Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.09.2015, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 15.09.2015, Qupperneq 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Svo virðist sem Ólafur Ragnar sé lenging (við Íslendingar höfum ekki gaman af styttingum) á enska orðinu oracle, það er að segja véfrétt. Eins og við vitum báru menn allar meiriháttar ákvarðanir undir véfréttina í Delfí í Grikklandi hinu forna. Hún stóð í eiturgufum og talaði í óráði svo skáldlegt ímyndunarafl þurfti til að túlka svar hennar. Við Íslendingar búum svo vel að forseti vor getur gert þetta sama allsgáður. Þessi skemmtan sem þjóðin hefur af því að rífast um hvað Ólafur Ragnar segir er ágætis dægrastytt- ing, en hún gefur þó til kynna að þjóðin sé orðin löt og ráðalaus. Hún veit ekki hvað hún vill fyrr en hún veit hvað forsetinn vill. Hún vill ekki ríða á vaðið heldur bíða bara úrslita einsog lífið sé endalaust Eurovision eða knattspyrnuleikur. En það má ekki gleymast að áður en maður tekur við einhverjum leiðbeiningum, skipunum eða skila- boðum er betra að þekkja sjálfan sig, vita hvaðan komið er og hvert vilji stendur til að fara. Ég er ekkert viss um að okkar þjóð viti þetta nú á tímum þegar öll umræðan og ákvarðanir um hana byggjast aðal- lega á því hvað sé gróðavænlegast. Tal sem ekki er stutt með gróða- tölum þykir óábyrgt. En Excel segir þér ekkert um það hver þú ert. Ödipus skildi alveg skilaboðin frá véfréttinni sem sagði að hann ætti eftir að drepa föður sinn og gilja móður sína. Hann vissi bara ekki hver hann var og hvert hann ætti að halda og því fór sem fór. Það er vissulega gaman að spyrja Ólaf Ragnar og geta svo rifist um það hvað hann var að segja. En þjóðin mætti alveg spyrja sjálfa sig hvort hún viti hvaðan hún kemur, hver hún er og hvort hún viti hvert hún vill fara. Eða vill hún kannski vaða blind af græðgi og óafvitandi áleiðis í föður- vígin og sifjaspellið? Véfréttin á Bessastöðum Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Einelti er ógeð Leggðu þitt af mörkum! 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 8 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 3 0 -E 1 8 0 1 7 3 0 -E 0 4 4 1 7 3 0 -D F 0 8 1 7 3 0 -D D C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 1 4 9 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.