Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Page 4
þriðjudagur 6. janúar 20094 Fréttir ritstjorn@dv.is Innlendar FréttIr „Mér finnst athyglisvert að aldurs- hámarkið er ekki gilt. Það má þess vegna skipa menn sem eru orðn- ir níræðir,“ segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við Háskólann á Bif- röst. Til greina sem sérstakur sak- sóknari til rannsóknar á banka- hruninu koma þeir sem uppfylla sömu skilyrði og þeir sem sækja um sem héraðsdómarar. Undantekn- ingin er hins vegar sú að sérstakur saksóknari getur verið eldri en sjö- tugur á meðan sjötíu ár er hámarks- aldur héraðsdómara. Sigurður telur líklegustu ástæð- una fyrir þessu þá að bundnar séu vonir við að menn sem nýverið hafi þurft að hætta störfum sökum ald- urs sjái þarna von til að snúa aftur til starfa. „Mér finnst það senni- legast. Þarna eru menn í fullu fjöri sem eru tiltölulega nýhættir og vel hugsanlegt að þeir séu til í tuskið. Á þessum aldri eiga þeir líka gífurlega reynslu að baki,“ segir hann. Þorsteinn Geirsson, ráðuneyt- isstjóri dóms- og kirkjumálaráðu- neytisins, segir að ákvæði laganna sem víkja frá áskilnaði starfs- mannalaga um aldurshámark hafi komið inn í lögin í meðförum alls- herjarnefndar Alþingis. Í nefndarálitinu um þetta segir: „Hinn sérstaki saksóknari þarf að fullnægja skilyrðum til skipunar í embætti héraðsdómara og ræddi nefndin nokkuð um aldurshámark samkvæmt aldurshámarki dóm- stólalaga. Telur nefndin að það sé til þess fallið að þrengja nokkuð þann hóp sem til greina kemur og leggur því til að heimilt verði að víkja frá skilyrðum um 70 ára ald- urshámark við skipunina.” Frestur til að sækja um embætti sérstaks saksóknara var framlengd- ur til 12. janúar eftir að enginn sótti um innan upphaflega frestsins sem var til áramóta. Ekki fást upplýsingar um hvort einhver hafi sótt um embættið og segir Þorsteinn að þær verði ekki aðgengilegar fyrr en umsóknar- frestur er liðinn. erla@dv.is Sigurður Líndal segir að heimilt sé að skipa sérstakan saksóknara á tíræðisaldri: Ekkert aldurshámark rannsakanda Vikið frá skilyrðum Sigurði Líndal finnst líklegt að horft hafi verið til lög- manna sem nýverið hafa hætt störfum sökum aldurs þegar ákveðið var að víkja frá skilyrði um 70 ára aldurshámark sérstaks saksóknara. Mynd Heiða HeLgadóttir „Það er sorglegt að styrkurinn hækki ekki eins og gert var ráð fyr- ir því ég get ekki betur séð en allt sé að hækka í þjóðfélaginu. Íþrótta- og tómstundastarf barna og ungl- inga er besta forvörn sem völ er á. Við eigum síst að spara þegar kem- ur að börnunum okkar,“ segir Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla. Til stóð að styrkur vegna frí- stundakorta hækkaði nú um ára- mótin úr 25 þúsund krónum og upp í 40 þúsund krónur en hætt hefur verið við hækkunina. Sjöfn var ekki kunnugt um breyt- inguna þegar DV hafði samband við hana í gær og virðist lítið hafa farið fyrir kynningu á þessari tilhögun. Þurfa að borga meira Tónlistarskólinn í Reykjavík er einn þeirra aðila sem hafa samið við Reykjavíkurborg um að hægt sé að nýta frístundakortin til að greiða niður námskeiðsgjöld hjá skólan- um. Þegar DV hafði samband við skólann í gær var forsvarsmönnum ekki kunnugt um að styrkurinn hald- ist óbreyttur á milli ára. Þar er mest- megnis tekið inn í nám á haustin en foreldrar hafa vissulega gert ráð fyrir að nýta fjörutíu þúsund króna nið- urgreiðsluna á vorönninni. Því er ljóst að þeir þurfa að borga meira en þeir gerðu ráð fyrir. Málaskólinn Mímir er einnig með samning við Reykjavíkurborg. Byrjað var að taka við umsóknum fyrir vorönnina í dag og því ekki komin reynsla á hvort foreldrar þurfi að hætta við að senda börn sín og unglinga á námskeið þangað vegna breytinganna á frístundakortinu. Hagræðing í rekstri Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, situr fyrir hönd flokksins í stjórn Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Hún segir að mjög hafi þurft að hagræða í rekstri allra sviða hjá borginni. „Ég gat alveg samþykkt að við tækjum út þætti sem hafa ekki staðið til boða áður fremur en að skerða þjónustu sem þegar hef- ur verið komið á. Það var ákveðið að halda þessu óbreyttu núna,“ seg- ir Sóley. Að hennar sögn ríkir eining um þessa ákvörðun innan stjórnar ÍTR. „Auðvitað er þetta leiðinlegt. Það væri frábært ef við gætum eflt frí- stundaiðkun barna og unglinga enn meira eins og við ætluðum að gera en af þeim möguleikum sem voru í boði var þetta einn af illskástu kostunum,“ segir hún. gilda líka á frístundaheimilum Borgarráð samþykkti hins vegar í gær þá nýbreytni að hægt verður að nýta frístundakortið til nið- urgreiðslu á frístunda- heimilum borgar- innar. Í bókun sem samþykkt var á fundinum seg- ir að vinstri græn hafi allt kjörtíma- bilið lagt þunga áherslu á að foreldrar fái að nýta frístunda- kortin til að greiða fyrir frístunda- heimili borgarinnar.