Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Page 16
þriðjudagur 6. janúar 200916 Ættfræði 30 ára n Ugnius Vaiciulis Meðalholti 11, Reykjavík n Hinrik Gíslason Mýrum, Reykholt n Anton Ingi Þórarinsson Krókeyrarnöf 8, Akureyri Árný Eva Davíðsdóttir Skálateigi 1, Akureyri n Gunnar Geir Waage Stefánsson Hilmisgötu 1, Vestmannaeyjar n Elísabet Árnadóttir Njálsgötu 20, Reykjavík n Ríkharð Ingi Jóhannsson Sogavegi 148, Reykjavík n Svavar Erlingsson Kjærnested Hólmvaði 54, Reykjavík 40 ára n Krystian Karol Gralla Hverafold 130, Reykjavík n Andrzej Piotr Marchwinski Þórólfsgötu 10, Borgarnes n Adelino De Jesus T. Costa Skólabraut 5, Selfoss n Martin Pistek Lækjargötu 10, Siglufjörður n Sigurður Sigurðarson Þjóðólfshaga 1, Hella n Sigfús T. Austfjörð Halldóruson Miðvangi 41, Hafnarfjörður n Ingibjörg Jóhannsdóttir Miðbraut 2, Búðardalur n Haraldur Garðar Ólafsson Álfaskeiði 78, Hafnarfjörður n Jón Halldór Arnfinnsson Reynivöllum 11, Egilsstaðir n Halldór Friðrik Ágústsson Nesbakka 11, Neskaupstaður n Gunnar Rafnsson Hrafnagilsstræti 21, Akureyri n Gunnar Gunnarsson Klettaborg 56, Akureyri n jarki V Waage Hrafnhólum 4, Reykjavík n Bergur Þór Ingólfsson Tunguvegi 62, Reykjavík n Sigurður M Sigurfinnsson Vallholti 9, Selfoss n Andri Áss Grétarsson Kópalind 12, Kópavogur 50 ára n Kanjana Sutsawat Engihjalla 11, Kópavogur n Ómar Jóhannsson Þingási 49, Reykjavík n Kristinn Kristinsson Merkurgötu 2, Hafnarfjörður n Ása Ólafsdóttir Glæsivöllum 8, Grindavík Ágústína O Sigurgeirsdóttir Efstaleiti 42, Reykjanesbær n Þórhalla Arnljótsdóttir Skeiðarvogi 131, Reykjavík n Ólafur Bjarni Bjarnason Hamraborg 18, Kópavogur n Eiríkur Ágúst Ingvarsson Birkigrund 16, Selfoss n Guðrún Guðbjartsdóttir Baldursbrekku 2, Húsavík n Unnur Steina Björnsdóttir Vesturströnd 27, Seltjarnarnes n Fáfnir Frostason Þinghólsbraut 68, Kópavogur 60 ára n Katrín Guðmundsdóttir Dalalandi 16, Reykjavík n Sigurður Bernódusson Þrastarási 73, Hafnar- fjörður n Guðbjörg Haraldsdóttir Æsufelli 6, Reykjavík n Grétar O Guðmundsson Bakkavör 16, Seltjar- narnes n Atli Þór Ólason Baughúsum 37, Reykjavík n Bessi Gíslason Barmahlíð 7, Reykjavík n Þórunn M Ingimarsdóttir Maríubakka 26, Reykjavík n Pavel Róbert Smid Fellahvarfi 21, Kópavogur 70 ára n Eggert Jónsson Barrholti 20, Mosfellsbær n Björgvin Þorvaldsson Greniteigi 2, Reykjanesbær n Kristín Viggósdóttir Stjörnugróf 29, Reykjavík n Trausti Þorleifsson Ásbúð 86, Garðabær n Hreinn Þórðarson Auðkúlu, Bíldudalur n Ríkarð Bjarni Björnsson Faxatúni 42, Garðabær 75 ára n Jón Gunnarsson Álftahólum 4, Reykjavík n Guðbjörg Jóhannesdóttir Brekkuhvammi 5, Hafnarfjörður n Sigtryggur Hreggviðsson Smiðjustíg 1, Eskifjörður n Tómas Sigurþórsson Stekkjarholti 1, Akranes n Júlíus Petersen Guðjónsson Hverfisgötu 64a, Reykjavík n Steinunn Sveinsdóttir Garðarsbraut 81, Húsavík 80 ára n Héðinn Hermóðsson Dalbraut 25, Reykjavík 85 ára n Ásmundur Magnússon Hagaseli 19, Reykjavík n Margrét Blöndal Unnarbraut 1, Seltjarnarnes 90 ára n Anna Samúelsdóttir Háagerði 65, Reykjavík FLUGELDAR Í TILEFNI DAGSINS Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri, fagnar fertugsafmæli sínu í dag með því