Fréttablaðið - 27.04.2015, Qupperneq 6
27. apríl 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
VEISTU SVARIÐ?
HEILBRIGÐISMÁL Áætlað er að á
árinu 2013 hafi 21,8 milljónir ung-
barna verið án bólusetningar gegn
lífshættulegum sjúkdómum, að því
er fram kemur á vef landlæknis.
Í gær hófst vika sem Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin (WHO) til-
einkar bólusetningum, líkt og tíðk-
ast hefur síðustu ár. Átakinu lýkur
á föstudag. „Með þessu framtaki
vill WHO leggja áherslu á að lönd,
svæði og þjóðir um allan heim leggi
aukinn kraft í bólusetningar og að
dreifing bóluefna verði réttlátari.“
Fram kemur að með bólusetn-
ingum sé árlega komið í veg fyrir
ótímabæran dauða tveggja til
þriggja milljóna barna í heimin-
um öllum. „Markmiðið með bólu-
setningum er að hindra farsótt-
ir, útrýma smitsjúkdómum og
draga úr hættulegum afleiðingum
þeirra.“
Hér á landi eru bólusetning-
ar sagðar hafa komið í veg fyrir
margar alvarlegar sýkingar.
„Greinast hér vart lengur þeir sjúk-
dómar sem bólusett er gegn.“ - óká
Alþjóðavika WHO tileinkuð bólusetningum stendur frá 24. til 30. apríl:
Áhersla á bólusetningu alls staðar
BÓLUSETNING Með áherslu á bólusetn-
ingar er ætlunin að fækka dauðsföllum
um milljónir fyrir 2020. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SJÁVARÚTVEGUR Ekkert sam-
komulag náðist á fundi strand-
veiðiríkja í Clonakilty á Írlandi
dagana 21. til 23. apríl.
Markmið fundarins var að
ákveða veiðar á kolmunna fyrir
árið 2015 en fundurinn var fram-
hald viðræðna sem hófust árið
2014. Það voru Færeyingar sem
boðuðu til fundarins en þeir
ásamt Evrópusambandinu lögðu
fram sameiginlega samninga-
kröfu um stóraukna hlutdeild í
veiðunum á kostnað Íslendinga
og Norðmanna. Þá var lagt til að
hluti Rússlands sem úthafsveiði-
þjóðar héldist óbreyttur.
Færeyingar hyggja á að boða
aftur til fundar innan tveggja
mánaða en árið 2016 mun fundar-
stjórnin færast í hendur Íslend-
inga. - srs
Fundur strandveiðiríkja:
Ekkert samið
um kolmunna
SAMGÖNGUR Verði Sundabraut
skoðuð sem framkvæmd í einum
áfanga er mögulega hægt að fjár-
magna verkefnið að fullu með
veggjöldum. Starfshópur leggur
til við ráðherra að útboðsrammi
verði útbúinn og kannað hvaða
aðilar séu hugsanlega reiðubúnir
að koma að verkefninu í einhvers
konar undirbúningsfélagi með rík-
inu.
Þetta er meðal niðurstaðna
starfshóps um aðkomu einkaað-
ila í umfangsmiklum samgöngu-
verkefnum og fjármögnun þeirra.
Skýrslan var afhent Ólöfu Nordal
innanríkisráðherra nýverið og
mun ráðherra í framhaldinu meta
hvernig farið verður með tillög-
urnar sem þar er að finna.
Hópnum var falið að setja fram
lista yfir verkefni sem koma til
álita en kannaði sérstaklega verk-
efni sem Vegagerðin hefur talið
koma til greina í einkaframkvæmd
í samgöngum.
Umfangsmesta verkefnið sem
starfshópurinn kannaði var
gerð Sundabrautar. Smíði Vest-
mannaeyjaferju var líka skoðuð,
nýr vegur um Kjöl, Axarvegur,
Fjarðar heiðargöng, Súðavíkur-
göng og Lónsheiðargöng. - shá
Nefnd telur mögulega hægt að fjármagna Sundabraut með veggjöldum:
Sundabraut verði skoðuð nánar
EIN AF MÖRG-
UM Hugmynd-
ir um Sunda-
braut hafa
verið lengi til
skoðunar.
