Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2009, Page 22
þriðjudagur 6. janúar 200922 Fólkið
Addi Introbeats er nýbúinn að
senda frá sér lag á heimsíð-
unni myspace.com/studiotivoli
þar sem er að finna úrvalslið
íslenskra rappara. Lagið heitir
Posse Cut og skartar heilum 13
rímnasérfræðingum sem eru
hver öðrum betri. Þar má meðal
annars nefna Bent, Dóra DNA,
7berg, Emmsé Gauta, Dabba T,
Nagmús, Stjánaheitirmisskilinn,
Kájoð og Didda Fel. Introbeats
sendi nýlega frá sér plötuna
Tívolí Chillout þar sem margir
þessara rappara koma fram en
platan hefur fengið einróma lof
gagnrýnenda.
Hitti líf-
gjafa sinn
„Það er svo gaman að sjá þig loksins.
Það er mikið lán sem fylgir þér,“ sagði
Svana Björnsdóttir, móðir Björns
Vagnssonar, þegar sonur hennar
hitti lífgjafa sinn á heimili foreldra
sinna í Fellsmúlanum um nýliðna
helgi. Björn brann illa á hluta lík-
amans, aðallega á höfði og höndum,
þegar bíll hans bókstaflega sprakk í
loft upp og stóð svo í björtu báli, við
Reykjaveg í Reykjavík í lok
september síðastlið-
ins, eftir að gas hafði
lekið úr gaskúti
sem var í aftur-
sæti bílsins. Þrá-
inn Bjarnason
Farestveit varð
vitni að slysinu
og var fljótur til
að bjarga Birni
úr bílnum, eins
og hann lýsti
í viðtali í ára-
mótablaði DV
í tilefni þess að
hann var valinn
hetja ársins 2008
að mati ritstjórnar
blaðsins.
Björn er dagleg-
ur gestur í Laug-
ardalslauginni.
Stundum
fer hann
jafn-
vel
tvisvar á dag. „Ég sá hann liggja hjá
rafstöðinni við sundlaugina. Ég fór
tvisvar í sund þennan dag eins og
ég geri stundum. Ég sá kútinn fyrst
um morguninn og svo aftur seinni-
partinn þannig að þá ákvað ég að
taka hann,“ segir Björn og bætir við
að hann hafi verið um klukkustund
í lauginni. Á meðan lak gas úr kútn-
um þar sem hann lá í aftursæti bíls-
ins. Þegar gas hefur smogið inn
í allt innvols bifreiðar þarf
afar lítinn neista í raf-
búnaði hennar til að
valda sprengingu,
og það var ein-
mitt það sem
gerðist stuttu
eftir að Björn ók
af stað að sund-
ferðinni lok-
inni.
Björn
man lítið eft-
ir bíltúrnum
örlagaríka.
„Ég man eft-
ir að hafa heyrt
sprengingu. Svo man ég eiginlega
næst eftir mér uppi á sjúkrahúsi.“
Björn dvaldi í tæpan mánuð á spít-
ala eftir slysið, lengst af í einangr-
un vegna hættu á að sýking kæmist
í brunasárin. Húð hefur verið færð
á milli á líkama Björns til að græða
sárin en hann er nú á góðum bata-
vegi. „Ég er nýbyrjaður að mega
fara í sund aftur. Það skiptir öllu
máli,“ sagði Björn og brosti
breitt á fagaðarfundun-
um í Fellsmúla um helg-
ina, bæði yfir því að geta
stundað laugarnar aftur
og að hitta lífgjafa sinn.
Sem þakklætisvott
afhenti Björn Þráni
innrammaða mynd
af hetjunni sem fylgdi
viðtalinu við hann í
áramótablaði DV. Und-
ir myndinni er texti þar
sem Þráni er þakkað fyr-
ir hetjudáðina. „Þetta
endist betur en blóm,“
sagði bróðir Björns,
Stefán, sem var
viðstaddur
stefnumót kumpánanna. Það voru
líka hæg heimatökin hjá Stefáni þar
sem hann rekur innrömmunarfyr-
irtæki. „Ég þakka rosalega vel fyrir
mig. Og ég sé að þetta er mjög fag-
lega innrammað,“ sagði Þráinn.
