjátíu árum síðar.
Sýnendur á Kvenna-
tími – Hér og nú þrjá-
tíu árum síðar
Arngunnur Ýr Gylfadóttir, Ásdís
Sigurþórsdóttir, Ásta Ólafsdóttir,
Björg Þorsteinsdóttir, Björg Örvar,
Borghildur Óskarsdóttir, Brynhildur
Þorgeirsdóttir, Elín Magnúsdóttir, Erla
Þórarinsdóttir, Guðný Magnúsdóttir,
Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Guðrún
Kristjánsdóttir, Hansína Jensdóttir,
Harpa Björnsdóttir, Hulda Hákon,
Ína Salóme Hallgrímsdóttir, Íris Elfa
Friðriksdóttir, Jóhanna Bogadóttir,
Jóhanna Kristín Yngvadóttir, Ragna
St. Ingadóttir, Rósa Gísladóttir, Sigrún
Harðardóttir, Sóley Eiríksdóttir, Valdís
Óskarsdóttir, Valgerður Hauksdóttir,
Þorbjörg Höskuldsdóttir, Þórunn Sig-
ríður Þorgrímsdóttir
Anna Jóa sýningarstjóri á sýningunni á Kjarvalsstöðum. Fréttablaðið/GVA
ÖLL umFjÖLLun og
útgáFa er Konum
mjÖg í óHag og erFiðara
Fyrir Konu að ná í gegn. einS
er þetta varðandi marKað-
inn; þá er það einFaLdLega
Staðreynd að verKin eru
Síður metin og að það er
borgað minna Fyrir verK
eFtir Konu.
★★★★★
1 5 . s e p T e M b e r 2 0 1 5 Þ r i ð J u D a G u r26 M e n n i n G ∙ F r É T T a b l a ð i ðMenning
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
3
0
-F
A
3
0
1
7
3
0
-F
8
F
4
1
7
3
0
-F
7
B
8
1
7
3
0
-F
6
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
9
2
0
1
5
C
M
Y
K