Fréttablaðið - 27.04.2015, Qupperneq 2
27. apríl 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
UMHVERFISMÁL Tekið er að bruma í Vaglaskógi og
sætur birkisafinn er því farinn að fljóta.
Starfsstöð Skógræktar ríkisins á Akureyri í sam-
starfi við fyrirtækið Foss Distillery safnar nú birki-
safa úr birkitrjám í Vaglaskógi til að nýta í ýmis þró-
unarverkefni.
Verkefnið hefur staðið yfir síðan í fyrravor en í
Vaglaskógi hefur verið komið upp aftöppunarbúnaði á
41 tré. Birkisafann má nýta í ýmislegt, en Foss Distill-
ery, nýtir hann til að blanda birkilíkjör. Þá er safinn,
sem inniheldur 1 til 2 prósent sykur, tilvalinn í síróps-
gerð, ísgerð og bakstur.
Benjamín Örn Davíðsson, aðstoðarskógarvörður í
Vaglaskógi, var við aftöppun á trjánum í fyrradag en
þá söfnuðust um 30 lítrar. „Það er á þessum árstíma
þegar trén eru að vakna úr dvala og draga í sig vatn
úr jörðinni sem best er að safna birkisafanum,“ segir
Benjamín. „Það er auðvitað algengt um heim allan að
sækja vökva í hlyn og birki en þetta er alveg nýtt hér
á Íslandi. Þetta opnar augu manns fyrir ýmsum mögu-
leikum,“ segir Benjamín sem segir að safann mætti
nýta vel ef fundinn er fyrir hann góður markaður.
Jakob Bjarnason, framkvæmdastjóri Foss Distill-
ery, hefur um nokkurt skeið unnið þróunarvinnu með
birkisafa. „Búið er til síróp úr safanum sem við nýtum
síðan í líkjöra sem við köllum Björk og Birki. Salan
á þeim gengur afar vel og ferðamenn hafa mikinn
áhuga á þessu. það er líka mikil nýlunda að nota þetta
í kokteilagerð,“ segir Jakob.
Benjamín segir að hver sem er geti í raun safnað
birkisafa en vanda þarf til verka við að safna honum.
Tréð sem safnað er úr þarf að vera stórt og hraustlegt
með góða krónu. Þá þarf að bora litla holu og koma
fyrir slöngu til að safna safanum. Þegar vatnsupptaka
á sér stað í trénu ætti vökvinn að seytla inn í slönguna.
Passa verður að nota ekki sama tré mörg sumur í röð.
„Ég var sjálfur að prófa að sjóða síróp,“ segir Benja-
mín, en hægt er að sjóða safann í um þrjá tíma til að
úr verði ljúffengt síróp.
Vonast er til að safamagnið aukist til muna þegar
trén taka að springa út. Þá er engin reynsla komin á
hvenær skal hefja safatöku og hvaða tré skuli velja
en ekki virðist vera hægt að áætla hvaða þættir hafi
áhrif á safamagnið sem hvert tré framleiðir daglega.
stefanrafn@frettabladid.is
Prófa fyrir sér með
vinnslu á birkisafa
Skógrækt ríkisins og Foss Distillery vinna saman að því að safna birkisafa til þró-
unarverkefna. Birkisafa má nýta í sírópsgerð, bakstur, ís, líkjöragerð auk þess sem
hann er að verða vinsælt hráefni í kokteila. Söfnunin er best á þessum árstíma.
SAFANUM SAFNAÐ Benjamín hefur komið fyrir áaftöppun-
arbúnaði á 41 tré í Vaglaskógi. MYND/PÉTUR HALLDÓRSSON
➜ Birkisafinn er talinn mjög hollur. Hann
má drekka beint eða kældan úr ísskáp.
Sumir nota birkisafa við ísgerð, ölgerð eða
ýmsa matargerð og brauð sem birkisafi er
notaður í eru sögð lyfta sér sérlega vel.
STJÓRNMÁL Fimm þingmenn Samfylkingarinnar,
með Helga Hjörvar í fararbroddi, hafa lagt fram
frumvarp um breytingu á almennum hegningarlög-
um sem veita mun dómurum heimild til að dæma
unga afbrotamenn til samfélagsþjónustu. Mun
ákvæðið ná til afbrotamanna á aldrinum 15-21 árs
og taka til skilorðsbundinna dóma.
Þingmönnunum finnst vanta úrræði sem er nokk-
urs konar millistig á milli skilorðsbundinna dóma í
upphafi brotaferils og óskilorðsbundinnar fangelsis-
refsingar á síðari stigum.
Samfélagsþjónusta felur í sér ólaunað starf í þágu
samfélagsins, svo sem líknar- eða félagsstarf ýmiss
konar, sem er unnið utan vinnutíma. Þetta úrræði er
afar sjaldan nýtt hér á landi þegar kemur að ungum
brotamönnum. Það er vegna þess að samfélagsþjón-
usta kemur einungis til skoðunar í tilviki óskilorð-
sbundinna dóma.
Þingmennirnir fimm telja úrræðið fela í sér veru-
legt uppeldislegt gildi og það er von þeirra að það
dragi úr líkum á því að umrædd ungmenni leiðist á
braut frekari afbrota. - kbg
Leggja fram frumvarp um samfélagsþjónustu ungra brotamanna:
Uppeldislegt gildi í refsingum
TÆKIFÆRI Helgi Hjörvar er einn þeirra þingmanna Sam-
fylkingar sem leggja til breytingar á hegningarlögum í því
skyni að gefa ungu fólki tækifæri til að rata rétta leið í líf-
inu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SÍLE Gloría Villaroel, 42 ára, sést hér halda fyrir vit sín vegna ösku-
falls í bænum La Ensanda í Síle. Tvær miklar sprengingar urðu í eld-
fjallinu Calbuco, sú fyrri seinnipart miðvikudags en sú seinni snemma
á fimmtudag.
