Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Side 4
Framlögin fjórfölduðust Fjárframlög til ferðamála hafa nær fjórfaldast á rétt rúmum áratug. Þau námu 275 milljón- um að núvirði árið 1998 en í ár er áætlað að rúmum milljarði verði varið til ferðamála. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Sturlu Böðvarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi samgönguráðherra. Ferðamálastofa fær tæpan helming alls fjár sem veitt er í ferðamál. Það er þó minna en í fyrra þegar Ferðamálastofa fékk tvo þriðju framlaga. Síðan þá hafa heildarframlög til ferðamála hækkað en framlög til Ferða- málastofu lækkað verulega. Miðvikudagur 18. Mars 20094 Fréttir Efling mótmælti ekki uppsögn ofbeldisfulla leikskólastarfsmannsins: gættu réttinda starfsmannsins Í DV í gær var fjallað um starfsmann leikskólans Bergs sem var vikið úr starfi eftir að hafa ítrekað orðið upp- vís að því að slá fimm ára gamlan dreng á munninn. DV hafði heimildir fyrir því að stéttarfélagið Efling hefði bannað uppsögn starfsmannsins og hótað öllu illu ef uppsögnin fengi fram að ganga. Ragnar Ólason, þjónustufulltrúi hjá Eflingu, segir þessar heimild- ir rangar og að Efling hafi með engu móti bannað uppsögn starfsmanns- ins. „Ef starfsmenn eru brotlegir mót- mælum við ekki uppsögn þeirra. Það er alfarið Reykjavíkurborg sem ákveður hvaða leið er farin. Eins og fram hefur komið var ákveðið að nota áminningarferli í þessu tilviki. Þá er starfsmaður boðaður á fund bréflega og honum tilkynnt að það sé ráðgert að veita honum áminningu fyrir til- tekinn hlut. Starfsmaður fær nokkra daga til að búa sig undir þann fund og koma með sín sjónarmið í mál- inu. Á þessum fundi fer yfirmaður og starfsmaður yfir sín sjónarmið og það er okkar að passa það að starfsmað- ur geti komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Hins vegar er það starfs- mannanna sjálfra að koma með rök fyrir sínu máli. Nokkrum dögum síð- ar fær starfsmaður áminninguna og í þessu ákveðna tilviki fréttum við ekki af því fyrr en starfsmaðurinn hringdi í okkur,“ segir Ragnar. Í fréttatilkynningu frá Eflingu um málið kemur fram að „hlutverk stétt- arfélagsins er að gæta þess að starfs- maðurinn njóti þeirra réttinda sem honum ber samkvæmt kjarasamn- ingum“. Efling-stéttarfélag lítur á brot gagnvart börnum á leikskólum sem hörmulega atburði. Það breytir engu um það að allir starfsmenn á opin- berum vinnustöðum eiga sinn and- mælarétt.“ liljakatrin@dv.is Illa brugðið Ólöf Ásta karlsdóttir, móðir drengsins sem starfsmaður leik- skólans Bergs sló, segir drenginn vera á varðbergi eftir ofbeldi starfsmannsins. skellt í lás á klámbúllum Bann við nektarstöðum á Íslandi er liður í aðgerðaáætlun gegn mansali sem Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir kynnti í gær. Hún segir vitað að mansal viðgangist á nektarstöðum í nágrannalöndum okkar og markmiðið sé að koma í veg fyrir slíkt hér. Ásgeir Davíðsson, eigandi Goldfingers, hefur þó litlar áhyggjur og undrast aðgerðir ríkisstjórnarinnar. „Það er vitað að mansal hefur við- gengist á slíkum stöðum í löndunum í kringum okkur. Við erum að reyna að koma í veg fyrir að slíkt eigi sér stað,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt- ir, félags- og tryggingamálaráðherra, spurð um hvort hún telji tengsl vera milli nektarstaða og mansals. Ásta Ragheiður kynnti í gær að- gerðaáætlun gegn mansali. Þar er meðal annars lagt til bann við nektar- stöðum. Lögfest fyrir kosningar Fyrir allsherjarnefnd Alþingis liggur þegar frumvarp þar sem lagt er til að fella brott undanþáguheimild í lög- um til nektarsýninga í atvinnuskyni á veitingastöðum. Ásta Ragnheiður var meðal flutningsmanna frumvarpsins þegar það var lagt fram í nóvember. Hún er bjartsýn á að það verði að lög- um fyrir komandi kosningar og að lög- in taki þá strax gildi. Frumvarp sama efn- is var lagt fram á síð- asta löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Samfylk- ing og vinstri græn virðast hins vegar ná vel saman þegar kemur að þessum málaflokki. Goldfinger í Kópavogi er einn þeirra staða sem bjóða upp á nektar- dans. Ásgeir Davíðsson, eigandi Gold- fingers, segist hafa litlar áhyggjur af fyrirhugaðri lagabreytingu. „Menn vita ekki hvað er að gerast inni á staðnum hjá mér þannig að ég sé ekki hvernig einhver ríkisstjórn geti sest niður og ákveðið það að stelpurnar eigi ekki að vera berrassaðar. Hvernig vita þeir að þær séu berrassaðar? Hvað- an hafa þeir það? “ spyr Ásgeir sem er betur þekktur sem Geiri á Goldfinger. Hann bætir ennfremur við: „Þeir loka kannski fyrir nekt. En eins og hjá mér gengur þetta ekki svo mikið út á nekt, þetta gengur út á það að menn eru að horfa á léttklædd- ar stelpur.