Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2009, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 18. Mars 200916 Ættfræði Jón Guðbrandsson fyrrv. héraðsdýralæknir Jón fæddist í Finnbogahúsi í Reykja- vík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1950 og námi í dýralækningum í Dýra- læknaháskólanum í Kaupmannahöfn í ársbyrjun 1957. Jón var aðstoðardýralæknir í Bred- sten á Jótlandi til ársloka 1957, starf- aði á rannsóknarstofu Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík 1958-61 og var héraðsdýralæknir á Selfossi frá því í ársbyrjun 1962-1999. Jón var ritari Dýralæknafélags Ís- lands 1964-75 og formaður þess 1979- 82, formaður sjálfstæðisfélagsins Óð- ins á Selfossi 1969-71 og 1973-74, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfé- laganna í Árnessýslu 1971-75, í stjórn fiskvinnslufyrirtækisins Straumness á Selfossi 1970-78 og formaður 1978, sat í sauðfjársjúkdómanefnd frá 1970 og var formaður nefndarinnar 1970- 73, sat í hreppsnefnd Selfoss 1974-78 og var formaður Hitaveitu og Rafveitu Selfoss 1974-78. Fjölskylda Jón kvæntist 31.8. 1951 Þórunni Ein- arsdóttur, f. 15.5. 1931, húsmóð- ur. Hún er dóttir Einars Ólafssonar, bónda í Lækjarhvammi í Reykjavík, og k.h., Bertu Á. Sveinsdóttur hús- móður. Börn Jóns og Þórunnar eru Berta Sigrún, f. 22.5. 1953, húsmóð- ir í Reykjavík, gift Pétri Guðjónssyni verkfræðingi, og eiga þau sex börn og tvö barnabörn; Sigríður, f. 5.1. 1955, bóndi á Fossi í Hrunamannahreppi, gift Hjörleifi Ólafssyni bónda og eiga þau fimm börn og fimm barnabörn; Einar, f. 28.1. 1958, húsasmiður og verslunarmaður á Selfossi, kvænt- ur Guðfinnu Elínu Einarsdóttur hús- móður, og eiga þau þrjú börn saman, auk þess sem Einar á son frá því áður en þau eiga eitt barnabarn; Ragn- hildur, f. 8.3. 1961, forstöðukona hjá Vinnumiðlun fatlaðra á Selfossi, gift Antoni Hartmannssyni kjötiðnaðar- manni og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn; Guðbrandur, f. 28.2. 1962, húsasmiður á Selfossi, kvæntur Guð- rúnu Eddu Haraldsdóttur, hárskera og starfsmanni við Sjúkrahús Suður- lands, og eiga þau þrjú börn; Ingólf- ur Rúnar, f. 29.9. 1963, landfræðingur í Kópavogi, kvæntur Svanborgu Þrá- insdóttur röntgentækni, og eiga þau sex börnr; Sveinn Þórarinn, f. 10.9. 1965, pípulagningarmeistari á Sel- fossi, kvæntur Selmu Sigurjónsdótt- ur húsmóður og eiga þau þrjú börn; Brynhildur, f. 8.7. 1969, starfsmaður við sambýli, búsett á Selfossi, maður hennar er Guðjón Kjartansson sím- virki og eiga þau þrjú börn; Matthild- ur, f. 11.1. 1976, búfræðingur á Ak- ureyri en maður hennar er Hjörtur Bjarkar Halldórsson viðskiptafræð- ingur og eiga þau tvö börn. Systkini Jóns eru Bjarni, f. 17.11. 1932, pípulagningameistari í Reykja- vík; Logi, f. 29.9. 1937, hrl. í Garða- bæ; Ingi Steinar, f. 23.8. 1942, vélvirki í Reykjavík. Hálfsystur Jóns, samfeðra: Kristín, d. 1936; Ragnheiður Guðbrandsdótt- ir Guðjohnsen, nú látin, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Jóns voru Guðbrand- ur Jónsson, f. 30.9. 