Því sé það mikið fagnaðarefni að samþykkt skuli hafa verið að frístundaheimilin verði full- gildur aðili að frístundakortinu. Sjöfn Þórðardóttur fagnar þessu sömuleiðis. Markmið að jafna tækifæri Styrkjakerfi frístundakorta var tekið í notkun hjá Reykjavíkurborg haustið 2007. Styrkurinn nam þá 12 þúsund krónum fyrir hvert barn eða ungl- ing á aldrinum sex til átján ára. Þá var gefið út að styrkurinn myndi hækka á milli ára, yrði 25 þús- und árið 2008 og loks 40 þús- und árið 2009. Á vef Reykjavíkurborg- ar segir: „Meginmark- mið frístundakortsins er að öll börn og ungl- ingar í Reykjavík geti tekið þátt í uppbyggi- legu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum að- stæðum.“ erLa HLynSdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Styrkur vegna frístundakorta hækkaði ekki upp í 40 þúsund krónur eins og gert var ráð fyrir um áramótin heldur helst óbreyttur í 25 þúsund krónum. Lítið hefur farið fyrir kynningu á þessari breytingu. Hún kemur illa við marga foreldra sem gert höfðu ráð fyrir að geta með frístundakortinu greitt enn frekar niður íþrótta- og tómstundaiðkun barna sinna og unglinga. ÓVÆNT ÚTGJÖLD hJá FORELDRum Besta forvörnin Sjöfn þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, segir að íþrótta- og tómstundaiðkun barna og unglinga sé besta forvörnin og síst eigi að spara þegar kemur að börnunum okkar. „Við eigum síst að spara þegar kemur að börnunum okkar.“ óbreyttur milli ára Styrkur vegna frístunda- korta átti að hækka upp í 40 þúsund fyrir árið 2009. þetta var tilkynnt þegar kortin voru inn- leidd haustið 2007. Vegna hagræðingar í rekstri borgarinnar helst styrkurinn óbreyttur milli ára. Mynd rakeL óSk Harmar niðurstöðuna Sóley vill frekar taka út boðaða hækkun en að skerða þjón- ustu sem er þegar til staðar. SH-0804-56-04_2.jpg Heima með börnin Kristján Arason segir að það sé ekki komið á hreint hvað tekur við hjá honum eftir að hann hætti hjá Kaupþingi meiri streita í höfuðborginni Lögreglumenn á höfuðborgar- svæðinu þjást af meiri streitu en lögreglumenn á landsbyggðinni. Íslenskir lögreglumenn þjást þó síður af streitu en kanadískir starfsbræður þeirra. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem ríkis- lögreglustjóri hefur greint frá. Samkvæmt könnuninni finna lögreglumenn af höfuðborgar- svæðinu meira fyrir depurð og kvíða en landsbyggðarlögreglu- menn. Þá hafa lögreglumenn af landsbyggðinni það fram yfir samherja sína á höfuðborgar- svæðinu að vera örlítið ham- ingjusamari. Kaupþing stefnir Bretum Skilanefnd Kaupþings hefur ákveðið að höfða mál gegn bresk- um stjórnvöldum vegna beiting- ar hryðjuverkalaga. Skilanefnd Landsbankans íhugar nú hvort hún stefni Bretum en hún hef- ur öllu lengri frest til málshöfð- unar en Kaupþing. Ríkisstjórnin hyggst styðja við bakið á báðum skilanefndum. Geir H. Haarde forsætisráð- herra kynnti niðurstöðuna fyr- ir fjölmiðlum síðdegis. Hann og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra funduðu með fulltrúum skilanefndar Kaup- þings í gær. Mótorhjóla- þjófur gómaður Lögreglan á Akureyri hafði hendur í hári bíræfins öku- manns um klukkan eitt í fyrri- nótt, eftir að kom í ljós að hann hafði í eftirdragi stolna kerru með mótorkrosshjóli ofan á. Eigandi kerrunnar vaknaði við það að bifreið var ekið í burtu frá heimili hans á Svalbarðs- eyri með kerruna í eftirdragi. Eigandinn hringdi á lögreglu sem hóf strax eftirgrennslan eftir kerrunni og hjólinu. Það fannst um tveimur tímum og 230 kílómetrum síðar. Lögreglan á Egilsstöðum stöðvaði för bifreiðarinnar. Ökumaður var handtekinn og hann yfirheyrður. Málið telst upplýst. Slapp úr bílveltu Betur fór en á horfðist í tveimur tilvikum, þegar tveir bílar runnu til með stuttu millibili í hálku og enduðu utan vegar skammt austan við Kirkjubæjarklaustur um miðjan dag í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli valt annar bíllinn og er nokk- uð skemmdur, en hinn bíllinn er betur farinn. Ökumenn og farþegar sluppu án meiðsla, en mikil hálka var á vegarkaflanum í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.