Fréttablaðið - 15.09.2015, Page 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
Svo virðist sem Ólafur Ragnar sé lenging (við Íslendingar höfum ekki gaman af styttingum) á
enska orðinu oracle, það er að segja
véfrétt.
Eins og við vitum báru menn
allar meiriháttar ákvarðanir undir
véfréttina í Delfí í Grikklandi
hinu forna. Hún stóð í eiturgufum
og talaði í óráði svo skáldlegt
ímyndunarafl þurfti til að túlka svar
hennar. Við Íslendingar búum svo
vel að forseti vor getur gert þetta
sama allsgáður.
Þessi skemmtan sem þjóðin hefur
af því að rífast um hvað Ólafur
Ragnar segir er ágætis dægrastytt-
ing, en hún gefur þó til kynna að
þjóðin sé orðin löt og ráðalaus. Hún
veit ekki hvað hún vill fyrr en hún
veit hvað forsetinn vill. Hún vill ekki
ríða á vaðið heldur bíða bara úrslita
einsog lífið sé endalaust Eurovision
eða knattspyrnuleikur.
En það má ekki gleymast að áður
en maður tekur við einhverjum
leiðbeiningum, skipunum eða skila-
boðum er betra að þekkja sjálfan
sig, vita hvaðan komið er og hvert
vilji stendur til að fara. Ég er ekkert
viss um að okkar þjóð viti þetta
nú á tímum þegar öll umræðan og
ákvarðanir um hana byggjast aðal-
lega á því hvað sé gróðavænlegast.
Tal sem ekki er stutt með gróða-
tölum þykir óábyrgt. En Excel segir
þér ekkert um það hver þú ert.
Ödipus skildi alveg skilaboðin frá
véfréttinni sem sagði að hann ætti
eftir að drepa föður sinn og gilja
móður sína. Hann vissi bara ekki
hver hann var og hvert hann ætti að
halda og því fór sem fór.
Það er vissulega gaman að spyrja
Ólaf Ragnar og geta svo rifist um
það hvað hann var að segja. En
þjóðin mætti alveg spyrja sjálfa sig
hvort hún viti hvaðan hún kemur,
hver hún er og hvort hún viti hvert
hún vill fara.
Eða vill hún kannski vaða blind af
græðgi og óafvitandi áleiðis í föður-
vígin og sifjaspellið?
Véfréttin á
Bessastöðum
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Einelti
er ógeð
Leggðu þitt af mörkum!
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
3
0
-E
1
8
0
1
7
3
0
-E
0
4
4
1
7
3
0
-D
F
0
8
1
7
3
0
-D
D
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
1
4
9
2
0
1
5
C
M
Y
K