1888, d. 5.7. 1953, prófessor og rithöfundur í Reykja- vík, og Sigríður Bjarnadóttir, f. 23.1. 1911, d. 27.1. 2007, húsmóðir, búsett í Reykjavík. Ætt Guðbrandur var sonur Jóns þjóð- skjalavarðar Þorkelsson, pr. á Staða- stað Eyjólfssonar. Móðir Þorkels var Guðrún Jónsdóttir, pr. og skálds á Bægisá, Þorlákssonar. Móðir Jóns Þorkelssonar var Ragnheiður Páls- dóttir, prófasts í Hörgsdal, Pálssonar, og f.k.h., Matthildar Teitsdóttur. Móð- ir Guðbrands var Karólína Jónsdóttir, b. á Finnastöðum í Hrafnagilshreppi í Eyjafirði, Jóhannessonar. Sigríður var dóttir Bjarna, stein- smiðs í Reykjavík, Sverrissonar, b. í Klauf í Meðallandi, Magnússonar. Móðir Bjarna var Gróa Jónsdóttir, b. á Eystra-Hrauni í Landbroti, Galdra- Arasonar, Jónssonar, pr. á Skinna- stað, Einarssonar. Móðir Sigríðar var Ingibjörg Steinunn Brynjólfsdóttir, vinnumanns í Hleiðargarði í Eyjafirði, Ólafssonar, og Rannveigar Kristjönu, vinnukonu í Reykjavík, móður Sveins Egilssonar forstjóra. Rannveig var dóttir Þorkels, vinnumanns í Sauða- gerði í Reykjavík, Magnússonar, b. á Ketilsstöðum á Kjalarnesi, Run- ólfssonar, b. á Ketilsstöðum, bróður Magnúsar, langafa Árna Eiríksson- ar leikara, afa Styrmis Gunnarssonar ritstjóra. Runólfur var sonur Magnús- ar, b. á Bakka á Kjalarnesi, Hallgríms- sonar, b. á Bakka, Þorleifssonar. Móð- ir Hallgríms var Guðrún Eyjólfsdóttir, b. á Ferstiklu, Hallgrímssonar, prests og skálds í Saurbæ, Péturssonar. Jón og Þórunn halda upp á daginn með fjölskyldunni. Þorgeir fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavogin- um. Hann var í Kópavogs- skóla, stundaði síðan nám við MK um skeið og lauk prófum í rennismíði frá Iðnskólanum í Hafnarfirði 1996. Þorgeir var m.a. vöru- bílstjóri og vélamaður í nokkur ár með iðnskólanáminu. Hann hefur verið rennismiður hjá vélsmiðjunni Vélvík í Reykjavík frá 1997. Þorgeir er félagi í Skotfélagi Kópavogs en hann hefur æft og keppt á ýmsum skotmótum í þrjú ár með 22 kalibera standard skamm- byssum og loftskammbyssum. Fjölskylda Kona Þorgeirs er Guðmunda Harpa Júlíusdóttir, f. 12.2. 1973, leikskólakennari. Börn Þorgeirs og Guð- mundu Hörpu eru Jó- hanna Steinunn Þórisdótt- ir, f. 20.9. 1993; Björn Bjarki Þórisson, f. 9.9. 1995; Júlí- us Arnar Ágústsson, f. 7.5. 2001; Hrafnkell Emil Þor- geirsson, f. 26.3. 2007. Bræður Þorgeirs eru Steingrímur Þorbjarnarson, f. 10.3. 1964, kenn- ari, búsettur í Kópavogi; Höskuld- ur Þorbjarnarson, f. 11.3. 1982, há- skólanemi. Foreldrar Þorgeirs eru Þorbjörn Ármann Friðriksson, f. 5.8. 1941, efnafræðikennari og uppfindinga- maður, búsettur í Kópavogi, og Ragnhildur Þorgeirsdóttir, f. 23.3. 1957, hjúkrunarfræðingur, búsett á Raufarhöfn. Borghildur fæddist í Reykjavík en ólst upp á Blönduósi. Hún var í Grunnskólanum á Blöndu- ósi, lauk stúdentsprófi frá VMA 2006 og stundar nú nám í lífeindafræði við HÍ. Borghildur starfaði á leikskóla 1999-2004 og vann hjá Passamyndum við Hlemm 2005-2007. Borghildur situr í stjórn skautafé- lagsins Bjarnarins og í stjórn Skauta- sambands Íslands. Fjölskylda Börn Borghildar eru Máni Snær Örv- ar, f. 9.10. 