að mæta til vinnu í Borgarleikhúsinu í fyrsta skipti á nýju ári. Hann ætlar að bíða með stóru veisluna þar til eiginkona hans, Eva Vala Guðjónsdóttir, verður fer- tug 17. febrúar. Bergur Þór á fjórar dætur með Evu Völu, þær Nínu Rún, Urði, Áróru og Emilíu Bergsdætur. „Eftir vinnu verður eitthvað pínulítið og sætt kaffiboð heima. Svo reikna ég með því að gera eitthvað með fjölskyldunni. Kannski förum við í bíó, út að borða eða í keilu. Síðan munum við Eva halda upp á sameiginlegt áttræðisafmæli okkar seinna,“ segir Bergur við DV. Bergur er í óðaönn að æfa leikrit- ið Milljarðamærin snýr aftur, í leik- stjórn Kjartans Ragnarssonar sem var sæmdur fálkaorðunni á nýárs- dag. „Það verður hörð samkeppni á milli okkar í vinnunni um athygli,“ segir Bergur léttur í bragði. Nútímalegt kreppuleikrit Milljarðamærin snýr aftur verður frumsýnt í lok febrúar eða í byrjun mars og segir Bergur að verkið eigi vel við á þessum tímum. „Þetta er gamalt verk um kreppuna og ná- kvæmlega þá stöðu sem við stönd- um í, í dag,“ segir Bergur. „Milljarða- mærin er í senn útrásarvíkingur og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Hún kemur heim í gamla bæinn og er búinn að græða skrilljónir. Bærinn er hins vegar á kúpunni, partíið er búið en það eru allir að vona að hún komi með pening. Hún segist ætla að gefa íbúunum pening, ef þeir káli gamla kærastanum hennar.“ Enginn íbúi í bænum fellst hins vegar á að gera það, en þrátt fyrir það fara allir að kaupa ný föt og skrifa á sig í versl- unum, í von um að einhver annar taki að sér að myrða kærastann. Draumarnir rættust Bergur segist sjálfur ekki vera mikið afmælisbarn. „Ég á í svolitlum erf- iðleikum með að halda upp á eigið afmæli, en kannski lærist mér það á næstu fjörutíu árum.“ Hefð er fyr- ir því að Eva Vala og dætur hans veki hann upp á afmælisdeiginn og færi honum afmælisköku. „En með stærri boð og veislur, þá er ég ekki flinkur í því og jafnvel vanhæfur.“ Bergur segist ekki hafa upplifað neitt stress fyrir því að verða fertug- ur. „Þetta er enginn 2000-vandi eða neitt slíkt. Það skellur ekkert á dag- inn sem maður verður fertugur, en þetta er samt stór tala.“ Aðspurður hvort aðrar hefð- ir hafi myndast á afmælisdaginn hans, svarar hann: „Það eru rosa- lega margir sem skjóta upp flugeld- um þennan dag.“ Og það er auðvitað til að fagna afmælinu þínu? „Ég get alveg logið því að þér,“ segir hann. Að lokum segist hann sáttur á þessum tímamótum. „Draumar mínir frá því ég var 12 ára hafa ræst. Ég er giftur stelpunni sem ég var skotinn í, ég er leikari og er að vinna við það. Ég þarf ekkert að væla. Ég þyrfti kannski að setja niður næsta 30 ára plan á blað, en það er reyndar voðalega svipað gamla planinu.“ valgeir@dv.is Til hamingju með afmælið! „Þetta er viss áfangi að verða þrí- tugur,“ segir Anton Ingi Þórarins- son, smiður á Akureyri, en hann fagnar þessum merka áfanga í dag. Anton segir afmælisdaginn ekki frábrugðinn öðrum dögum en að það kæmi vel til greina að bjóða vinnufélögunum í kaffi. „Það verð- ur haldin veisla seinna. Ég á af- mæli svo nálægt jólunum og flest- ir eru komnir með algjört ógeð á veislum,“ segir Anton og bætir við: „Það er samt ágætt að eiga afmæli á þessum tíma, skárra en að eiga afmæli á jólunum sjálfum.