Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Page 13
Miðvikudagur 18. Mars 2009 13Fréttir Áhugaverð og gagnleg starfsemi í Rauðakrosshúsinu Ókeypis ráðgjöf námskeið og Allir velkomnir í Rauðakrosshúsið Rauðakrosshúsið er miðstöð fyrir alla landsmenn þar sem einstaklingar og ölskyldur geta leitað stuðnings við að takast á við breyttar aðstæður, fengið ráðgjöf um margvísleg úrræði sem bjóðast í samfélaginu - eða nýtt krafta sína öðrum til gagns. Öll þjónusta og viðburðir eru gestum að kostnaðarlausu. Kynning og umræður: Sálrænn stuðningur Mánudagur 16. mars kl. 14:30 - 16:00. Fjallað er um áhrif alvarlegra atburða á andlega líðan fólks og viðbrögð þess í kjölfar slíkra atburða. Bent verður á hvað er mikilvægt fyrir fólk að gera í þessu sambandi. Umræður í lokin. Fagaðilar veita ráðgjöf Í Rauðakrosshúsinu getur fólk sótt sér sálrænan stuðning hjá fagaðilum úr áfallateymi Rauða krossins, prestum og djáknum sér að kostnaðarlausu. Sérþjálfaðir sjálfboðaliðar taka á móti fólki og aðstoða það við að nna úrræði við hæ. Ýmsir aðrir sérfræðingar veita ráðgjöf. Félagsstarf og fræðsla Rauðakrosshúsið er vettvangur fyrir ýmis konar félagsstarf og fræðslu (sjá nánari dagskrá á heimasíðunni raudakrosshusid.is). Þar er aðstaða fyrir börn, kahorn þar sem lesa má blöð og bækur, tölvuver, námskeið og ýmislegt eira. Gestir eru hvattir til að nýta sér aðstöðuna og félagsskap annarra til að halda uppi lifandi star í Rauðakrosshúsinu. Dagleg starfsemi er í höndum sjálfboðaliða. Dagskrá vikuna 16. - 20. mars Námskeið: Sáttamiðlun Þriðjudagur 17. mars kl. 14:30 - 16:00. Kynnt grundvallaratiði í að sætta deiluaðila í einka- og ölskyldumálum. Í lok námskeiðs eru léttar verklegar ængar og umræður. Kynning: Aðstæður ungmenna í Palestínu Þriðjudagur 17. mars kl. 17:00 - 18:00. Myndasýning og létt spjall um ferðalag íslenskra ungmenna til Palestínu. Kynning: Matarkarfan Miðvikudagur 18. mars kl. 14:30 - 15:30. Nú skiptir hagsýni í matarinnkaupum höfuðmáli. Kynning á vefnum matarkarfan.is, besta vini buddunnar. Kynning: Verkefni Rauða kross Íslands Miðvikudagur 18. mars kl. 15:30 - 16:30. Stutt kynning og umræður um helstu verkefni félagsins hér á landi. Gætir þú lagt eitthvað að mörkum? Námskeið: Ísgerð heima Fimmtudagur 19. mars kl. 14:30 - 16:30. Ís er sú fæða sem kemur fólki helst til að brosa og kætir umfram annan mat. Fjallað er um ís og ísgerð og kynntar nýstárlegar aðferðir við að búa til gómsætan rjómaís, mjólkurís og jógúrtís á jótlegan og einfaldan hátt. Bragðgott og hressandi námskeið. Borgartún 25 Sími: 5704000 www.raudakrosshusid.is Opið alla virka daga kl. 12-18 Kynning: Hjálparsíminn 1717 og Vinanet Fimmtudagur 19. mars kl. 16:30 - 17:30. Vinanetið er netspjall fyrir ungt fólk. Hjálparsíminn veitir ráðgjöf til fólks á öllum aldri. Verkleg æng: Endurlífgun og hjartarafstuðstæki Föstudagur 20. mars kl. 14:30 - 15:30. Stutt verklegt námskeið sem getur gert þér kleift að bjarga mannslí þegar mínútur skipta máli. Kynning: Rauðakrosshúsið Föstudagur 20. mars kl. 15:30 - 16:30. Allir sem hafa áhuga á að kynnast starfseminni eða vilja leggja sitt af mörkum eru velkomnir. Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is Fjarstýrðir rafmagns- og bensínbílar í úrvali Ríkidæmi Rússa minnkaR Því er spáð að vaxandi fjöldi rússneskra oligarka muni brátt veðsetja snekkjur sínar og selja þoturnar, en áætlað er að um 369 milljarðar dollara hafi guf- að upp af samanlögðum auði þeirra í kjölfar verðlækkunar á olíu, en verð á tunnu hefur lækkað um meira en eitt hundrað bandaríkjadali síðastliðna níu mánuði. Listi Forbes fyrir árið 2009 yfir auð- ugustu menn heims kom út í síðustu viku og samkvæmt honum hefur rúss- neskum milljarðamæringum fækkað úr áttatíu og sjö niður í þrjátíu og tvo, miðað við síðasta ár. Óhætt er að segja að Moskva beri skarðan hlut frá borði miðað við New