1995; Alex Uni Torfason, f. 20.5. 1997; Margrét Sól Torfadóttir, f. 13.3. 1999; Mikael Maron Torfason, f. 14.10. 2004. Systkini Borghildar eru Ey- vindur Leó Nikulásson, f. 27.4. 1982, pípulagn- ingarmaður í Færeyjum; Anna Jóna Kristjánsdóttir, f. 26.7. 1984, sálfræðinemi í Reykjavík; Gyða Dögg Jónsdóttir, f. 26.4. 1985, húsmóðir á Akureyri; Þor- steinn Kristjánsson, f. 2.10. 1985, starfsmaður Sam- skipa, búsettur í Hafnarfiðri; Ingi- björg Aldís Jónsdóttir, f. 4.4. 1991, nemi á Blönduósi; Dagbjört Henný Ívarsdóttir, f. 14.5. 1996, nemi á Blönduósi; Rakel Ýr Ívarsdóttir, f. 11.6. 2003; Kristján Emanúel Krist- jánsson, f. 20.9. 2006. Foreldrar Borghildar eru Krist- ján Þorsteinsson, f. 29.3. 1961, starfsmaður hjá Enn einum á Sel- fossi, og Jóhanna Atladóttir, f. 1.4. 1962, húsmóðir á Blönduósi. Þorgeir Þorbjarnarson rennismiður í reykjavík Borghildur F. Kristjánsdóttir nemi í lífeindafræði við hí María Pálmadóttir er þrítug í dag, iðjuþjálfi á Reykjalundi og búsett í Mosfellsbænum, þar sem hún hefur alltaf alið manninn, að undanskilinni dvölinni í Danmörku hér um árið. Maður Maríu er Guðmundur Ein- ar rafvirki, „sá besti í bænum“ - segir hún, og á við að hann sé besti rafvirk- inn í Mosfellsbænum, - og besti eigin- maður sem völ er á. Þau eiga tvo syni og þriðja barnið er á leiðinni. María er pollróleg yfir afmælinu: „Nei sko, það verður smá frestun á þessu afmæli núna. Ég hef ekki gefið mér tíma til að pæla neitt í þessu og er ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera. Ég er samt harð ákveðin í að því að gera eitthvað sniðugt, - svona á óformlegum fjölskyldunótum, líklega, - og aldrei að vita nema að mér detti eitthvað mjög sniðugt í hug á endan- um. Alla vega: Minn tími mun koma.“ Verður þetta þá bara ósköp venjulegur miðvikudagur? „Nei, ekki alveg. Ég mæti að vísu í vinnuna en hef líklega með mér afmælisköku handa stelpunum og Stebba á Reykjalundi. En að öðru leyti verður þetta allt með rólegum og óformlegum hætti á sjálfan af- mælisdaginn. Annars hef ég ekki undan neinu að kvarta. Afmælis- dagarnir mínir síðustu árin hafa yf- irleitt verið frábærir því maðurinn minn og synirnir hafa verið mjög duglegir við að gera þá eftirminni- lega.“ Þú kannski treystir á eitthvað slíkt núna? „Nei nei, - ég er ekkert að gera ráð fyrir neinu slíku og ekkert að ætlast til þess. Slíku fólki er hvort eð er aldrei hægt að koma skemmti- lega á óvart, “ segir María í Mosó. 30 ára í dag 30 ára í dag María í Mosó þrítug: „minn tími mun koma“ 30 ára n Anett Graff Norðurstíg 3a, Reykjavík n Sonja Meyer Grænumörk 10e, Hveragerði n Bjarnheiður Alda Lárusdóttir Bröttutungu 3, Kópavogi n Elín Salína Ásgeirsdóttir Írabakka 22, Reykjavík n Sólveig Eggertsdóttir Beykidal 4, Njarðvík n Kolbrún Stella Indriðadóttir Lindarbergi, Hvammstanga n Katla Guðrún Jónasdóttir Ingólfsstræti 