Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Side 12
þriðjudagur 6. janúar 200912 Fréttir
Pakistönum afhentar sannanir
Indversk stjórnvöld sögðu í gær að
þau hefðu afhent pakistönskum yf-
irvöldum sannanir fyrir aðild pak-
istanskra afla að hryðjuverkaárás-
unum í Múmbaí í nóvember.
Utanríkisráðherra Indlands,
Pranab Mukherjee, hét á stjórn-
völd Pakistan að bregðast við
sönnunargögnunum og draga
ódæðismennina fyrir dómstóla.
Á meðal sönnunargagnanna ku
vera yfirheyrsla eina vígamannsins
sem lifði af, upplýsingar um síma-
samskipti á milli ódæðismann-
anna og upplýsingar um vopnin
sem notuð voru.
Hátt í hundrað manns létu lífið í
árásunum.
DAUÐI, HUNGUR OG HATUR
Varnarmálaráðherra Ísraels, Ehud
Barak, sagði í gær að þrátt fyrir að
Hamas-samtökin hefðu orðið fyr-
ir „gríðarlegu áfalli“ myndi aðgerð-
um ísraelska hersins fram haldið.
„Við höfum ekki enn náð markmið-
um okkar,“ sagði Barak. Ehud Bar-
ak beindi orðum sínum til ísraelskra
þingmanna og sagði að árásum hers-
ins yrði ekki hætt fyrr en búið væri
að tryggja „frið og ró“ fyrir ísraelska
borgara og skírskotaði til þeirra ísra-
elsku bæja sem sætt höfðu eldflauga-
árásum vígamanna.
Árásir Ísraelshers hafa staðið yfir
linnulaust síðan 27. desember og
hafa þarlend stjórnvöld skellt skolla-
eyrum við ákalli alþjóðasamfélagsins
um vopnahlé. Tölur látinna á Gaza
hafa farið síhækkandi og að sögn pal-
estínskra lækna hafa yfir fimm hundr-
uð manns látið lífið og yfir tvö þúsund
og fimm hundruð manns særst. Erfitt
hefur reynst að fá þessar tölur stað-
festar enda engum erlendum frétta-
mönnum hleypt inn á átakasvæðið.
Landhernaður
Í kjölfar loftárásanna réðst land-
her Ísraels inn á Gaza um helgina og
samkvæmt ísraelskum heimildum
voru um fjögur þúsund hermenn inn-
an Gaza-svæðisins í gær og njóta þar
stuðnings skriðdrekasveita.
Að sögn fréttaritara BBC í Jerúsal-
em, Mikes Sergeant, virtist sem land-
hernaður ísraelska hersins beindist
sérstaklega að svæðum á norðurhluta
Gaza. Ísraelskir hermenn hafa barist
við liðsmenn Hamas í grennd við Beit
Hanoun og Jabaliya. Gaza, sem liggur
aðeins sunnar, hefur verið umkringt.
Samkvæmt fréttum er ekkert lát á
straumi særðra á sjúkrahúsin sem nú
þegar eru yfirfull, og heimildir herma
að að minnsta kosti tuttugu og þrír
óbreyttir borgarar hafi látið lífið í næt-
urárásum í fyrrinótt, þar af nokkur
börn.
Talsmaður Sameinuðu þjóðanna
sagði að öll sjúkrahús Gaza berðust
við að sinna þeim hundruðum særðra
Palestínumanna sem hefðu streymt
að síðustu fimm daga og að sjúkra-
húsin hefðu verið án landrafmagns
og hefðu þurft að treysta á rafala sem
væru við það að gefa sig.
Í gærmorgun laust í fyrsta skipti
saman hermönnum Ísraels og Ham-
as-liðum í Gaza. Þá fóru Ísraelar hús
úr húsi í leit að liðsmönnum Hamas.
Bardagarnir hófust þegar Ísraelsher
hafði náð stjórn á stórum hluta Gaza-
ræmunnar, skipt svæðinu í tvennt og
með því neytt þúsundir manna til að
flýja heimili sín undir stöðugri stór-
skotaliðsárás.
Engan bilbug að
finna hjá Hamas
Mahmoud Zahhar, háttsettur leið-
togi Hamas á Gaza-svæðinu, sagði
að stefnt væri að „sigri“ gegn Ísrael. Í
útsendingu al-Aqsa-sjónvarpsstöðv-
arinnar, sem rekin er af Hamas, lof-
aði Zahhar þá sem berjast fyrir Ham-
as og gaf í skyn að samtökin íhuguðu
að ráðast á ísraelsk skotmörk erlend-
is. Zahhar hvatti Hamas-liða til að
„mylja óvininn“. Hann telur að Ísrael-
ar hafi „löghelgað dráp á fólki þeirra
hvar sem er í heiminum þegar þeir
drápu okkar fólk“.
Það er því fátt sem bendir til þess
að Ísrael og Hamas hyggi á vopnahlé.
Reyndar hafa leiðtogar Hamas verið í
felum síðan árásir Ísraels hófust í lok
síðasta árs og ekki er vitað hvort ræða
Mahmouds Zahhar hafi verið upp-
taka eða bein útsending.
Að sögn ísraelska hersins skutu
Hamas-samtökin tuttugu eldflaug-
um inn í suðurhluta Ísraels á mánu-
daginn.
Síversnandi ástand
Fyrir íbúa Gaza fara aðstæður hríð-
versnandi og sagði Christopher
Gunness, talsmaður stofnunar Sam-
einuðu þjóðanna um málefni Palest-
ínu, að mikil þörf væri á matvælum
og að fólk stæði frammi fyrir „alvar-
legu hungri“.