York. Höfuðborg Rússlands státar nú af aðeins tuttugu og sjö milljarðamær- ingum og hefur tapað titlinum „höfuð- borg milljarðamæringa“ til New York sem á, samkvæmt lista Forbes, fimm- tíu og fimm milljarðamæringa. En það er ekki svo gott að Moskva sé í öðru sæti því Lundúnir eiga einum millj- arðamæringi fleiri en Moskva, eða tut- tugu og átta. Sviptingar hjá milljarðamæringum Áljöfurinn Oleg Deripaska, sem á síð- asta ári var níundi ríkasti maður heims og auðugastur Rússa, hefur þurft að horfa upp á auð sinn verða að nær engu. Vegna kreppunnar hefur hann tapað 24,5 milljörðum bandaríkjadala og á nú um stundir „aðeins“ 3,5 millj- arða. Eftir að kreppan skall á hafa mörg fyrirtækja hans reynt eftir fremsta megni að halda sér á floti. RusAl skuldar bönkum um fjórtán milljarða bandaríkjadala og GAZ Group skuld- ar um 1,3 milljarða bandaríkjadala. Orðrómur er á kreiki um að heildar- skuldir Basic Element, móðurfélags Deripaskas, séu um tuttugu og átta milljarðar bandaríkjadala. En maður kemur í manns stað og Mikhail Prokhorov, formaður Pol- yus Gold, hefur tekið stöðu ríkasta manns Rússlands. Prokhorov hefur, líkt og Oleg Deripaska, séð auð sinn snarminnka. Árið 2008 var hann met- inn á 19,5 milljarða bandaríkjadala og var í 24. sæti lista Forbes yfir rík- ustu menn heims. Nú er Prokhorov metinn á 9,5 milljarða dala. Fáir sleppa með skrekkinn Eigandi breska knattspyrnufélags- ins Chelsea, Roman Abramovich, er annar auðugasti maður Rússlands. Hann er metinn á 8,5 milljarða dala, samkvæmt lista Forbes, og hefur tap- að um fimmtán milljörðum síðan 2008, en þá var hann metinn á 23,5 milljarða dala. Á meðal annarra oligarka sem berjast við að bjarga auðæfum sínum má nefna Kirill Pisarev og félaga hans Yuri Zhikov, sem hvor um sig tapaði um níutíu prósentum auðs síns þeg- ar verð á hlutabréfum í þróunarfyrir- tæki þeirra, PIK, snarféll. Yelena Baturina, eigandi bygg- ingafyrirtækisins Intenko, berst í bökkum og hefur hún beðið stjórn- völd um fjárhagslega aðstoð. Batur- ina hefur tapað 3,3 milljörðum af 4,2 milljarða auði sínum. Einnig má nefna til sögunnar Igor Yakovlev sem hefur tapað 1,6 millj- örðum dala af 1,8 milljörðum. Yak- ovlev hefur misst stjórnartaumana á Eldorado, stærsta smásölufyrirtæk- is Austur-Evrópu á sviði heimilis- og rafmagnstækja, sem var metið á 3,5 milljarða dala fyrir ári. Yakovlev var með fleiri járn í eldinum en fyrir- tæki hans, Banana Mama sem seldi barnafatnað, varð gjaldþrota. Skuggi kreppu á götum Moskvu Fjórum áratugum eftir að faðir henn- ar samdi Back in the USSR lokar Stella McCartney verslunum sínum í Moskvu. Óhætt er að segja að nú sé hún Snorrabúð stekkur því fleiri tískuhönnuðir fylgja fordæmi Stellu, þeirra á meðal Lanvin og Alexander McQueen. Verslanir sem áður voru troðfullar út úr dyrum af pelsklædd- um Rússum sem börðust um að kaupa það nýjasta frá Vesturlöndum ku nú standa auðar. Það er af sem áður var þegar auð- ugir Moskvubúar eyddu olíudöl- um sínum í munaðarverslunum, því innistæður þeirra minnkuðu samfara lækkandi heimsmarkaðsverði á olíu. Það er víst ekki óalgengt að fleiri af- greiðslumenn séu í tískubúðunum en viðskiptavinir, auk þess sem verulega hefur dregið úr umferð á götunum. En utan Moskvu og Pétursborg- ar blasir við öllu alvarlegra vanda- mál en verslunargeta nýríkra Rússa. Í Rússlandi er að finna fjölda borga þar sem stærstur hluti íbúa er í vinnu hjá einu fyrirtæki, til dæmis bílaframleið- anda. Það liggur í hlutarins eðli að ef viðkomandi fyrirtæki á í fjárhagsörð- ugleikum missir stór hluti íbúa borg- arinnar vinnuna. Með fjöldaatvinnuleysi eykst hætt- an á samfélagslegri ólgu og nú þeg- ar hefur komið til mótmælaaðgerða fólks sem misst hefur vinnuna eða verið lækkað í launum. Mótmæli í Moskvu auknu atvinnuleysi fylgir hættan á samfélagslegri ólgu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.