Michelle Bastellet, forseti Síle, lýsti yfir neyðarástandi og nú hafa
meira en 6.500 manns þurft að yfirgefa heimili sín. Mikið öskufall
hefur orðið í suðurhluta Síle. Alls eru 90 virk eldfjöll í Síle og eldgos
nokkuð algeng. Síðast gaus í Calbuco árið 1972 en það var lítið gos.
Stærra gos varð í því árið 1961, en alls hefur fjallið gosið tíu sinnum
frá árinu 1837. - fbj
Margir eiga erfitt vegna gríðarlegs öskufalls í Síle:
Allt í ösku í Síle vegna Calbuco
ALLT Í ÖSKU Meira en 6.500 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Síle vegna
goss í eldfjallinu Calbuco. NORDICPHOTOS/AFP
BÚRÚNDÍ Tveir létu lífið í átökum
við lögreglu í mótmælum í Buj-
umbura, höfuðborg Búrúndí, í
gær.
Þúsundir andstæðinga forseta
landsins, Pierres Nkurunziza,
héldu fjöldamótmæli í borg-
inni þrátt fyrir bann við fjölda-
samkomum. Lögregla skaut á
mótmælendur auk þess sem hún
beitti táragasi og sprautaði vatni
til að dreifa mótmælendum.
Nkurunziza hefur verið forseti
í tvö kjörtímabil nú þegar.
- srs
Óeirðir í höfuðborg Búrúndí:
Lögregla skaut
mótmælendur
FJÁRMÁL Í síðasta vefriti FME
kemur fram að stjórn eftirlitsins
hefur metið störf 14 stjórnarmanna
í stjórnum fyrirtækja ófullnægj-
andi og vikið einum stjórnar-
manni úr stjórn vegna vanhæfis.
Á tímabilinu 2010 til 2014 hafa 194
stjórnarmenn farið í viðtal hjá ráð-
gjafarnefndinni. Af þeim reyndist
þekking 180 stjórnarmanna full-
nægjandi og þekking 14 ófullnægj-
andi. Reynist þekking ófullnægj-
andi er algengast að viðkomandi
segi sig úr stjórn eftirlitsskylds
aðila að eigin frumkvæði. - kbg
Fjórtán metnir vanhæfir:
Einum vikið úr
stjórn af FME
KJARAMÁL „Það er algert neyð-
arúrræði eins og ég horfi á hlut-
ina,“ sagði Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra um að setja
lögbann á verkfallsaðgerðir sem
í gangi eru. „Það hefur aldrei
komið til tals í þessum viðræðum
sem nú standa yfir,“ sagði Bjarni
í útvarpsþættinum Sprengisandi
í gær.
Hann sagði að staðan væri
mjög snúin þar sem miklar vænt-
ingar væru á lofti. Bjarni sagði
að finna yrði leiðir til að mæta
kjaravæntingum fólks á sama
tíma og halda yrði efnahagslíf-
inu stöðugu.
„Við erum með ramma utan
um vinnumarkaðinn sem geng-
ur ekki upp,“ sagði hann. „Þetta
fyrirkomulag, að smáir hópar
geti tekið litlar stofnanir í gísl-
ingu til að knýja fram niðurstöðu
í sínum kjaraviðræðum, getur
sett vinnumarkaðinn í uppnám
sem leiðir yfir þjóðfélagið síðan
verðbólgu,“ sagði Bjarni sem vill
breyta fyrirkomulagi kjaramála.
Verkföll
dýralækna
h a f a h a f t
nokkrar afleið-
ingar í kjöt-
vörufram-
l e i ð s l u e n
Charlotta Odds-
dótt ir, ta ls -
maður dýra-
lækna, hafnar
því að verkföll
séu á kostnað dýravelferðar.
„Það er eitthvað sem dýralækn-
ar vilja vísa til föðurhúsanna.
Samkvæmt lögum er það dýra-
eigandi eða sá sem heldur dýr
sem ber ábyrgð á velferð sinna
dýra. Dýralæknar eru opinberir
starfsmenn og okkur er mjög í
mun að dýravelferð verði ekki
undir í þessari kjarabaráttu.
En auðvitað er það svo að ef það
koma inn tilkynningar þar sem
bændur hafa virkilega áhyggjur
þá eru öll þau mál skoðuð,“ sagði
Charlotta.
- lb / srs
Talsmaður dýralækna hafnar því að verkföll dýralækna bitni á dýravelferð enda sé hún á ábyrgð eigenda:
Lög á verkfallsaðgerðir ekki til umræðu
BJARNI
BENEDIKTSSON
VEÐUR
Í dag er útlit fyrir svipað veður og
undanfarið, hvassa norðanátt, jafnvel
storm austan til á landinu. Þá er áfram
útlit fyrir snjókomu og skafrenning
norðan til. Sunnanlands verður bjartviðri,
en stöku él á höfuðborgarsvæðinu.
3°
-0°
10
7
7 12
18
SJÁ SÍÐU 14
-2°
-0° 0°
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
B
-7
8
B
C
1
7
5
B
-7
7
8
0
1
7
5
B
-7
6
4
4
1
7
5
B
-7
5
0
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K