Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Page 14
Ísland árið 2009 verður víst ekki eins hábölvað og af hefur verið látið. Þeir Geir H. Haarde og Össur Skarphéðinsson segja í
það minnsta að við séum í raun að
fara aftur til ársins 2005. Allavega að
einhverju leyti og það ár var nú ekki
svo slæmt: „sem þá var besta ár allra
ára,“ segir Össur allavega á heimasíðu
sinni.
Og hvers vegna skyldum við ekki fagna? Lands-framleiðslan var í toppi. Lánakostnaður var í botni.
Tekjur voru góðar og okkur virtust
allir vegir færir. Gott ef Ísland var ekki
örugglega á þeirri leið að verða ríkasta
land í heimi.
Nú horfir kannski dálítið öðruvísi við. Ísland er ekki við það að verða ríkasta land í heimi. Og þó Ísland sé ekki
heldur að verða fátækasta land í heimi
hefur auður landsins heldur minnkað
að undanförnu. Sömu sögu er svo að
segja af velferð landsmanna.
Nú er svo komið að það eina
sem er ekki á uppleið virð-
ist vera leigan, launin og
atvinnustigið.
En þar erum við einmitt komin að kjarna
málsins. Árið
2009 er auðvitað
alveg eins og árið
2005, fyrir utan
eitt. 2009 er illi
bróð-
ir 2005. Menn þurfa ekki að hafa horft
lengi á sápuóperur (eða enn frekar
kvikmyndir eða sjónvarpsþætti þar
sem gert er grín að sápuóperum) til
að gera sér grein fyrir því hvað er um
að ræða. Rétt þegar áhorfendur eru
orðnir þreyttir á því sem þeir gjör-
þekkja, eða framleiðendum finnst
ástæða til að breyta til, nú eða enn
frekar að gamall leikari sem ætlaði
að slá í gegn í kvikmyndum er orðinn
verkefnalaus og snýr aftur, þá er ekk-
ert betra en að kynna til sögunnar illa
bróður góðmennisins.
Og hvað er árið 2009 annað en illi bróðir 2005? Þjóðin er eins útlits, svona fyrir utan að þá voru engir mótmæla-
fundir og engin pólitísk skemmdar-
verk. Þá var líka fullt af bjartsýnum
Íslendingum að festa kaup á húseign
út á hræódýr lán. Nú er fullt af svart-
sýnum Íslendingum sem óska þess
heitast að losna við húseignirnar sínar
með rándýru lánunum. 2005 skiptu
Íslendingar út gömlu druslunum og
fengu sér nýja fáka á kostakjörum. Nú
vill fólk losna við fínu bílana og jafn-
vel fá gömlu druslurn-
ar í stað-
inn.
Það
sem áður var gott er nú slæmt. Árið
2005 vildu allir eiga sitt húsnæði en nú
vilja sífellt fleiri leigja.
Geir og Össur hafa kannski rétt fyrir sér þegar þeir segja að landsframleiðslan verði sú sama nú og árið 2005.
Bara synd og skömm að svo margt
annað skuli vera í miklu verri gír en
áður var. En sennilega svipar árunum
saman, svona eins og góða og illa
bróðurnum, svona útlitslega séð.
þriðjudagur 6. janúar 200914 Umræða
IllI bróðIr ársIns 2005
svarthöfði
spurningin
„Já, ég held að
hann sé alveg
klárlega í djúpum
skít. Ég held að
enginn hafi gert
svona upp á bak
síðan frumburður-
inn var með magakveisu haustið 2000,“
segir Þorkell Máni Pétursson,
útvarpsmaður á X-inu. Árni Mathiesen
fjármálaráðherra var útnefndur
skítseiði ársins í þættinum Harma-
geddon á X-inu í gær.
Er árnI í djúpum
skít?
sandkorn
n Stöð 2 hefur af einhverjum
ástæðum orðið einn helsti
óvinur róttækustu mótmæl-
endanna sem gerðu aðsúg að
starfsfólki hennar á gamlárs-
dag. Það var svo sem olía á eld
þegar Ari
Edwald,
forstjóri
365, sagði
að meðal
mótmæl-
enda væru
grímu-
klædd-
ir glæpa-
menn. Nú eru Ari og sá
sannsögli Sigmundur Ern-
ir, forstöðumaður fréttasviðs
365, holdgervingar þeirra sem
mótmælendur hafa ímigust á.
Í samræmi við það kalla rót-
tæklingar forstjórann nú Ara
Auðvald.
n Magakveisa liðinna jóla herj-
aði ekki aðeins á heimasitjandi
Íslendinga. Á Kanaríeyjum
geisaði faraldur niðurgangs á
meðal Íslendinga sem aldrei
fyrr. Ferðamennirnir tóku
þessu þó létt og einhverjir sáu
ljósið í þessu ástandi. Á Kan-
aríeyjum fékk umgangspestin
nafn eins og fellibyljir ytra. Þar
kallast pestin „Ókeypis Jón-
ína Ben“. Reiknað er með að
þolendur komi heim úr fríinu
grannir og spengilegir.
n Ritskoðun sú er Agnes Braga-
dóttir, blaðamaður Moggans,
taldi sig hafa sætt þegar viðtal
hennar við Þorstein Pálsson,
þáverandi forsætisráðherra ,
var slegið af hefur vakið nokkr-
ar umræður. Guðmundur
Magnússon, ritstjóri Eyjunnar,
bloggaði um málið og sagðist
hafa farið yfir viðtalið á sínum
tíma. „Við Kjartan Gunnars-
son fórum heim til hans og lás-
um viðtalið yfir seint um kvöld.
