Ægir - 01.07.2014, Blaðsíða 20
20
ine og önnuðust starfsmenn
Héðins, umboðsaðila Rolls
Royce Marine á Íslandi þennan
verkþátt. Með þriðju vindunni
hefur Baldvin NC möguleika til
að draga tvö troll samtímis og
segir Sigurður að þegar hafi
reynt á þá veiðitækni við Græn-
land í sumar.
Fyrirtækið Frystikerfi Ráðgjöf
í Reykjavík hafði með endurnýj-
un frystikerfis að gera en nýja
kerfið er keyrt á ammoníaki í
stað freons en sá kælimiðill er á
útleið í skipastólnum af um-
hverfisástæðum. Láréttir
plötufrystar eru í skipinu en til
viðbótar voru settir niður sex
lóðréttir frystar sem skapa
möguleika á heilfrystingu. Sig-
urður segir að afkastageta
skipsins á frystingu aukist um-
talsvert en lestarrými er nú tví-
skipt, þ.e. annars vegar frystilest
og hins vegar kælilest.
Miðað við bæði fyrir ísfisk og
frystingu
Sigurður segir að hönnun
breytinganna hafi miðast við að
bæði sé hægt að gera skipið út
á ísfisk og frystingu og raunar
sé mögulegt að vinna aflann
samhliða í ísfisk og frost, þegar
slíkt hentar. Slippurinn á Akur-
eyri smíðaði nýjan búnað á
vinnsluþilfarið, settir voru í
skipið nýir hausarar frá Baader,
flokkari frá Marel, nýr útsláttar-
búnaður kemur frá fyrirtækinu
Klaka og enn ein nýjungin er
kerfi frá Pall Pack sem raðar
frystum afurðum sjálfvirkt á
bretti og skilar þeim frágengn-
um niður í lest.
Eins og áður segir var loka-
áfangi breytinganna unninn á
Akureyri þar sem komu að
starfsmenn Slippstöðvarinnar,
fyrirtækið Rafeyri á Akureyri
annaðist raflagnavinnu og
starfsmenn fyrirtækjanna N.
Hansen, Hamars, HG verktaka
og Rösks Rafvirkja komu að
einstökum þáttum. Þá hannaði
Raf&Tækni breytingar á rafkerf-
um og stjórnbúnaði vinnslu.
Sérefni ehf. hafði umsjón með
málun. Heildarhönnun breyt-
inga skipsins annaðist Skipa-
tækni ehf.
Sigurður Kristjánsson, skipstjóri í brúarglugganum.
Frystikerfi Ráðgjöf ehf. - Viðarhöfða 6 - 110 Reykjavík
Óskum útgerð og áhöfn Baldvins NC 100
til hamingju með endurbæturnar á skipinu
Mynd: Þórir Ó. Tryggvason