Fréttablaðið - 27.04.2015, Síða 4

Fréttablaðið - 27.04.2015, Síða 4
27. apríl 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 ef keypt eru 10 stk. – annars 50 kr. stk. 40 Veldu einhverja 10 ávexti á ávaxtamarkaði Krónunnar og þú borgar... FERILL MÁLSINS DÝR „Dýraverndarlögin eru í grunninn góð,“ segir Arn- dís Björg Sigurgeirsdóttir, hjá dýraverndunarfélaginu Villi- köttum. „Þar er margt vel unnið eins og með hesta og önnur húsdýr en þar er ekkert fjallað um villi- ketti,“ segir Arndís sem bendir á að velferð villikatta hafi ítrek- að verið skilin út undan. Fréttablaðið fjallaði á föstu- dag um álit heilbrigðiseftirlits- ins þess efnis að Hafnarfjarð- arbæ væri ráðið frá því að gelda villiketti í bænum. Arndís undrast þessi vinnu- brögð. „Mér þykir það mjög und- arlegt að gefa út svona yfirlýs- ingu án þess að ráðfæra sig við stjórn okkar,“ segir hún. Hún segir að í raun séu fáir kostir í boði til að eiga við villiketti. Ef ekki eigi að láta þá í friði eða lóga þeim sé það langmannúð- legasta aðferðin að gelda þá. Dýraverndunarfélagið Villi- kettir hefur lagt mikla vinnu í að hafa uppi á köttum og koma þeim í geldingu og koma mun- aðarlausum kettlingum fyrir á heimilum en í félaginu eru um 40 sjálfboðaliðar. Hafnarfjarðarbær leitaði álits vegna beiðni Villikatta um að bærinn tæki upp stefnu félags- ins. Í umsögn frá Kattavina- félagi Íslands kemur meðal ann- ars fram stuðningur við stefnu Villikatta þar sem félagið stuðli að velferð katta. - srs Arndís Björg Sigurgeirsdóttir hjá Villiköttum telur ketti út undan í dýraverndunarlögum: Telur villikettina hlunnfarna í lögum STUÐLA AÐ VELFERÐ Arndís segir fáa kosti í boði þegar kemur að velferð villikatta. FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR ÓLASON KJARADEILUR AFL Starfsgreinafélag hefur frestað fyrirhuguðu verk- falli, sem hefjast átti á morgun, um þrettán daga þar sem markverður árangur hefur náðst í framvindu kjarasamningsviðræðna. Starfsgreinafélagið, SA og Alcoa Fjarðaál skrifuðu undir samkomu- lag sem tryggir sambærileg laun hjá undirverktökum í álverinu og starfsmönnum Alcoa. Markmið Starfsgreinafélags- ins var meðal annars að ná fram samræmi í launum starfsmanna á álverssvæðinu. - sa Verkfalli frestað aftur: Aðilar nærri samkomulagi Bjarnlaug, hefur verið gest- kvæmt hjá ykkur um helgina? „Já, við Ingi Gests tökum alltaf á móti gestum.“ Héraðsdómur Reykjavíkur komst á fimmtudag- inn að þeirri niðurstöðu að mannanafnanefnd væri óheimilt að banna foreldrum að skíra barnið sitt Gests að millinafni en foreldrar Inga Gests Guðjónssonar sóttu um heimild til þess að nota millinafnið en nefndin hafnaði beiðni þeirra í ágúst 2013. STJÓRNMÁL Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, leigir íbúð sína við Ránargötu af Herði Harðarsyni, stjórnarformanni Orku Energy ehf. Þá seldi Illugi fyrirtækinu OG Capital íbúð- ina eftir að hafa tekið sæti sem menntamálaráðherra. Salan á íbúðinni fór fram eftir að Illugi var viðstaddur undirrit- un samnings milli Orku Energy og sveitarstjórnar Xianyang- héraðs á Hilton hotel í Reykja- vík í desember 2013. OG Capital var í eigu Illuga árin 2011 og 2012 en er nú í eigu Hauks Harðarsonar, stjórnarfor- manns Orku Energy. Illugi vann ráðgjafarstörf fyrir Orku Energy á meðan hann var í leyfi frá þing- störfum en þeim störfum lauk árið 2012. Hlutverk Illuga var að koma fyrirtækinu í samband við fjárfesta í Suðaustur-Asíu. Samkvæmt fasteignaskrá rík- isins var íbúð Illuga keypt 27. júlí 2014 en afhendingardagsetn- ing var nokkrum mánuðum áður, þann 31. desember 2013. Skömmu fyrir afhendingar- daginn hafði Illugi verið við- staddur undirritun samkomulags á milli Orku Energy og Xianyi- ang-héraðs á Íslandi. Íbúðin, sem Illugi leigir núna af Herði, er 137 fermetrar og var keypt á 53,5 milljónir króna samkvæmt ársreikningi OG Capi- tal. Samkvæmt ársreikningnum kemur einnig fram að félagið hafi tekið yfir lán að verðmæti 34,5 milljónir króna og tekið nýtt lán upp á 28 milljónir. Kaupin á íbúð Illuga virðast hafa verið einu umsvif fyrirtækisins á undan- förnum árum. Svandís Svavarsdóttir vakti máls á þessu á Alþingi þann 13 apríl. Í fyrirspurn hennar til Ill- uga spurði hún út í breytingar á frétt á vefsíðu menntamálaráðu- neytisins um ferðalag sendi- nefndar