Fréttablaðið - 15.09.2015, Síða 36
Tryllingurinn baksviðs
Tískuvikan í New York stendur nú sem hæst. Diane Von Fursten
berg er iðulega litrík og með þeim hressari, og ekki brást henni
bogalistin í þetta skiptið. Fjörið er þó ekki bundið við tískupallana
eina, því iðulega er mikið um dýrðir baksviðs þar sem nafn
togaðir mæta, til að sýna sig og sjá aðra.
Leikkonan Malin Akerman og ljós-
myndarinn Katie Laas Ellis voru býsna
ánægðar með sig að tjaldabaki.
Aðalnúmerið,
Diane von Fursten-
berg, naut sín í hvívetna.
Fjölmiðlamógúllinn Diane Sawyer lét
sig ekki vanta hjá nöfnu sinni.
Kanónurnar Karlie Kloss, Gigi Hadid og Irina Shayk gengu
fyrir Diane á sýningunni. Þær þykja með þeim allra flottustu
á pöllunum um þessar mundir.
Nicky Hilton mætti og skartaði þessari
stórfínu óléttukúlu.
Kyle Jenner sýndi hönnun Diane Von Furstenberg,
og var augljóslega í essinu sínu, hvort sem var á
pöllunum eða á bak við.
Í dag verður fyrsti fundur vetrarins hjá Ungum
athafnakonum. Þar verður kynnt dagskrá fyrir
komandi misseri ásamt því að Halla Tómas-
dóttir, einn af stofnendum Auðar Capital,
heldur fyrirlesturinn „Invest like a girl“ en hún
hefur flutt erindið víða við góðar undirtektir.
Fyrir ári var stofnfundur Ungra athafna-
kvenna haldinn og þar var meðal annars kosið í
stjórn en í ár eru þær að leita að nýjum stjórnar-
meðlimi.
„Dagskráin fyrir veturinn er með svipuðu
sniði og seinasta ár nema mun metnaðarfyllri
og með skýrari stefnu. Við erum með fleiri
viðburði enda búnar að vera að undirbúa
dagskrána í allt sumar. Við erum með nokkur
vandamál sem við höfum viljað einblína á. Við
höfum verið með fyrirlestra um samningatækni
með áherslu á launamál en hugarfar í þeim
málum er eitthvað sem við viljum breyta,“ segir
Lilja Gylfadóttir, formaður samtakanna.
Búist er við að yfir 100 manns mæti í kvöld
en viðburðurinn er opinn öllum ungum konum
sem vilja kynnast störfum UAK og hlusta á fyrir-
lestur Höllu.
Dagskrá vetrarins hefst strax eftir tvær vikur
með áhugaverðum pallborðsumræðum. „Við
höldum þær í samvinnu við VÍB þar sem við
fáum nokkrar konur sem hafa gert það gott í
íslensku atvinnulífi. Þær ætla til dæmis að segja
frá hindrunum sem þær hafa orðið fyrir, hvað
þær þurftu að gera til þess að stíga yfir þær og
hvort það sé eitthvað búið að breytast í dag,“
segir Lilja Gylfadóttir, formaður Ungra athafna-
kvenna.
Hægt er að sækja um stöðu í stjórn UAK í
gegnum ungarathafnakonur@gmail.com.
Ungar athafnakonur með skýra stefnu fyrir veturinn
Ungar athafnakonur
Leik-og söngkonan Victoria
Justice bar af baksviðs, en
hún þykir hafa hitt naglann á
höfuðið íklædd þessum fallega
samfestingi, en megininntak
sýningarinnar var einmitt
sjöundi áratugur síðustu aldar.
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r32 l í f I Ð ∙ f r É t t A b l A Ð I ÐLífið
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
3
2
-2
2
7
0
1
7
3
2
-2
1
3
4
1
7
3
2
-1
F
F
8
1
7
3
2
-1
E
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
9
2
0
1
5
C
M
Y
K