„Ein milljón manns er án raf-
magns. Sjúkrahús Gaza eru knú-
in með neyðarrafölum. Samkvæmt
mínum bókum jafnast það á við
neyðarástand,“ sagði Gunness í við-
tali við BBC.
Á sama tíma og tala látinna hækk-
ar og aðstæðum á Gaza hrakar virðist
sem alþjóðasamfélagið sé að vakna
til meðvitundar og ráðamenn víða að
úr heiminum huga að leiðum til að
miðla málum og koma á vopnahléi.
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti
mun skjótast til Egyptalands til við-
ræðna vegna átakanna, hann mun
einnig fara til Jerúsalem þar sem
hann ræðir við forsætisráðherra Ísr-
aels, Ehud Olmert, og Ramallah á
Vesturbakkanum og Sýrlands.
Sendinefnd á vegum Evrópusam-
bandsins hefur nú þegar verið í Ka-
író í Egyptalandi, þar sem rætt var
við forsætisráðherra Egyptalands og
hvatti nefndin í kjölfarið bæði Ísra-
elsher og Hamas-samtökin til að láta
af árásum.
Gasdeila Rússa og Úkraínumanna
er farin að vinda upp á sig og nú er
svo komið að níu Evrópulönd hafa
tilkynnt um vandræði tengd gas-
flæði og gasþrýstingi vegna henn-
ar. Fyrir höfðu sex lönd tilkynnt um
truflanir vegna deilunnar; Tékk-
land, Tyrkland, Pólland, Ungverja-
land, Rúmenía og Búlgaría. Þau
lönd sem bættust í hópinn í gær eru
Slóvakía, Grikkland og Króatía.
Fréttir þessa efnis bárust um
sömu mundir og neyðarnefnd á
vegum Evrópuráðsins í Brussel og
Tékklands, sem tók við forsæti Evr-
ópusambandsins í síðustu viku,
lögðu land undir fót og fóru til höf-
uðborgar Úkraínu, Kíev, til við-
ræðna við úkraínsk yfirvöld.
Tékkneska sendinefndin og
háttsettir evrópskir embættismenn
hugðust einnig hitta háttsetta yfir-
menn rússneska olíufyrirtækisins
Gazprom, sem hefur einokunarað-
stöðu í gassölu og skrúfaði fyrir gas
til Úkraínu fyrsta janúar. Stjórnend-
ur Gazprom hafa sakað Úkraínu-
menn um að stela gasi sem ætlað
væri viðskiptaaðila innan Evrópu-
sambandsins.
Talsmaður sendinefndar Evr-
ópuráðsins sagðist bjartsýnn á að
deila Rússlands og Úkraínu myndi
ekki hafa áhrif á birgðir til handa
neytendum og bætti við að vara-
birgðir Evrópusambandslandanna
væru með ágætum.
Lítinn sáttahug er þó að finna
hjá Gazprom, sem undirstrikaði af-
stöðu fyrirtækisins með því að hóta
að hækka verð á gasi til Úkraínu.
Í yfirlýsingum frá þeim lönd-
um sem hafa orðið fyrir truflunum
vegna deilunnar er hvergi getið að
neytendur hafi orðið fyrir barðinu á
áhrifum hennar.
Gasdeila Rússlands og Úkraínu hefur áhrif víða:
Truflana vart í níu löndum
Ráðamönnum víða um heim ofbýður síversnandi
ástand á Gaza í kjölfar árása Ísraelshers. En eitt-
hvað virðist skorta á einhug og Frakklandsforseti
fer á eigin vegum til viðræðna við forsætisráð-
herra Egyptalands og fleiri. Íbúar Gaza búa við
mikinn skort á öllum nauðsynjum og á yfirfullum
sjúkrahúsum er treyst á neyðarrafala sem talið er
að jafnvel gefi sig brátt. Ísraelar hyggjast ekki
draga úr aðgerðum sínum.
KoLbEinn þorStEinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Samkvæmt fréttum
er ekkert lát á straumi
særðra á sjúkrahúsin,
sem nú þegar eru
yfirfull, og heimildir
herma að minnsta
kosti tuttugu og þrír
óbreyttir borgarar
hafi látið lífið í
næturárásum í
fyrrinótt.
Syrgir fallinn son Palestínsk
móðir grætur son sinn, Hamas-
liða sem féll í átökunum á gaza.
Umsagnir vegna átakanna
n Shimon Peres, forseti Ísraels: „Við ætlum okkur hvorki að hernema gaza né mylja Hamas, heldur mylja ógn. Og Hamas
þarfnast lexíunnar. nú fá þau hana.“
n Ehud barak, varnarmálaráðherra Ísraels: „Við leitum friðar. Við höfum hamið okkur í langan tíma, en nú er tími kominn
til að gera það sem þarf að gera.“
n ismail radwan, yfirmaður í Hamas: „gaza verður engin lautarferð. gaza verður grafreitur ykkar.“
n benedikt XVi páfi: „Stríð og hatur eru engin lausn á vandamálum.“
n Utanríkisráðuneyti Frakklands: „Frakkland fordæmir landhernað Ísraelshers á gaza líkt og það fordæmir áframhaldandi
eldflaugaárásir.“
n Gordon brown, forsætisráðherra bretlands: „Ég get skilið vandamál Palestínumanna á gaza – að þeir þurfi neyðarað-
stoð – en Ísraelar verða að hafa tryggingu fyrir því að Ísrael verði ekki fyrir eldflaugaárásum.“
n talsmaður baracks obama, verðandi bandaríkjaforseta: „Verðandi forseti fylgist grannt með alþjóðlegum málum, þar
með talið ástandinu á gaza.“
boyarka í Úkraínu
rússar saka úkraínu-
menn um að stela gasi.