21, Rey- kjavík n Þórdís Filipsdóttir Esjugrund 51, Reykjavík n Gunnar Örn Arnarson Hraunbæ 111, Reykjavík 40 ára n Ewa Lucyna Wojtas Nökkvavogi 62, Reykjavík n Tracie Lynn Washington Garðsenda 3, Reykjavík n Olga Alexandra Magnúsdóttir Blikahólum 8, Reykjavík n Sigurlaug Sævarsdóttir Grenihlíð 5, Sauðárkróki n Gróa Guðbjörg Þorsteinsdóttir Jaðarsbraut 37, Akranesi n Edda Þórðardóttir Háholti 12, Hafnarfirði n Kristján Örn Sigurðsson Sunnuflöt 16, Garðabæ n Ágúst Hreinn Sæmundsson Stekkjarbrekku 1, Reyðarfirði n Tinna Björk Baldursdóttir Háaleiti 22, Rey- kjanesbæ 50 ára n Kristján Óskarsson Fannafold 121, Reykjavík n Hrafnhildur Ragnarsdóttir Skipholti 36, Reykjavík n Herdís Rossouw Stekkjarbergi 8, Hafnarfirði n Elísabet Stefánsdóttir Brekkugötu 18, Vogum n Guðrún Sigtryggsdóttir Írabakka 22, Reykjavík n Sjöfn Pálsdóttir Ránargötu 33, Reykjavík n Lovísa Guðbrandsdóttir Laugarásvegi 57, Rey- kjavík n Margrét Inga Bjarnadóttir Álfatúni 5, Kópavogi n Níels Atli Hjálmarsson Marbakka 10, Neskaupstað n Stefán Hallgrímsson Brimnesi, Dalvík n Linda Rós Benediktsdóttir Hlíðarstræti 10, Bol- ungarvík n Vilhjálmur Gunnarsson Hraunbæ 130, Reykjavík n Guðrún Ásta Sigurðardóttir Bjallavaði 1, Rey- kjavík n Jón Kristján Ólason Klifagötu 14, Kópaskeri 60 ára n Antoníus Þorvaldur Svavarsson Efstalundi 9, Garðabæ n Sigríður Albertsdóttir Lóuási 19, Hafnarfirði n Þröstur Kristjánsson Blikastíg 13, Álftanesi n Sæmundur Ástmundsson Eystri-Grund, Selfossi n Valgerður Ingimarsdóttir Skeljagranda 13, Rey- kjavík n Guðrún Ásgrímsdóttir Fannafold 155, Reykjavík 70 ára n Árni Jón Árnason Stangarholti 12, Reykjavík n Viðar Guðmundsson Strikinu 12, Garðabæ n Guðrún Friðriksdóttir Seilugranda 8, Reykjavík n Sesselja Friðriksdóttir Seilugranda 2, Reykjavík n Fríða Dóra Jóhannsdóttir Kirkjuvegi 67, Vestman- naeyjum n Ásdís Gunnlaugsdóttir Laugarvegi 15, Siglufirði n Jakob Ólason Vatnsenda, Kópavogi n Guðný Árdal Klapparstíg 1, Reykjavík n Ottó Tulinius Birkilundi 17, Akureyri 75 ára n Anna Steinunn Eiríksdóttir Hólavegi 40, Sauðárkróki n Jóna Hólmfríður Guðjónsdóttir Hraunbæ 60, Reykjavík n Andrés Sigurðsson Hrauntungu 49, Kópavogi n Hulda Magnúsdóttir Suðurvangi 15, Hafnarfirði n Unnur Ólafsdóttir Hraunbæ 107c, Reykjavík n Jóhanna Birna Ágústsdóttir Nestúni 2, Hvammstanga 80 ára n Viggó Pálsson Sólheimum 27, Reykjavík n Sigurður M. Jakobsson Löngubrekku 33, Kópavogi n Þórhalla Davíðsdóttir Ásbraut 13, Kópavogi n Valgeir Sigurðsson Kirkjuvegi 1d, Reykjanesbæ 85 ára n Sigríður Benny Eiríksdóttir Hraunbæ 103, Rey- kjavík n Kristín E. Kjerulf Mosgerði 5, Reykjavík n Einar Gíslason Dalbraut 27, Reykjavík n Ragnheiður Guðmundsdóttir Stigahlíð 41, Rey- kjavík n Steinunn Guðjónsdóttir Ægissíðu 13, Grenivík n Benedikt Lárusson Tjarnarási 7a, Stykkishólmi Til hamingju með afmælið! 80 ára í dag María Pálmadóttir Hér er María að mála íbúðina sem þau guðmundur Einar fluttu í nú í ágúst sl..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.