Fréttablaðið - 15.09.2015, Page 38

Fréttablaðið - 15.09.2015, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 5 -0 9 1 9 525 2080 // sala@valitor.is // www.valitor.is Posi með myntvali Bjóddu viðskiptavinum þínum upp á Myntval. Með Myntvali (DCC) skynjar posinn ef kortið er erlent og korthafi getur valið gjaldmiðilinn sem hann greiðir í. ÞÚ SÉRÐ UM SÖLUNA – VIÐ SJÁUM UM GREIÐSLUNA „Við erum að springa úr spenn- ingi. Þetta verður tryllingur til góðs,“ segir rapparinn Atli Sig- þórsson, einnig þekktur sem Kött Grá Pjé, um styrktar tónleika sem fara fram á Húrra í kvöld. Tónleik- arnir bera yfirskriftina #Öllbörn og eru til styrktar sýrlenskum flótta- mönnum. „Við viljum gera það sem við getum til að hjálpa fólki í neyð,“ segir Helgi Sæmundur Guð- mundsson, annar af tveimur með- limum sveitarinnar Úlfur Úlfur. Margir þekktir tónlistamenn koma fram á Húrra í kvöld. Ásamt Úlfi Úlfi og Kött Grá Pjé munu Sísí Ey, Mosi Musik, Lay Low, Fox Train Safari og Bellstop koma fram. „Ef fólk er sammála þessum málstað; að við eigum að hjálpa flótta- mönnum í neyð, þá á það að mæta í kvöld. Það er ekki nóg að tala bara um þetta á Facebook. Með því að mæta á tónleikana er hægt að leggja sitt af mörkum,“ segir Helgi Sæmundur. Kött Grá Pjé hefur ekki spil- að á tónleikum svo mánuðum skiptir. „Þetta verður mitt fyrsta gigg í hálft ár og ég viður- kenni að það er spennandi að stíga aftur á sviðið. Strákarnir sem eru með mér og ég erum mjög spenntir að koma fram.“ Hálfs árs pásuna hefur rapparinn nýtt vel. „Ég vildi bara hvíla mig á að skralla og djöflast á sviði. Ég er bara búinn að vera að gera tón- list og skrifa í rólegheitunum.“ Helgi Sæmundur og Arnar Freyr Frostason í Úlfi Úlfi sendu frá sér plötuna Tvær plánetur í sumar og hafa viðtökurnar verið frábærar. Sveitin er ein sú vinsælasta á landinu í dag og geta aðdáendur hennar hlakkað til, því von er á meiru. „Við erum ekkert að slaka á. Við erum búnir að vera að fylgja plötunni eftir og erum líka að plana nýtt verkefni,“ útskýrir Helgi. Bæði Helga Sæmundi og Atla þykir mikilvægt að geta lagt sitt lóð á vogar skálarnar á kvöldi sem þessu. „Ég er mikill andþjóðernissinni og í raun „andlandamærasinni“, ef ég má taka þannig til orða. Fyrir mér er þetta svo borðleggjandi, við eigum að hjálpa fólki í neyð, sama hverrar trúar það er og hvað- an það kemur,“ segir Atli. Helgi tekur undir þau orð Atla. „Við munum gefa allt í þessa tónleika, gefa fólkinu sem mætir til að styðja málstaðinn allt sem við eigum. Það er fínt að hafa þessa tónleika á þriðjudagskvöldi, þetta verður svo gaman að það verður alveg þess virði að vera slappur á m i ð vi ku d e g i n u m . “ Húrra verður opnað klukkan 19 í kvöld. Aðgangs- eyrir er 1.500 krónur en þeir sem vilja geta greitt hærri upphæð. Allur ágóði tón- leikanna rennur óskertur til starfs UNICEF í Sýrlandi. kjartanatli@frettabladid.is Þetta verður tryllingur til góðs Margir þekktir tónlistarmenn koma fram á Húrra í kvöld, á tónleikum til styrktar sýrlenskum flóttamönnum. „Við eigum að hjálpa fólki í neyð,“ segir rapparinn Kött Grá Pjé. Hin vinsæla sveit Úlfur Úlfur verður á staðnum í kvöld. Fréttablaðið/Ernir Andþjóðernissinninn Kött Grá Pjé er ánægður að geta lagt lóð sitt á vogar- skálarnar. Lay Low kemur fram á Húrra í kvöld. Ég er mikill and­ Þjóðernissinni og í raun „andlandamæra­ sinni“, ef Ég má taka Þannig til orða. fyrir mÉr er Þetta svo borðleggjandi, við eig­ um að hjálpa fólki í neyð, sama hverrar trúar Það er og hvaðan Það kemur. 1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r34 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 3 1 -4 9 3 0 1 7 3 1 -4 7 F 4 1 7 3 1 -4 6 B 8 1 7 3 1 -4 5 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 4 9 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.