MYND/ONNO
FERÐAÞJÓNUSTA Bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt
að auglýsa breytingu á bæði
deiliskipulagi og aðalskipulagi
svo koma megi upp baðstað með
ylströnd við Urriðavatn í Fella-
bæ.
„Baðstaðurinn mun gera
afþreyingu á Héraði fjölbreytt-
ari þar sem engin sambærileg
aðstaða er nú þegar í boði,“ segir
í greinargerð Fljótsdalshéraðs.
Nýta á heitt vatn úr borholum
Hitaveitu Egilsstaða og Fella
við Urriðavatn og leiða það 700
metra í pípu að baðstaðnum sem
á að vera milli Hróarstunguveg-
ar og vatnsbakkans þar sem veg-
urinn sveigir að vatninu á landi
í einkaeigu. Þaðan eru rúmir
fimm kílómetrar til Egilsstaða.
„Á baðstaðnum er áformað að
hafa ylströnd og heita potta við
vatnsbakkann, ásamt þjónustu-
húsi og hugsanlega byggingar-
reit fyrir gistihús. Vatn mun
renna úr pottunum út í ylströnd-
ina,“ segir í greinargerðinni.
Magnið verði um 1 til 4 lítrar á
sekúndu af 40°C heitu vatni sem
sé svipað og tólf- til fimmtugfalt
rennsli úr handlaug.
Þá segir að Veiðimálastofnun
telji að við þetta muni hitakær-
um tegundum í vatninu fjölga en
kulsæknum fækka. Vatnabobba
fjölgi á grýttum botni en vorflug-
um og mýi fækki. Tryggja þurfi
að klór berist ekki út í vatnið.
„Til mótvægis við ofangreind
áhrif eru settir skilmálar um að
ylströndin sé að mestu aflokuð
frá vatnshloti Urriðavatns með
görðum,“ segir í greinargerð-
inni. Ekki verði losað meira en 4
lítrar á sekúndu og vatnið verði
ekki heitara en 40°C. Ekki megi
nota klór.
Vitnað er til Náttúrumæra-
skrár Helga Hallgrímssonar.
Þar kemur fram að Urriðavatn er
um 2,5 sinnum hálfur kílómetri,
mjög lífríkt og eitt besta veiði-
vatn héraðsins. Vakir hafi jafnan
verið á miðju vatnsins þegar það
var ísi lagt.
„Um 1960 kom í ljós að þarna
var jarðhitasvæði á botni; eftir
nokkrar boranir á tanga sem
gerður var frá austurströnd
vatnsins fékkst þar nægilegt
magn af 80° heitu vatni í Hita-
veitu Egilsstaða og Fella,“ er
vitnað til Náttúrumæraskrár-
innar sem jafnframt greinir frá
dularfullri skepnu.
„Í vatninu kvað vera furðu-
dýr nokkurt sem Tuska kallast,“
segir í skrá Helga. „Hún sást
síðast um 1900 og bera lýsingar
hennar keim af otrum.“
Breytingin á skipulaginu fer
nú í auglýsingu þar sem gefst
kostur á að senda inn athuga-
semdir. gar@frettabladid.is
Breyta skipulagi fyrir
ylströnd við Urriðavatn
Nýr baðstaður nærri Fellabæ á að auka möguleika á afþreyingu á Héraði. Nýta
á vatn frá borholum í Urriðavatni fyrir heita potta og ylströnd sem loka á af frá
öðrum hluta vatnsins. Í því ku vera furðudýrið Tuska sem sást síðast um 1900.
➜ Baðstaðurinn mun gera
afþreyingu á Héraði fjöl-
breyttari þar sem engin
sambærileg aðstaða er nú
þegar í boði.
Úr greinargerð Fljótsdalshéraðs.