ráðuneytisins til Kína og hvers eðlis vinna Illuga fyrir Orku Energy var. Í svari Illuga kom fram að breytingin væri gerð til að fyrir- byggja þann misskilning að full- trúar fyrirtækjanna tveggja Orku Energy og Marel hefðu verið partur af sendinefnd ráðuneytisins heldur þegar stödd í Kína. Í svari sínu um Orku Energy sagði Illugi að honum bæri í raun ekki að tilkynna um störf sín hjá fyrirtækinu en að hann hafi starfað við að koma fyrirtæk- inu í tengsl við fjárfesta í Singapúr. Þá segir Illugi ekki óeðlilegt að fyr- irtækin kæmu með á fundinn þar sem burðarás samskipta Íslands og Kína á sviðum orkuvísinda liggi í gegnum þessi fyrirtæki. stefanrafn@ frettabladid.is Sagði ekkert óeðlilegt við samband sitt við Orku Energy Illugi Gunnarsson seldi stjórnarformanni Orku Energy ehf. fyrirtæki og húsnæði sitt við Ránargötu sem hann nú leigir eftir að hann varð ráðherra. Illugi vann áður ráðgjafarstörf fyrir OE vegna umsvifa þess í Asíu. 2007 2009 2011 2013 2015 2007-2012 Illugi á félag sem heitir OG Capital. 2008 október Illugi lendir í fjárhagsvand- ræðum. 2010-2012 Illugi er í leyfi frá þingstörfum og sinnir ráðgjafarstörfum fyrir Orku Energy. 2014 júlí Illugi gerir kaup- samning við OG Capital. 2013 maí Alþingis- kosn- ingar og Illugi verður ráð- herra. 2013 des. Illugi er viðstaddur undirritun á samningum OE og yfirvalda í Xianyang-héraði í Reykjavík. 2013 Illugi selur Herði OG Capital. 2013 31. des. Illugi selur OG Capital íbúð sína og byrjar að leigja hana. 2015 mars Illugi fer í opinbera ferð til Kína þar sem hann fundar meðal annars með Orku Energy. LÖGREGLUMÁL Marco Evaristti, listamaðurinn sem á föstudag hellti rauðu litarefni út í hverinn Strokk og var sektaður um 100 þúsund krónur, er frjáls ferða sinna og heimil brottför af landinu, hvort sem hann greiðir sektina eður ei. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi. Evaristti sagðist ekki ætla að gangast við sektinni heldur fara með málið fyrir dómstóla. Hann tjáði lögreglu að um listgjörning hefði verið að ræða. Þá sagðist hann hafa gætt þess að ekki hlytist varan- legt tjón af verknaðinum og bendir skoðun lögreglu á vettvangi til þess að þetta sé að minnsta kosti að ein- hverju leyti rétt. Lítil sem engin ummerki sjást á eða við hverinn. - skh Gert að greiða 100 þúsund: Listamaðurinn frjáls ferða sinna LIBERLAND Tékkneski stjórnmála- maðurinn Vit Jedlicka hefur bæst í hóp evrópskra þjóðarleiðtoga. Þó er líklega ekki við hæfi að kalla hann tékkneskan þar sem hann hefur stofnað nýtt ríki á landamærum Króatíu og Serbíu. Ríkið, sem hann kallar Liber- land, er á sjö ferkílómetra skika sem er umdeilt landsvæði á milli nágrannaríkjanna tveggja. Markmið Jedlicka er að búa til pólitískan tilraunavettvang en hann vill að Liberland verði fyrirmyndarríki frjálshyggju- manna, þar verði greiðsla á skött- um valfrjáls og bannað er að hafa tekið þátt í hreyfingu nasista eða kommúnista. Jedlicka segir í samtali við The Guardian að fyrirmyndarþegn Liberland yrði eflaust Thomas Jefferson ef hann væri á lífi í dag. Þegar Jedlicka lýsti yfir stofn- un ríkisins á mánudaginn voru þegnarnir bara þrír en fólki er frjálst að sækja um ríkisborgara- rétt. Síðan þá hafa um 200 þús- und einstaklingar sótt um ríkis- borgararétt í ríkinu. Margir nýju þegnanna eru tilbúnir að bjóða fram aðstoð sína en að sögn Jed- licka hafa þeir boðist til að knýja ríkið með sólarorku, slá nýja mynt, útbúa deiluskipulag fyrir höfuðborgina og fleira. „Fólk er tilbúið að fjárfesta í þessu verk- efni, það lítur út eins og draumar séu að rætast,“ sagði hann. - srs Stofnaði nýtt ríki á sjö ferkílómetra landsvæði á milli Króatíu og Serbíu: Shangri-La frjálshyggjumanna VIT JEDLICKA Engir öfgamenn fá ríkisborgara- rétt. MICHAL CIZEK / AFP RÁNARGATA Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir að hann hafi staðið fyrir þeim valkosti að missa húsið eða selja það. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR RAUÐUR HVER Listamaðurinn greiðir ekki sektina. MYND/ MARCO EVARISTTI ILLUGI GUNNARSSON SPURNING DAGSINS 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 C -4 3 2 C 1 7 5 C -4 1 F 0 1 7 5 C -4 0 B 4 1 7 5 C -3 F 7 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 4 8 s _ 2 6 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.