Svana, móðir Björns, kvaðst ekki í
vafa um að forlögin hafi
hagað því þannig
að Þráinn var á
staðnum þeg-
ar bíll sonar
hennar varð
eldinum að
bráð. „Ég
er forlaga-
trúar. Það
er ekkert
sem kem-
ur í veg fyr-
ir það sem
mönnunum
er ætlað. Það
eru svo mörg
dæmi þess og
þetta er eitt
þeirra.“
kristjanh@
dv.is
Fagnaðarfundir urðu um síðustu helgi þegar Björn Vagnsson, sem bjargað var úr brenn-
andi bíl á liðnu hausti, hitti manninn sem dró hann úr eldhafinu. Lífgjafinn er Þráinn
Bjarnason Farestveit sem valinn var hetja ársins hjá DV um áramótin.
Mikið hefur verið rætt um nýjasta
útspil söngkonunnar Bjarkar Guð-
mundsdóttur. Hún er að setja á lagg-
irnar sjóð ásamt fyrirtækinu Auður-
Capital sem mun fjárfesta í grænum
iðnaði og sprotafyrirtækjum hér á
landi. Björk er því orðin tækifær-
is- eða áhættufjárfestir og fer í hóp
með grænum áhættufjárfestum eins
og Bono úr U2 og fyrrverandi for-
setaframbjóðanda Bandaríkjanna,
Al Gore.
Bono hefur ávallt verið öflugur
talsmaður náttúruverndar og bar-
áttu gegn fátækt en hann er meðal
annars þátttakandi í sjóði sem heitir
Elevation Partners. Sjóðurinn fjár-
festir í hugverkum af ýmsum toga
svo sem tónlist og ritverkum. Þá er
Al Gore einnig þátttakandi í nokkr-
um svipuðum sjóðum.
Brad Pitt og Angelina Jolie fjár-
festu í verkefni í New Orleans eft-
ir fellibylinn Katrínu þar sem 150
heimili voru byggð og rekin með
sólarorku. Pitt og Jolie settu milljón
dali af eigin fé í verkefnið en vonast
er til að slík hús verði reist víðar í
framtíðinni.
Það verður spennandi að fylgjast
með verkefni Bjarkar en stefnt er á
að sjóðurinn verði búinn að safna
um 100 milljónum króna til að fjár-
festa í íslensku efnahagslífi í mars.
asgeir@dv.is
grænar stórstjörnur
Úrvalsliðið
í rappi
Björk í hóp með AL Gore, Bono, BrAD pitt oG FLeirum:
FagnaðarFundir í Fellsmúla:
Kári Sturluson, sem þekktastur
er sem tónleikahaldari, sendi
á fjölmiðla afsökunarbeiðni til
íslensku þjóðarinnar um síðustu
helgi sem snýr að þeirri ákvörð-
un hans að kjósa Samfylking-
una í síðustu þingkosningum.
Kári segir þar að því miður hafi
atkvæði hans stuðlað að því að
Samfylkingin myndaði ríkis-
stjórn með Sjálfstæðisflokknum.
„Því miður reyndist ákvörðun
mín kolröng og þetta er atkvæði
sem ég fæ aldrei til baka. Það
eina sem ég get gert nú er að
biðja íslensku þjóðina auðmjúk-
lega afsökunar og vona að mis-
tök mín megi verða öðrum víti
til varnaðar,“ segir Kári. Sérstakt
hlýtur að teljast að senda slíka
afsökunarbeiðni á fjölmiðla
landsins. Beiðnin er kannski enn
athyglisverðari í ljósi þess að
systir Kára, Oddný Sturludóttir,
er borgarfulltrúi Samfylkingar-
innar.
Enginn Er
annars bróðir
Al Gore, Brad Pitt og Bono
Björk bætist í hóp grænna
stórstjarna.
Björk Styður
land og þjóð.
Félagar Björn var afar ánægður
með að hitta þráin sem bjargaði
honum úr brennandi bíl í haust.
Þakklætisvottur „þetta endist betur
en blóm,“ sagði bróðir Björns um
innrammaða myndina sem Björn og
fjölskylda afhentu þráni sem
þakklætisvott fyrir hetjudáðina.