BAÐSTAÐURINN Áhrif á heilsu og öryggi eru talin talsvert jákvæð en talsvert neikvæð á strönd og bakka Urriðavatns á afmörk-
uðu svæði, segir í skipulagstillögu um ylströndina. MYND/EFLA VERKFRÆÐISTOFA
MENNTAMÁL Ákveðið hefur verið að
sameina Iðnskólann í Hafnarfirði
og Tækniskólann í Reykjavík. Sam-
einingin var tilkynnt opinberlega á
fundi í Iðnskólanum á föstudag.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur
mótmælt ákvörðun Illuga Gunnars-
sonar menntmálaráðherra og segir
mikilvægt að starfsemi Iðnskólans
í Hafnarfirði verði áfram í bænum.
Skólinn gegni mikilvægu hlutverki
í bænum. Skólinn var stofnaður
árið 1928 og þar stunda um 500
nemendur nám. - kbg
Framhaldsskólar sameinast:
Umdeild
sameining
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hafði afskipti
af nokkrum bílstjórum aðfara-
nótt sunnudags vegna gruns um
vímuefnaakstur. Þeirra á meðal
var ökumaður sem var mældur
á rúmlega 90 kílómetra hraða á
Miklubraut en leyfður hraði þar
er sextíu kílómetrar á klukku-
stund. Þá gistu nokkrir fanga-
geymslur vegna ofurölvunar.
Á tólfta tímanum varð ung
kona, sem var á göngu við Suður-
götu, fyrir árás. Ungur maður
sem kom á hlaupum sló hana í
andlitið og flúði vettvang. Konan
komst til síns heima og kallaði
eftir aðstoð lögreglu.
- khn
Annríki hjá lögreglunni:
Sló konu og
flúði vettvang
BANDARÍKIN Rússneskir tölvu-
þrjótar sem brutu sér leið í gegn-
um máttlausar tölvuvarnir Hvíta
hússins í Washington komust yfir
tölvupóst Baracks Obama Banda-
ríkjaforseta. New York Times
greinir frá þessu.
Tölvuþrjótarnir gátu lesið þau
tölvupóstsamskipti Bandaríkja-
forseta sem ekki voru merkt sem
trúnaðarmál. Engu að síður ligg-
ur fyrir að rússnesku tölvuþrjót-
arnir komust yfir viðkvæm gögn,
þar á meðal ferðaáætlun forset-
ans, samskipti hans við sendi-
herra og diplómata og fleira.
Í frétt New York Times segir
að tölvuþrjótarnir séu taldir
tengdir rússneskum stjórnvöld-
um eða jafnvel í vinnu fyrir þau.
- khn
Rússneskir tölvuþrjótar:
Komust í tölvu-
póst Obama
INNBROT Tölvuþrjótarnir gátu lesið þau
tölvupóstsamskipti Bandaríkjaforseta
sem ekki voru merkt sem trúnaðarmál.
NORDICPHOTOS/AFP
1. Hvað eru margir legókubbar í
líkani Brynjars Karls Brynjarssonar af
Titanic?
2. Símtal frá hvaða tónlistarmanni er
nánast orðrétt í nýjasta lagi Emmsjé
Gauta og Friðriks Dórs, Í kvöld?
3. Hvað stefnir Julie Coadou á að
opna á Íslandi?
SVÖR:
1. 56 þúsund 2. Loga Pedro Stefánssyni 3.
Franskt apótek
VIÐSKIPTI Útibú Landsbankans
og þau sem áður heyrðu undir
Sparisjóð Vestmannaeyja á Höfn
og Selfossi verða sameinuð frá og
með morgundeginum, 27. apríl.
Útibúin verða til að byrja með
rekin í húsnæði Landsbankans
á þessum stöðum, en að loknum
lagfæringum á Höfn mun bank-
inn flytja starfsemi sína í hús-
næði sparisjóðsins. Við samein-
ingu útibúa á Selfossi og Höfn
hætta 6 starfsmenn.
Ákveðið hefur verið að reka
áfram afgreiðslur á Breiðdalsvík
og á Djúpavogi. - jhh
Sex starfsmenn hætta:
Útibú verða
sameinuð
STEINÞÓR PÁLSSON Bankastjóri
Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
D
-1
7
7
C
1
7
5
D
-1
6
4
0
1
7
5
D
-1
5
0
4
1
7
5
D
-1
3
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
6
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K