“ Tengsl nektarstaða og vændis Ásta Ragnheiður seg- ir bann við nektardansi hins vegar aðeins einn þátt aðgerðaáætlun- arinnar enda er hún í 25 liðum. Hún seg- ir áætlunina löngu tímabæra. „Mansal er vandamál hér á landi. Dómsmálaráðuneytið, lögregl- an og félagasamtök sem sinna fórnar- lömbum mansals eru sammála um að þetta sé alþjóðleg glæpastarfsemi sem teygi anga sína hingað,“ segir hún. Í greinargerð með áætluninni þar sem fjallað er um nektardans segir að hingað til hafi ekki með dómi ver- ið færðar óyggjandi sönnur á tengsl mansals og nektarstaða hérlendis en þó hafi komið fram í fjölmiðlum upp- lýsingar um aðstæður dansara sem bera ýmis einkenni mansals eins og það er skilgreint í alþjóðasáttmálum. Þótt aðgerðaáætlunin sé sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi er um- ræðan um mansal tengt Íslandi síður en svo ný af nálinni. Þannig lögðu full- trúar íslensku ríkisstjórnarinnar fram yfirlýsingu á fundi Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2002 þar sem segir: „Ísland hefur verið notað sem viðkomuland í flutn- ingi kvenna frá Evrópu til Bandaríkj- anna og fjöldi erlendra kvenna kem- ur ár hvert til Íslands til að vinna sem nektardansmeyjar á næturklúbbum. Viðvörunarbjöllur hringdu þegar nið- urstöður rannsóknar, sem gerð var að frumkvæði dómsmálaráðherra, leiddu í ljós tengsl milli nektarstaða í Reykjavík og vændis. Athygli var beint að því að sumar hinna erlendu kvenna sem vinna sem nektardansmeyjar geti verið neyddar til að stunda vændi.“ Hvað eR mansaL? „Mansal er verslun með fólk með ábata að markmiði til að svara eftirspurn eftir konum, körlum og börnum til starfa á kynlífsmarkaði, í nauðungarvinnu, við glæpastarfsemi og hernað og einnig í þeim tilgangi að nema úr því lífffæri sem seld eru á ólöglegum markaði.“ * skilgreining úr greinargerð aðgerðaáætlunar gegn mansali eRLa HLynsDóTTIR blaðamaður skrifar: erla@dv.is „Ég sé ekki hvernig ein- hver ríkisstjórn geti sest niður og ákveðið það að stelpurnar eigi ekki að vera berrassaðar.“ engir nektarstaðir Ásta ragnheið- ur Jóhannsdóttir segir að bann við nektarstöðum sé hugsað sem liður í baráttunni gegn mansali á Íslandi. mynD sIgTRygguR aRI JóHannsson engar áhyggjur Ásgeir davíðsson á goldfinger segir starfsemina þar ekki ganga svo mikið út á nekt. Löggan stoppar landabrugg Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu réðst til inngöngu í iðnaðarhúsnæði á Stórhöfða í Reykjavík um fjögurleytið í gær vegna gruns um að þar væri ólögleg bruggverksmiðja til húsa. Grunur þessi reyndist á rökum reistur en í verksmiðj- unni voru eimingartæki sem notuð voru til að brugga landa. Að sögn lögreglu liggur ekki ljóst fyrir hversu mikið magn af landa var gert upptækt en líklegt er að það séu um þrjú hundruð lítrar. Hörmuleg kynja- hlutföll „Það hefur því miður verið kos- ið þannig í nefndir á Alþingi að kynjahlutföllin hafa verð hörmuleg,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra fjármála, landbúnaðar og sjávarútvegs. Í nýskipuðu bankaráði Seðla- bankans eru fimm karlar og tvær konur. Jafnréttisráð hefur tekið til skoðunar kvörtun Silju Báru Ómarsdóttur, stjórnmálafræði- aðjúnkts við Háskóla Íslands, þar sem hún telur að kosning í ráðið gangi gegn jafnréttislögum sem kveða á um 40 prósent hlut hvors kyns í nefndum og ráðum á vegum ríkisstjórnarinnar. Nýverið var einnig kjörið í stjórnarskrárnefnd á vegum Al- þingis þar sem átta karlmenn og ein kona eiga sæti. Ráðherrar upplýsi um fjármál sín Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í gær að tillögur sem lagðar voru fyrir Alþingi í gær um reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðar- störfum utan þings eigi strax að gilda um ráðherra í ríkisstjórn. Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra hefur jafnframt falið starfshópi sem skipaður verður fulltrúum forsætisráðu- neytisins, fjármálaráðuneytis- ins og einum utanaðkomandi sérfræðingi að semja drög að siðareglum fyrir embættis- menn og aðra starfsmenn inn- an stjórnsýslu ríkisins. Starfs- hópurinn skal skila tillögum fyrir 15. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.