Ekki leist okkur vel á plaggið.
Maður las allt með gleraug-
um stjórnmálanna á þessum
tíma. Eftir samtal Þorsteins
og Matthíasar Johannessen
ritstjóra í síma varð niðurstað-
an sú að birta viðtalið ekki.
Ákvörðunin var auðvitað á
ábyrgð ritstjórans eins.“
n Bloggfærsla Guðmundar
Magnússonar bar yfirskrift-
ina „Viðtöl sem hverfa“ og var
athyglisverð. Guðmundur
skrifaði á
sínum tíma
bókina um
Thorsar-
ana. Það var
Edda útgáfa,
í eigu Björg-
ólfs Guð-
mundsson-
ar, sem gaf
bókina út.
Hermt er að þegar Björgólfur
sá bókina hafi hann brugðist
ókvæða við vegna umfjöllunar
sem var um fyrrverandi eig-
inmann Þóru Hallgrímsson,
eiginkonu hans. Upplaginu var
eytt hið snarasta og höfundin-
um gert að klippa úr bók sinni
umfjöllunina. Nú bíða menn
eftir játningabloggi Guðmund-
ar sem heitið gæti „Bókarkaflar
sem hverfa“.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv Á netinu: dv.is
aðalnúMer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
ÁskriftarsíMi: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: Árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Hann er frábær
strákur og við
náum vel sam-
an.“
n Sigrún Ósk Kristjánsdóttir,
þáttastjórnandi Íslands í dag, um meðstjórn-
anda sinn Sindra Sindrason. – DV
„Ég er ekki búinn að fá
kippuna.“
n Guðjón Davíð Karlsson sem veðjaði við
Jóhannes Hauk Jóhannsson um hvor þeirra
myndi birtast fyrst í Skaupinu. – Fréttablaðið
„Ef þjóðfélagið þolir
þjóðaratkvæðagreiðslu
þolir það einnig
þingkosningar.“
n Lúðvík Bergvinsson,
þingflokksformaður
Samfylkingarinnar, um kosningar
á árinu 2009. – DV
„Mér fannst vanta ákveð-
inn neista í liðið.“
n Guðmundur Guðmunds-
son, landsliðsþjálfari í
handbolta, sem var ekki
sáttur við leik liðsins gegn
b-liði Svía á sunnudag. – DV
„Þetta snerist aldrei um
nein laun, heldur fyrst og
fremst metnað.“
n Fannar Þór Friðgeirsson handknattleiks-
maður sem var að hætta í Stjörnunni og ganga
aftur til liðs við Val. – Morgunblaðið
„Hún streitist við það eitt
að sitja.“
n Jónas Kristjánsson, bloggari og fyrrverandi
ritstjóri, telur sig hafa fundið hvað
stjórnarliðar telji mikilvægasta og lífseigasta
verkefni ríkisstjórnarinnar - og vandar henni
ekki kveðjurnar - jonas.is
Náhirðin
Leiðari
Stærsta vandamál Íslands eft-ir hrunið er að Davíð Oddsson seðlabankastjóri og sá hópur sem honum fylgir að málum
ætla sér umfram allt að ná til sín verð-
mætum úr rústum íslensks samfélags.
Náhirðin, eins og hópurinn kallast, hef-
ur ráðið lögum og lofum á Íslandi mörg
undanfarin ár. Í upphafi var Davíð kos-
inn af þjóð sinni. Þegar Íslendingar
höfðu fengið nóg af honum skipaði hann
sjálfan sig í Seðlabankann. Víða um
heimsbyggðina er hlegið að Íslending-
um fyrir að vera með óhæfan einstakl-
ing í þeirri stöðu. Tíminn mun vonandi
varpa ljósi á sök hins gamla pólítíkuss
á því hvernig fór í hinum svarta októb-
er þegar þrír bankar hrundu. Upphafið
má rekja til yfirtöku ríkisins á Glitni að
næturþeli. Að morgni næsta dags sagði
seðlabankastjóri að Glitnir væri vel rek-
inn banki en um væri að kenna utanað-
komandi aðstæðum. Svo hrundi restin
af bankakerfinu eins og dómínókubb-
ar. Þótt enginn hafi valið Davíð til þess
að stjórna ræður hann samt. Af óskilj-
anlegum ástæðum hefur hann heljar-
tak á Geir H. Haarde, formanni Sjálf-
stæðisflokksins, sem þorir ekki að lyfta
litla fingri gegn sínum gamla formanni.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vara-
formaður hefur aftur á móti gagnrýnt
Davíð harkalega og verið úthrópuð af
náhirðinni fyrir. Á meðan Davíð sit-
ur í Seðlabankanum og drottnar fjar-
ar líf ríkisstjórnarinnar út. Samkvæmt
skoðanakönnunum telja 90 prósent Ís-
lendinga að Davíð sé óþurftarmaður í
Seðlabankanum. Eina leiðin til að ríkis-
stjórnin nái einhverri sátt við almenn-
ing er að reka Davíð úr starfi og gera
náhirð hans óvirka. Gamla þjóðsagan
um náhirðina segir frá því hvernig hin-
ir dauðu átu þá lifandi út á gaddinn. Og
það er einmitt að gerast á Íslandi í dag.
Réttlætið víkur fyrir óttanum við leið-
toga sem þjóðin hefur fengið nóg af.
rEynIr traustason rItstjórI skrIfar. Réttlætið víkur fyrir óttanum
bókstafLega