“ Blaða- maður forvitnast hvort það hafi verið erfitt fyrir Anton sem krakka að eiga afmæli í byrjun janúar, en Anton er fljótur að svara neitandi. Hann segir það örlítið skárra að eiga afmæli 6. janúar en 2. janúar. Anton og kona hans, Jóhanna Ágústa, voru að flytja inn í nýtt hús og telur Anton það ekki ólíklegt að hann slái saman þrítugsafmæli sínu við innflutningsveislu. Aðspurður hvort hann ætli að kokka glæsilegar kræsingar fyrir veisluna er Anton fljótur að svara: „Ætli það verði ekki veitingar í fljótandi formi.“ Anton vissi ekki til þess að fjölskylda hans ætli að gera eitthvað sérstakt í tilefni af afmæli hans, en hann bjóst nú við því að eiginkonan bakaði eina köku. Á óskalistanum er ekki margt. „Ég er með stangveiðidellu. Það ætti ekki að vera erfitt að velja gjöf handa mér,“ segir Anton sem nú þegar er byrjaður að hlakka til sumarsins. Anton Ingi Þórarinsson fagnar þrítugsafmæli sínu í dag: afmælisveisla og innflutningspartí Anton Ingi Þórarinsson Á þrítugsafmæli í dag. „Þetta verður bara ósköp venjuleg- ur dagur af því að þetta er þriðju- dagur, bara vinna. Um næstu helgi ætla ég hins vegar að hafa smá veislu fyrir nánustu fjölskyldu,“ segir Ómar Jóhannsson vörubíl- stjóri sem fagnar stórafmæli í dag, er fimmtugur. „Ég ætlaði að stinga af til Kanarí en sökum ástandsins í þjóðfélag- inu er það ekki hægt. Ég var farinn að hugsa um hvar ætti að panta og svoleiðis. En ég varð því miður að hætta við það fyrst allt fór til and- skotans,“ segir Ómar en hann var búinn að undirbúa það aðeins að fá nokkra úr nánustu fjölskyldu til að koma með, auk eiginkonu og barna. „Það er alltaf langbest að fara svona út með stuttum fyrirvara,“ segir Ómar sem hefur reynslu af því að skjótast svona til útlanda með stuttum fyrirvara. Þegar hann varð þrítugur fór hann nefnilega til Amsterdam með tveggja daga fyrirvara. „Ég hafði aldrei komið þangað og datt bara allt í einu að kíkja þangað. Ég fór þangað í langa helgi með konunni og nokkrum vinum og þetta var alveg rosalega gaman. Við vorum á Hótel Pulitzer og þar var allt snobblið þjóðarinn- ar mætt út af einhverri listasýn- ingu,“ segir Ómar á léttu nótun- um. „Við vissum ekkert af þessari veislu, það var algjör tilviljun að hún skyldi vera á sama tíma,“ segir Ómar en um var að ræða sýningu nokkurra íslenskra listamanna sem sett var upp á hótelinu. „Við fórum bara í bingógallann og þá var þetta komið. Það má því kannski segja að íslenska utanrík- isþjónustan hafi séð um þrítugsaf- mælið mitt.“ Ómar er hógvær þegar hann er spurður hvort hann vonist eftir einhverjum sérstökum gjöfum í veislunni um næstu helgi. „Ég er ekki að sækjast eftir neinu svoleið- is. Ég vil frekar að fólk komi bara og hafi gaman. Ég hef verið spurð- ur svolítið undanfarið hvað ég vil og svarið er ekkert.“ Ómar Jóhannsson er fimmtugur í dag: stökk óvænt til amsterdam Ómar Jóhannsson Ætlaði til Kanarí í tilefni afmælisins en hætti við sökum efnahagsástandsins. Bergur Þór Ingólfsson, leikari og leikstjóri er fertugur í dag:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.